Tíminn - 10.12.1980, Síða 1
V
Síðumúla 15 * Pósthólf 370 * Reykjavík * Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 Afgreiðsla og áskrift 86300 * Kvöldsímar 86387 & 86392
»31
„Vona að þeir skammist
sín sem hæst hafa galað”
— segir Örn 0. Johnson
AM — „Auðvitað er það okkur
ánægjuefni að staðfest er að
eignir felagsins eru fvllilega
nægar til þess að standa fyrir
þeim ábyrgðum sem við höfum
beðið um,” sagði örn O. John-
son, forstjóri Flugleiða, þegar
blaðið ræddi við hann i gær um
það mat á eignum félagsins,
sem nú liggur fyrir.
örn sagði að matið væri ýmist
of eða van á við það sem þeir
Flugleiðamenn hefðu sjálfir
haft skráð i eigin bókum,- t.d.
væri upphæðin á flúgvélunum
ekki fjarri lagi, þott þær hefðu
metist nokkru lægra en vænta
hefði mátt, einkum DC-8 vélar-
nar. Hins vegar hefðu fasteign-
irnar metist hærra en við var
búist.
örn 0. Johnson sagði að
félagiðhefðiekkireynt mikið til
við að svara þeim röddum sem
fullyrt hefðu að ekki væru til
eignir fyrir skuldum þess, en
kvaðst vona að þeir myndu nú
skammast sin eitthvað, sem
hæst hefðu galað.
Þótt það fé sem félagið fær
nú mundi breyta stöðunni veru-
lega, hvað það varðar að geta
haldið rekstrinum áfram, kvað
örn það ekki launungarmál aö
eftir sem áður rikti óvissa um
flugreksturinn og að erfiðir tim-
ar mundu framundan.
i
Tali um lóðaskort vísað á bug:
Lóðum undir 576 íbúðir
úthlutaö í Reykjavík
Kás — A þessu ári er búið að út-
hluta lóðum undir 576 ibúðir i
Keykjavik sagði Kristján Bene-
diktsson borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins á siðasta fundi
borgarstjórnar, þar sem hann
mótmælti þvi að sérstaklega mik-
ill lóðaskortur væri i Reykjavik.
Samkvæmt áætlun næsta árs
sagði Kristján aö úthlutað yrði
lóðum undir 530 ibúðir. Sam-
kvæmt þeirri framkvæmda-
áætlun, sem lögð veröur fram i
frumvarpi að fjárhagsáætlun
borgarinnar fyrir næsta ár á
næsta fundi borgarstjórnar er
gertráðfyrir tveimur milljöröum
á næsta ári til að gera fyrrnefnd-
ar lóðir undir 530 ibúöir bygg-
ingarhæfar.
Þessu til samanburðar nefndi
Kristján að á árunum 1975-78
hefði verið úthlutað að meðaltali
lóðum undir 433 ibúðir. A sama
timabili hefði Reykvikingum
fækkað um 1500 en á siðasta ári
hefði tekist að snúa þeirri þróun
við þannig að Reykvikingum færi
nú fjölgandi á ný i fyrsta skipti i
mörg ár.
Bankamenn:
AB — Samningafundur fulltrúa
hankanna og bankastarfsmanna
sem hófst kl. 21.00 i fyrrakvöld
stóötil kl. 12.00 á hádegi i gær. Þá
var gert fundarhlé til kl. 18.00 i
gær. Hljóðið i bankastarfsmönn-
um i gærkveldi var það að for-
menn starfsmannafélaganna
hefðu verið beðnir um að vera i
viðbragðsstöðu og tilbúnir að
koma til fundar hjá sáttasemjara
hvenær sem var i nótt. Þvi bendir
allt til þess að skriður sé að kom-
ast á deiluna.
Samkvæmt heimildum Timans
hafa fulltrúar bankanna nú boðið
bankastarfsmönnum 3% kaup-
hækkun til viðbótar 5% sem sam-
ið var um i október en þessi 3%
vilja þeir aðeins greiða frá 1.
ágúst i sumar, en eins og kunnugt
er þá gera bankastarísmenn það
að kröfu sinni að 3% veröi aftur-
reiknuö til 1. júli 1979 þegar þau
voru tekin af þeim i ljósi Ólafs-
laganna eins og fulltrúar bank-
anna túlka þaö.
