Tíminn - 28.11.1980, Blaðsíða 5
Föstudagur 28. nóvember 1980.
5
Brýnustu verkefni kaupfélaganna:
„Uppfærsla á vörubirgðum og
álagning landbúnaðarvara”
Segir Halldór S. Magnússon kaupfélagsstjóri
AB — Kaupfélagsstjórar af öllu
landinu funduðu um málefni og
stöðu kaupfélaganna I siðastlið-
inni viku. Um margt var rætt og
sýndist kaupfélagsstjórunum að
framtið verslunar i landinu, og
þá sérstaklega verslunar úti á
landi væri ekki björt.
Halldór S. Magnússon
kaupfélagsstjóri i Stykkishólmi
tjáði Timanum að brýn verk-
efni eins og „uppfærsla á vöru-
birgðum” og endurskoðuð
álagningar á landbúnaðarvörur
væru þau mál sem mestrar at-
hygli þyrftu að njóta á næstunni
og mests forgangs, Halldór
sagði:
„Langstærstu málin i sam-
bandi við landsbyggðarverslun-
ina eru uppfærsia vörubirgða,
þ.e. að fá að hækka upp vörur á
lager eftir þvi sem verðlag
hækkar. Sem dæmi má nefna að
ef verslun kaupir vörur i dag og
selur þær eftir hálft ár þó
kostar varan i innkaupi 1300.000.
En samkvæmt lögum i dag er
það skylda að selja vöruna á
Sama verði og hún var keypt á,
með álagningunni að sjálfsögðu.
Undir slikur risa verslanirnar
úti á landi ekki.
Alagning á landbúnaðarvörur
Halldór S. Magnússon.
er hitt stórmálið. Hún er langt
fyrir neðan allt velsæmi. Sem
dæmi má nefna að það var gerð
úttekt hjá tveimur kaupfélögum
á þessu ári um það hver dreif-
ingarkostnaður á landbúnaðar-
vörum væri, og hverjar tekjur-
nar væru. Niðurstaða þessarar
könnunar var sú að tekjurnar,
eða álagningin fyrir sölu af kjöti
standa undir u.þ.b. einum
fjdrða af dreifingarkostnaðin-
um, en álagningin á mjólk og
mjólkurvörum stendur undir
tæpum helming dreifingar-
kostnaðarins. Aftur hinar
vörurnar sem litið þarf aö hafa
fyrir.eðamikluminna, þ.e. þær
vörur sem ekki þurfa kælingu
eða sérstaka afgreiðsíu, t.d.
dósa- og pakkavörur, þær bæta
þetta talsvert upp, þó að þær
jafni náttúrlega engan veginn
þennan mun. Þetta er mál sem
við höfum lengi hamrað á og
reynt að fá leiðréttingu á. Það
er nú loksins koin af staö
könnun á vegum verðlags-
stjóraembættisins, þar sem
rannsakað skal hver dreifingan
kostnaður er. Við vonumst þvi
til þess að þegar að þessari
könnun verðurlokið þá fáum við
leiðréttingu á þessu þýðingar-
mikla máli.”
„A síöustu árum hefur:”
ai « íng bi ivara L
læ k! kai ð ven ílega 99 )
Segir Arni Árnason hiá Verslunarráöi fslands
AB — „Ég skil þetta áhyggjuefni
kaupfélagsstjóranna mjög vel,”
sagði Arni Arnason hjá
Verzlunarráði tsiands I viðtali við
Timann í gær, þegar hann var
spuröur að þvi hvort áhyggjuefni
kaupfélagsstjóranna af lágri
álagningu landbúnaðarvara, væri
einnig áhyggjuefni kaupmanna
almennt.
Arni sagöi jafnframt: „Alagn-
ing á landbúnaðarvörur hefur
jafnt og þétt siðustu árin farið
lækkandi, þannig að i dag er hún
einungis hluti af þvi sem hún var
1978. Þessi breyting á álagning-
unni hefur sett þær verslanir sem
byggja að miklu leyti á sölu þess-
ara vara, t.d. verslanir úti á landi
og eins hverfisverslanir hér á
Stór-Reykjavikursvæðinu, i tals-
vert mikinn vanda. Markaðirnir
áður byggðust á þvi aö versla
með vörur sem rýmri álagning
var á, og hélt þá uppi land-
búnaðarvörunum. En siöan gerð-
ist það að eftir tilkomu hinna
stærri verslana, þá sækir fólk
þangað og verslar inn i tiltölulega
stórum hollum, t.d. pakka- og
dósavörur, en sækir svo daglegar
nauðsynjar eins og mjólkurvörur
I hverfisverslanirnar. Þessi lækk-
un álagningar á búvörum siðustu
árin hafa þvi sett hverfisverslan-
irnar og verslanir úti á lands-
byggöinnií talsveröan vanda. Þvi
finnst mér það afskaplega vel
skiljanlegt aö kaupfélagsstjórar
séumeð áhyggjur af þeirri þróun.
