Tíminn - 08.11.1980, Blaðsíða 13
Laugardagur 8. nóvember 1980
13
Steingríms saga, annað bmdi:
Opinskáar æviminningar
Bókaútgáfan örn og örlygur
hf. hefur sent frá sér annað
bindi Steingrimssögu, —
sjálfsævisögu Steingríms Stein-
þórssonar, fyrrum forsætis-
ráðherra. Undirtitill bókarinnar
er: Búnaðarfélagsárin, pólitfk
og einkamál.
Steingrimur heitinn Stein-
þörsson var einn af skörungum
islenskra stjórnmála um miðja
öldina og var um tíma forsætis-
og landbúnaðarráðherra. Auk
þess gegndi hann fjölmörgum
trúnaðarstörfum, var alþingis-
maður i áratugi skólastjóri
Hólaskóla um skeiö svo og
búnaðarmálastjtíri. Hann lést
14. nóvember 1966.
Steingrimur Steinþórsson
skráöi lengst af vandaöar og
itarlegar dagbækur og haföi
hafiö skráningu ævisögu sinnar
þegar á miöjum aldri og hélt þvi
áfram meö hléum fram til sjö-
tugs. Er Steingrimssaga byggö
á þessum skrifum Steingrims en
þeir Andrés Kristjánsson og ör-
lygur Hálfdánarson hafa búiö
bókina til prentunar.
Eins og undirtitill bókarinnar
ber meö sér fjallar hún um þaö
timabil i starfsævi Steingrims
er hann var búnaöarmálastjóri
en Steingrimur beitti sér fyrir
auknu starfi BUnaöarfélags Is-
lands og baröist fyrir fjöl-
mörgum nyjungum i starfi þess.
Auk þess haföi Steingrímur virk
afskipti af stjórnmálum á þess-
um árum, og segir t.d. i þessari
bók frá framboöi sinu i Baröa-
strandarsýslú og glimum sinum
viö Gisla Jónsson frá Bildudal á
sögulegum framboösfundum I
héraðinu.
Þegar fyrsta bindi Stein-
grimssögu kom út I fyrra vakti
sú bók mikið umtal og athygli
enda saga Steingrims á margan
hátt ööru visi en æviminninga-
bækur, ekki síst þegar stjórn-
málamenneiga I hlut. Sér i lagi
vakti það athygli hve hispurs-
og tæpitungulaust Steingrimur
fjallaöi um menn og málefni og
hve mannlýsingar hans voru
opinskáar og afdráttarlausar.
Sú bók er kemur nú Ut: Stein-
grimssaga — Búnaöarfélagsár-
in, pólitik og einkamál, ber svip
fyrri bókarinnar. Eins og i fýrri
bókinni kemur mikill fjöldi
karla og kvenna viö sögu og enn
sem fyrr er f jallaö um þetta fólk
á opinskáan hátt. Þar er ekki
farið I manngreinarálit, og sist
hlifirSteingrimur sjálfum séref
þvi er aö skiDta.
Steingrimssaga skiptist i 13
meginkafla er bera eftirtalin
heiti: Búnaöarfélag Islands —■
stjórn og starfsfólk: Mjólkur-
sölumál, jaröræktarlög og
átakamikiö búnaöarþing: Um
landiö þvert og endilangt: A
mannamótum: Heimili mitt:
Ný skipan á Búnaöarþingi:
Yfirreiö um Vestfiröi: A
orrustuvöllinn I Skagafiröi aö
nýju: Höröátök á þingi og utan:
A noröurslóö sumariö 1941:
Bjarmalandsför f Baröa-
strandarsýslu: Milliþáttur i
Skagafiröi og utanþingsvist og
Átökin um samtök bænda. Hver
kafli skiptist svo I fjölda undir-
kafla.
Annaö bindi Steingrfmssögu
er 280 blaösföur prýtt fjölda
mynda. Bókin er sett, umbrotin
og filmuunninn i Prentstofu G.
Benediktssonar en bundin 1
Arnarfelli hf. Kápa bókarinnar
er hönnuö af Sigurþóri Jakobs-
syni.
Prestafélag Suöurlands:
Vetrarstarfið hafið
Aðalfundur Prestafélags
Suðurlands var haldinn f Skálholti
dagana 21. og 22. september
siðastliðinn. Stjórn félagsins var
endurkjörin, þeir sr. Frank M.
Halldórsson formaður, sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson gjaldkeri og
sr. Tómas Guðmundsson ritari.
