Tíminn - 15.11.1980, Blaðsíða 9
Laugardagur 15. nóvember 1980.
13
Allt að fjórum sinnum
hættulegra fyrir íslendinga
að reykja, en t.d. Japana:
BSt— „Það er allt aö þvi f jórum
sinnum hættulegra fyrir fs-
lendinga á miðjum aldri að
reykja en t.d. Japana eða Spán-
verja, þar sem blóðfita mið-
aldra Islendinga er með þvi
hærra sem þekkist i heimin-
um.” Þetta sagði Snorri Páll
Snorrason, sérfræðingur i
hjartasjúkdómum, er blaða-
maður Timans kom til hans i
Háþrýstideild Landspitalans,
sem er að Lágmúla 9 til að for-
vitnast um hvað hann sem sér-
fræðingur segði um samband
reykinga og hjartasjúkdóma.
Snorri Páll sagði, að rann-
sóknir Hjartaverndar sýndu, að
blóðfita hjá islenskum miðaldra
karlmönnum væri með þvi
hæsta sem fyrirfinnst i heimin-
um. Þegar talað er um áhættu-
þætti i sambandi við hjartasjúk-
dóma er blóðfita mjög stór þátt-
ur. Reykingar eru einnig mjög
stór þáttur i útreikningum
áhættuþátta. Þegar reykingar
og of mikil blóðfita eru til staðar
hjá einum og sama manni, þá
eykst hættan um allan helming.
Aftur á móti hjá Suðurlanda-
þjóðum, þar sem blóðfita er svo
miklu minni en hér á landi, má
segja að reykingar séu ekki
nærri þvi eins hættulegar. Auð-
vitað eru eiturefnin, svo sem
nikótin, tjara o.fl. jafnhættuleg
fyrir lungu þeirra, en þeim er
ekki eins hætt við kransæða-
sjúkdómum og okkur Islending-
um.
Reykingar auka tiðni krans-
æðasjúkdóma, þar á meðal
bráðrar kransæðastiflu og
skyndidauða. Einnig reykst
hættan á æðakölkun i öðrum
slagæðum likamans, svo sem
meginslagæð (ósæð) og
slagæðum fóta.
Ahættan virðist fara eftir
innihaldi af nikótini, kolsýrlingi
og tjöruefnum i reyknum. Þessi
efni valda sjúklegum breyting-
um i veggjum slagæðanna,
einkum innsta lagi æðaveggj-
anna, þar sem skemmdir verða
i æðaveggjunum, flytjast efni úr
blóðinusvo sem kolesteról inn i
vefi æöaveggjanna og sýkja þá
enn meir, að lokum sest kalk i
æðaveggina, æðin þrengist og
blóðrás til viðkomandi liffæris
Snorri Páll Snorrason læknir.
minnkar eða stöðvast með al-
varlegum afleiðingum.
Blóðrásarskortur i hjarta
veldur stundum drepi i hjarta-
vöðva en getur einnig truflað
Timamynd: G.E.
rafstrauma þá i hjartanu sem
eru undanfari samdráttar
hjartahólfanna. Hjartsláttur
stöðvast þannig er talið að
skyndidauða beri að höndum i
langflestum tilfellum.
Hættan við reykingar eykst
stórlega ef blóðfita (kólstéról)
er aukið og hjá þeim sem hafa
háan blóðþrýsting.
Er Snorri P. Snorrason var
spuröur að þvi hvort hann hvetti
ekki undantekningalaust sjúk-
linga sem til hans koma, til að
hætta að reykja, þá sagöi hann
að það væri svolitið misjafnt.
Fólk þyrfti helst sjálft aö gera
þaö upp við sig, hvort það vildi
hætta, — en þaö eru vissir sjúk-
lingar sem læknar segja
ákveðið að þeir verði að hætta
reykingum, t.d. kransæðasjúk-
lingar. Enda finna þeir það
fljótt sjálfir hvað liðan þeirra
verður skárri þegar þeir hætta.
Þeir kransæöasjúklingar,
sem hafa hjartaverki, þurfa ef
til vill ekki nema eina sigarettu
til þess að fá verk fyrir brjóstið.
Það er vegna þess, að við nikó-
tinið versnar blóðrásin strax og
æðar dragast saman.
Yfirleitt má segja að ekki
nokkur reykjandi maður sjáist á
fundum lækna sagði Snorri Páll,
Framhald á bls 19
Haraldur Þorsteinsson segir:
-Núerég alveg gallharður,
ég er hættur að reykja ....