Það er hinn almenni kaupmaður
einni|”.
Arni sagði einnig að uppfærsla
á vörubirgðum væri ekkert einka-
vandamál kaupfélagsstjóranna.
Aö fá ekki aö hækka upp vöru-
birgðir eftir þvi sem verðlag
hækkar væri vandamál allrar
verslunar i landinu, og þetta
kæmi haröast niður á sérverslun-
um ýmis konar, þar sem veltu-
hraöinn væri hægari en I venju-
Arni Arnason.
legum verslunum. Arni nefndi
sem dæmi verslanir sem versla
með varahluti.
Skilyrði ttl haf-
ismvnrinnar grtft
Kortið sýnir hafisjarðarinn I
tslandshafi allt norður til Jan
Mayen samkvæmt iskönnun úr
flugvélum 21. og 24. nóvember s.l.
Útbrciðsla Issins er I meðallagi.
Eins og nýlega var greint frá i
fréttatilkynningu frá Hafrann-
sóknastofnun (Svend Aage
Malmberg) er yfirborð sjávar
fremur kalt norður af tslandi,
a.m.k. vestan til og eru þær
niðurstöður reyndar i samræmi
við veðurtunglamyndir af tslandi
og hafssvæðunum umhverfis.
Skilyrði til hafismyndunar eru
þvi tiltölulega góð að þessu leyti.
Hins vegar fer hafís við strendur
tslands einnig mjög eftir rikjandi
vindátum, sem ógerlegt er að spá
fyrir um að marki langt fram i
timann. (Hafisrannsóknadeild).
Salóme vill að Alþingiskosningarnar
verði á laugardögum:
STÓRMARKAÐSVERÐ
VERÐUR K0SIÐ MEÐ
VELTISTIMPLUM
JSG — i frumvarpi til
breytinga á kosningalög-
um sem nú liggur fyrir
Alþingi er lagt til að
Alþingiskosningar fari
eftirleiðis fram á laugar-
dögum, en ekki sunnu-
dögum eins og tíðkast
hefur. Flutningsmaður,
Salóme Þorkelsdóttir, vill
gera þessa breytingu
vegna þess að „vaxandi
fjöldi landsmanna vakir
nóttina sem atkvæði eru
talin." Þvi sé æskilegt að
dagurinn eftir talningu sé
frídagur.
í sama frumvarpi er
lagt til að þeir sem greiða
atkvæði utan kjörfundar,
eigi kost á að gera það
með stimpli, nánar tiltek-
ið veltistimpli með upp-
hleyptum listabókstaf.
Þetta gæti hentað þeim
sem lítinn mátt hafa í
höndum, og einnig þeim
sem sjóndaprir eru.
Enn eitt atriðið í þessu
frumvarpi er að kæru*
frestur vegna kjörskrár
verði styttur úr þremur
vikum í tiu daga. Þá verði
námsmenn sem eru við
nám á Norðurlöndum, og
aðrir sem dvelja um
stundarsakir erlendis,
færðir á kjörskrá, þar
sem þeir áttu siðast
heimili.
Gerið verðsamanburð
Epli kr. 1.160
Strásykur 2 kg. kr. 1.790
Eldhúsp kr. 925
Rúsínur 1 kg. kr. 1.585
Kakó ...1/2 kg. ,kr. 1.595
Klementínur kr. 1.390
Drengjaskyrtur kr. 4.330
Barnapeysur kr. 4.400
Herr>skyrtur kr. 6.800
Rúmfatnaður tilboð ... kr. 10.635
Opiðtil
kl.22
föstudaga
ogtil
hádegis
laugardaga
STÓRMARKADURINN
Skemmuvegi 4 A,
Kópavogi