Auk aöalfundarstarfa voru flutt
tvö erindi. Stjórn félagsins haföi
borist bréf frá Guöfræðideild Há-
skóla Islands, þar sem óskaö var
eftir nánara samstarfi viö presta-
félagsdeildirnar. Að samkomu-
lagi varö aö sr. Arngrimur Jóns-
son sem kenndi kirkjusögu síöast-
liöinn vetur viö guöfræöideildina
og Einar Sigurbjörnsson
prófessor flyttu framsöguerindi.
Mánudaginn 10. nóvember
veröur fyrsti fundur félagsins á
þessu starfsári. Fundarstaður
veröur safnaöarheimili Bústaöa-
kirkju. Fundarefni er: Kirkju-
byggingar og starfsaöstaöa i
söfnuöunum. Framsögumenn
veröa sr. Halldór Gunnarsson i
Holti og sr. Valgeir Astráösson
Seljaprestakalli i Reykjavik.
Cr myndinni „Ræflarnir”, sem Fjalakötturinn sýnir nú um helgina.
Spennandi, raunsæ
og grálynd....
EKJ — Nú um helgina verður
myndin „LOS GOLFOS”
(Ræflarnir) eftir spánska leik-
stjórann Carlos Saura, sýnd I
Fjaiakettinum (Tjarnarbiói).
Saura ætti aö vera Islensku
kvikmyndaáhugafólki aö góöu
kunnur, þar sem þó nokkrar
myndir hans hafa veriö sýndar
hérlendis. „Las Casa” var á pró-
grammi Fjalakattarins fyrir
tveim árum, kvikmyndahátiö
Listahátiöar þótti ástæöa til aö
sýna tvær af myndum Saura
„Hrafninn” og „Meö bundiö fyrir
augun” á siöastliönum vetri. og
Háskólabió sýndi fyrir allnokkr-
um árum „Peppermint Frappé”.
Enn eru nokkrar mynda Saura
ósýndar hérlendis.
1 stuttu máli greinir „LOS
GOLFOS” frá hóp ungra manna i
útbæ Madrid. Einn þeirra vill
komast i nautaat. Hinir vilja
hjálpa honum i von um hlut i
gróöanum. Þá vantar bara fé til
að skrá manninn i keppnina.
Meira er ekki hægt aö segja um
söguna. En myndin er sögö
spennandi, raunsæ og grálynd.
Skirteini veröa seld i Tjarnar-
bió fyrir sýningar. Athugiö fjölg-
un sýningatima úr þremur i fjóra.
Alþýðuleikhúsið fær styrk til að greiða
niður skólasýningar:
„Pæld íþví”
fær2 millj.kr.
Kás — Borgarstjórn samþykkti
á fundi sinum sl. fimmtudag aö
veita Alþýðuleikhúsinu styrk
upp á 2 millj. kr. til að greiða
niður miðaverð á skóiasýning-
um á leikritinu „Pæld Iþvi” sem
fjallar um kynlif unglinga.
Borgarstjórn samþykkti tillög-
una með tiu atkvæðum gegn
tveimur, en þessi sama tiliaga
hafði ekki hlotið nægilegan
stuðning I borgarráði fyrir
skömmu.
Þaö voru borgarfulltrúar
meirihlutans auk Birgis Isleifs
og Elinar Pálmadóttur sem
greiddu tillögunni atkvæöi sitt,
en Albert Guömundson og
Sigurjón Fjeldsted greiddu at-
kvæöi á móti. Aörir borgarfull-
trúar sátu hjá.
Sigurjón Pétursson mælti
fyrir tillögunni og sagöist sann-
færöur aö kynllfsfræðslan kæm-
ist betur til skila meö þessu
formi, þ.e. leikritinu en meö
venjulegri kennslu, og taldi viö-
llka leikrit eiga aö vera hluti af
kennslu skólanna.
Kristján Benediktsson for-
maöur Fræösluráðs sagði aö
mál þetta hefði fengið itarlega
umfjöllun þar I ráði. Heföu
flestir fræösluráösmenn séö
leikritiö og væri nær samdóma
álit þeirra aö hér væri um gott
stykki aö ræöa.
Albert Guömundsson lýsti sig
sérstaklega andvigan þessari
styrkbeiðni og taldi kennara
betur til þess búna aö færa kyn-
lifsfræðslu inn I skólanna en
leikara.
Tíminn
gefur út myndarlegt bílablað
20. nóvember 1980
Meðal efnis:
★ Nýir bílar árgerð 1981
★ Bílaiþróttir
★ Vetrarklæði bilsins
★ Viðtöl
★ og margt fleira
TEKIÐ ER Á MÓTI
AUGLÝSINGUM
i símum 8-63-96 og 8-63-00
fyrir 14. nóvember n.k.