Tíminn - 28.11.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.11.1980, Blaðsíða 1
Föstudagur 28. nóv. 1980 266. tölublað 64. árgangur Eflum Tímann Siðumúla 15 ■ Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 ■ Kvöldsimar 86387 & 86392 Kratar töpuðu bæði forseta- og varaforsetakosningu: Ásmundur kosinn forseti og Björn Þórhallsson varaforseti — með miklum yfirburðum HEI— Asmundur Stefánsson sigraöi með glæsibrag i kosn- ingu til embættis forseta ASÍ á þinginu i gærkvöldi. Hlaut hann samtals 35.825 atkvæði eða 63,9%. Karvel Pálmason hlaut 17.025 atkvæði eða 30,4% og Guðmundúr Sæmundsson hlaut 2.275 atkvæði eða 4,06%. Auð voru 875 atkvæði. 1 þakkarorðum sagðist As- mundur telja úrslitin sýna, að fólk vænti þess af sér að hann reyndi að sameina hina óliku hópa inman samtakanna. Við forsetakjörið varð kjör- nefndin ekki sammála i afstöðu sinni. Meirihluti nefndarinnar — 5 menn — gerðu tillögu um Asmund, 2 um Karvel og sjálf- stæðismennirnir sátu hjá. Þá var röðin komin að kosningu varaforseta sem ekki var beðið með minni eftirvæntingu. Þing 'ö haföi fyrr um daginn fellt — með mjög litlum mun — til- lögu um að kosnir yrðu tveir varaforsetar. Kjörnefndin skiptist einnig um þessa tillögu. Fimm manna meirihluti gerði tillögu um Björn Þórhallsson, 3 gerðu tillögu um Jón Helgason — Hákon Hákonarson gekk til liðs við hann — og Sigfinnur Karlsson sat hjá. Björn sigraði i þessari kosningu með enn meiri yfirburðum en Asmundur. Hlaut Björn 36.450 atkvæði eða 65,1%, Jón Helgason hlaut 18.625 atkvæði eða 33,3% en auð og ógild voru um 900. Ljóst var að alþýöuflokks- menn voru ákaflega slegnir yfir úrslitunum, en hvort það dregur einhvern dilk á eftir sér i þeim kosningum sem eftir voru var ekki ljóst um miðnættið þegar þetta er skrifað. Það var hinsvegar einnig ljóst, að a.m.k. sumum VR mönnum varö glatt i geði. Ekki eru nemai5 ár siðan þeir komust fyrst inn i AS1 og þá með félags- dómi. Nú eru bæði forseti og varaforseti ASÍ úr röðum VR. Þing BHM hefst í dag AB — i dag hefst 4. þing Banda- iags háskólamanna, aö Hótel Loftleiðum, en þingið er haldið annað h vert ár. Þingið stendur i dag og á morgun. Félagsmenn i BHM eru nú 4.640 i 20 félögum. Þar af eru um 2.000 ríkisstarfsmenn og tæp- lega 500 sjálfstætt starfandi. Aðrir félagsmenn starfa hjá ýmsum einkaaðilum, sveitarf- elögum og bönkum. Þingið munu sitja um 140 fulltrúar. Þar verður fjallað um skattamál, kjaramál og breyt- ingar á samningsrétti BHM, en bandalagið hefur sem kunnugt er ekki verkfallsrétt. Þá verður kjörin stjórn BHM til næstu tveggja ára. Þinginu lýkur sið- degis á morgun. Atkvæði um sáttatillöguna taiin í kvöld: Kjörsókn flugmanna mjög góð FRl — Atkvæði I sáttatillögu flugmanna verða talin fkvöld en kosningunni lýkur kl. 6 í dag. Kjörsókn fiugmanna mun vera mjög góð og aðeins 4 eða 5 eiga eftir að greiða tillögunni at- kvæði sitt, með eða á móti, en auk þess eru nokkrir flugmenn starfandi erlendis og munu þvi ekki geta tekið þátt i atkvæða- greiðslunni. Von er á að allir þeir sem geta þvi við komið greiði atkvæði enda er áhuginn mikill meðal flugmanna eins og gefur að skilja. Asmundur Stefánsson, nýkjörinn forseti ASI, var afslappaður I gær áöur en kosningarnar fóru fram um embættið. Fyrirrennari hans Jónsson, situr honum til vinstri handar. Timamvnc „MADUR AÐ MÍNU SKAPI” Erlendur Einarsson forstjóri Sambandsins: .HÁVAXTASTEFNAN ER KOMIN Á HEI — ,,Það hefur enginn beðið mig að bjóða mig fram tii for- seta ASt, en það hefur heldur enginn beðið mig að gera það ekki, og hér með geri ég það sjálfur” sagði Guðmundur Sæmundsson frá Akureyri sem steig I pontu á ASt þinginu eftir að kjörnefndarmenn höfðu mælt með Asmundi og Karvel i gær- dag. Guðmundur sagðist hreykinn af þvi að tilheyra þeim af hópunum fimm, sem fulltrúum á þinginu hefði verið skipt i bæði af fjölmiðlum og öðrum (óháð- ur). Hann hefði sloppið við makkiðog flokksplottið sem þar yfirgnæfði flest annað. Enginn hefði verið að klappa sér á axlirnar og hann hefði fengið að neyta matar sins i friði án þess að fá út á hann væna dembu af „flokkssósu”. Guðmundur sagði óskandi að forystumenn verkalýðshreyf- ingarinnar hefðu lagt sig eins Framhald á bls 19 BLINDGÖTU” — og virkar sem olia á veröbólgu* báliö í staö þess aö vera stjórntæki- til aö draga úr þvi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.