BSt— „Það vitlausasta sem þú
gætir gert nú er að byrja að
reykja aftur sögðu þrir læknar
við mig úti i London er ég var
nýlega i hjartauppskurði, — þá
er okkar vinna unnin fyrir gýg
sögðu þeir”. Þetta voru orð
Haraldar Þorsteinssonar, mið-
aldra Reykvikings sem fyrir um
það bil mánuði gekkst undir
uppskurð þar sem tekin var æð
úr fæti hans og gert með henni
við ónýtar æðar i hjartanu.
Haraldur sagði að þessi að-
gerð hefði tekist vel og nú von-
aðist hann eftir betri heilsu, —
og ég er alveg gallharður núna,
— ég er hættur að reykja fyrir
fullt og allt!
— Byrjaðir þú ungur?
— Það má segja það, ég
byrjaði svona 13 ára en auðvitað
var þetta bara fikt fyrst framan
af en jókst með árunum og ég
var orðinn stór-reykingamaður
eiginlega áður en ég áttaði mig
á þvi. Jafnvel þegar kransæða-
stiflan kom tii sögunnar fyrir
eins og 20 árum og ég þurfti að
fara að nota pillur, svokallaðar
„sprengipillur”, þá fannst mér
ekki að ég gæti hætt að reykja.
Ég reyndi það þó þá og stóðst
bindindið i 10 daga en gleymdi
mér þá i afmæli og kveikti i
sigarettu og þar með var bind-
indinu lokið. Og svo fór allt i
sama farið og ég var farinn að
reykja 4-5 sigarettur með
morgunkaffinu fyrir kl. 8 á
morgnana. — Svo varð maður
að taka pillur þegar verkurinn
sagði til sin...
— Við hjónin höfum bæði
reykt sagði Haraldur en nú er ég
hættur, hvað sem konan gerir.
Það gleðilega er að ekkert okk-
ar 7 barna reykir og þau hafa
meira að segja fest upp miða á
herbergisdyr sinar „Við reykj-
um ekki hér” og fleiri slik plag-
göt.
— Þegar ég kom á sjúkrahús-
iði London var ég strax spurður
um hvort ég hefði reykt mikiö
og siðan var mér gert það ljóst'
að þarna væri algjört skilyrði að
ég reykti ekki. „Þú reykir ekki
héren svo ert þú auðvitað sjálf-
ráður hvað þú gerir siðar meir,
— en það vitlausasta sem þú
gærir gert, er að byrja aftur aö
reykja”, sagði læknirinn minn
— segir Haraldur og brosir — en
ég var þrjóskur og bar þetta
undir tvo aðra lækna og þeir
sögðu nákvæmlega það sama og
jafnvel með sterkari orðum. Ég
kveikti mér samt nokkrum
sinnum i sigarettum úti fyrir
uppskurðinn en hef ekki gert
það siðan ég kom hingað á
Landspitalann en hér á ég að
vera svolitinn tima að jafna mig
eftir skurðinn.
— Mér finnst sjálfum að það
væri hjálp fyrir sjúkling eins og
mig ef læknarnir væru bara
harðir á þvi að banna okkur al-
gjörlega að reykja, ég held jafn-
vel að þaö myndi riða bagga-
muninn hjá sjúklingnum. Það er
eins og ekki sé nóg að tala bara
um fyrir manni, þegar þetta er
svona rikur vani.
Haraldur Þorsteinsson hefur
unnið við vinnuvélar, útgerð
þeirra og sölu. Hann segir að nú
verði hann að læra hvernig best
sé fyrir sig að lifa lifinu, — eng-
an æsing eða læti, hvorki við
vinnu eöa annaö en með gát ætti
þetta að geta orðið gott lií. —
Númer eitt hjá mér að halda
reykbindindið og siðan að taka
lifinu með ró og vera skapgóður,
sagði Haraldur.
Haraldur Þorsteinsson
Timamynd G.E.
ASPAR - SÝNING
á Akranesi
—jggvo-v cjso
Við sýnum hin viðurkenndu ASPAR-einingahús
laugardaginn
15. nóvember kl. 13-18
að Jörundarholti 158.
Kynnist vandaðri einingahúsa-
framleiðslu og byggingartækni sem í senn
er einföld, ódýr og örugg.
HF.
■“Stykkishólmi Simar: 93-8225 og 93-8307