Verkfallsvarsla fór fram i ró-
legheitunum i gær og var ekkert
um ágreiningsatriði. Einhverjir
smærri sparisjóðir úti á landi
Framhald á bls. 19
Nú er sól hvað lægst á loftiog menn kappklæddir I noröangarranum. Menn geta þó hresst sig við tilhugs-
unina aö brátt mun sól aftur hækka á lofti, og þá verður þess ekki langt að biða að ungir pollar fari úr
úipum sinum á nýjan leik. Tímamynd — Róbert.
Bókin HAMPUR komin út:
Er í athugun hjá
ríkissaksóknara
en í bókinni eru upplýsingar um hvernig standa eigi að hassrækt
FRI — Nýlega var gefin út bókin
HAMPUR inni/úti ræktunarleið-
beiningar.íhcnni eru nákvæmar
leiðbeiningar um hvernig fara
eigi að þvi að rækta hampjurt-
ina cn hdn er, sem kunnugt er,
notuð til framleiðslu á fikni-
efnutn. Þorsteinn Ulfar Björns-
son hefur ritað bókina en útgef-
andi cr KiM útgáfan.
Þegar bókin er opnuð blasir
við lesandanum eftirfarandi
aðvörun:
„Neysla hamps og hamps-
afurða er ólögleg á Islandi.
Hvorki höfundur né útgefandi
mæla með eða hvetja til neyslu.
Ef einhver fer eftir leiðbeining-
um þessarar bókar gerir
viðkomandi það á eigin ábyrgð.
I formála bókarinnar segir
m.a. að neysla hamps sé orðin
mikil og almenn hérlendis og er
það haft eftir yfirmanni fikni-
efnalögreglunnar að um 7000
manns séu á skrá hjá þeim.
Ennfremur segir að gera megi
ráö fyrir þvi aö heildarneysla af
kannabisefnum sé á milli 500-
750 kg á ári hérlendis.
1 samtali við Timann sagði
Guðmundur Gi'gja lögreglufull-
trúi hjá fikniefnalögreglunni að
þessi tala væri ekki rétt. Megin-
hluti þeirra sem á skrá væru h já
þeim væru á aldrinum 18-30 ára
og væri þetta þvi afbrigðilega
há hlutfallstala.
Aðspurður sagði hann aö
bókin væri nú i athugun hjá yfir-
völdunum en ekki væri hægt að
segja til um það nú hvort gripið
yrði til einhverra aðgerða gegn
henni.
Þóröur Björnsson rikissak-
sóknari vildi ekki tjá sig um
þetta mál þar sem hann fékk
bókin’ fyrst I hendur siðdegis i
gær og var þá ekki búinn að
kynna sér efni hennar.
Rætt um að fresta Alþingi 20. des.
Ríkisstjórnin vill af-
greiða 21 mál fyrir jól
JSG — Rikisstjórnin hefur scnt
formönnum allra þingflokka
lista yfir 21 mál, sem hún óskar
eftir að vcrði afgreidd áður en
þingið fer i jólalcyfi. Enn hefur
ekki verið gert samkomulag
milli þingflokka um afgreiöslu
inála fyrir jól, cn i dag mun for-
sætisráðherra eiga fund meö
formönnum þingflokkanna til að
leita eftir samkomulagi. Nú er
rætt um að Ijúka þinghaldi
laugardaginn 20. desember, og
Framhald á bls. 19
Tefur bankaverkfallið
lánsfjáráætlun?
JSG — Fjármálaráðhcrra upp-
lýsti á Alþingi i gær að lánsfjár-
áætlun fyrir 1981 væri nú þvi sem
næst frágengin, og fátt annað en
banka verkfallið sem nú væri
skollið á gæti komið i veg fyrir að
áætlunin verði lögð fram fyrir jól.
Starfsmenn Seölabankans, sem
nú eru i verkfalli hafa jafnan lagt
hönd á gerð lánsfjáráætlana.
Fjármálaráðherra kvað ljóst
að lánsfjáráætlun lægi ekki fyrir
við aðra umræðu um fjárlög, sem
ætlunin er að fari fram n.k. föstu-
dag. Hins vegar vonaöist hann til
að áætlunin yrði lögð fram i næstu
viku, fyrir þriðju umræðu um
fjárlögin.