Tíminn - 10.12.1980, Side 10
Miðvikudagur 10. desember 1980.
Miðvikudagur 10. desember 1980.
.11
Bítillinn John Lennon myrtur:
SKEIÐ Á ENDA RUNNIÐ
Juhn Lennon, tónlistarmaður-
inn kunni, einn hinna frægu
Bitla, var myrtur fyrir utan
heimili sitt i New York i fyrra-
dag. Atburður þessi mun hafa
átt sér staö um kl. 22 að staðar-
tima.Lennon var að koma heim
úr upptökustúdiói, ásamt konu
sinni Yoko Ono, þegar maður á
þritugsaldri vatt sér að þeim og
skaut sjö skotum og munu
a.m.k. tvö þeirra hafa hæft
Lennon. Hann var i skyndingu
fluttur á Roosvelt-sjúkrahúsið i
New York, en honum varð ekki
bjargað.
Morðinginn hefur verið hand-
tekinn og er sagt að hann hafi
verið leiddur á braut meö bros á
vör. Talið er að hann sé ekki
heill á geðsmunum og að sögn
lögreglunnar i New York er
þetta ræfill, sem mun hafa haft i
hótunum við Lennon undan-
farna daga. Engin ástæöa
hefur verið gefin fyrir þessari
fólskulegu árás. Fréttin hefur
vakið mikinn óhug I Bandarikj-
unum og um allan heim, þvi
John Lennon var mjög virtur og
dáður tónlistarmaður.
Nýlega orðinn fertugur
þegar hann lést.
John Lennon var fæddur 9.
október 1940 og var þvi nýlega
orðinn fertugur þegar hann lést.
Hann var, sem kunnugt er, einn
af stofnendum ,,The Beatles”
ásamt Paul McCartney. betta
varárið 1956 og segja má að það
sem á eftir kom sé þáttur i ver-
aldarsögunni. Þeir Lennon og
McCartney mynduðu, án efa eitt
besta lagasmiða-par sem
nokkurn tima hefur starfað
saman á þessu tónlistarsviði.
Allt frá fyrstu vinsælu plötu
þeirra félaga, „Love Me Do,”
þar til þeirhættu samstarfi árið
1970 þá voru þeir sifellt að búa
til hit-lög og er talið að „The
Beatles” hafi átt i Bandarikjun-
um einum saman um 30-40 vin-
sælar plötur sem seldust i yfir
milljónum eintaka (urðu gull-
plötur). Áhrif Bitlanna voru
ekki aðeins á tónlistarsviðinu,
heldur höfðu þeir áhrif á allan
lifsstil ungs fólks á þessum
tima. Þeim er tileinkað siða
hárið og margt annað sem kom
upp á þessum tima. Þó eru áhrif
þeirra á popptónlist án efa lang-
mikilvægust og er vist óhætt að
segja að engin önnur hljóm-
sveit eða einstaklingur hefur
haft jafnmikil áhrif og þeir
höfðu. 1 fyrstu voru lög þeirra
einföld og létt rokklög og inni-
hald þeirra var ekki talið
merkilegt hvað textagerð
snerti. En smátt og smátt
þróuðust þeir frá þessum „bop-
bop-sha-do wop” stil . yfir i
margar gerðir af fallegum ball-
öðum, ástarsöngvum og siðast
en .'kki sist texta sem fjölluðu
um þjóðfélagsleg vandamál.
Um leið og þetta átti sér staö
þróaðist tónlist þeirra einnig og
útsetningar urðu vandaðri og
allur flutningur á efninu.
Hápunkti sinum hafa þeirsenni-
lega náð með plötunni „Sgt.
Pepper’s Lonely Hearts Club
Band” og hún hefur hvað mest-
an þátt átt i' þvi að staðfesta þá
sem listamenn.
Yoko haföi gífurleg áhrif
á John.
Sem einn af stofnendum
hljómsveitarinnar og aðaldrif-
fjöður hennar bar ávallt mikið á
John Lennon. Hann var af, það
sem Bretar jafnan kalla
„middle class” stétt. Hegðun
hans og látbragð gaf i skyn
mjög sjálfstæðan einstakling
sem hafði skoðanir á öllu og var
nok sama hvað aðrir héldu um
hann. Mörg af tilsvörum hans
voru hreinustu gullkorn og má
sem dæmi nefna að eitt sinn er
„The Beatles” voru að leika
fyrir drottningu Bretlands i
Royal Albert Hall, þá sagði
Lennon: „biðsem sitjið í ódýrri
sætunum, klappið höndunum,.
Þið sem sitjið i þeim dýrari,
hristið skartgripina”. Og af
öðru tilefni „People think the
Beatles know what’s going on.
We don’t. We’re just doing it.”
Hann var löngum þeirra óstýr-
látastur og það átti vel við hann
að fara i tónleikaferðalög. Þess
vegnagerðisthannleiður þegar
Bitlarnir hættu að fara i tón-
leikaferðalög.
Það hallaði raunar aldrei
undan fæti hjá Bitlunum, þeir
bara hættu að geta starfað
saman. Sami „standard” hélst
hjá þeim allt til hins siðasta og
aldrei voru þeir uppiskroppa
með hugmyndir sem sést best á
þvi, að eitt af siðustu vinsælum
lögum þeirra var „Something”
eftir Georg Harrison, sem hafði
ekki haft tækifæri til að njóta sin
fram að þessu. Eftir að „The
Beatles” voru lagðir niður héldu
þeir hver i sina áttina. Á siðustu
árum samstarfs þeirra Pauls
og John bar á töluverðri streitu
milli þeirra vegna þess að John
hafði tekið saman við japanska
konu að nafni Yoko Ono. Hún
átti eftir að hafa gifurleg áhrif á
John Lennon. Ekki aðeins sem
eiginkona og vinur heldur einnig
tónlistarlega séð. Þau tvö
hrundu af stað friðarhreyfingu
oglétuekkerttækifæriónotað til
að hvetja fólk til að lifa saman i
sátt og samlyndi.
A þessum árum komu fram
lög eins og „Give Peace a
Chance” „We shall overcome”
„Happ X-mas, War is over”. Til
þess að leggja aukna áherslu á
þetta baráttumál sitt stóöu þau
fyrir alls konar uppákomum,
t.d. lögðust þau i rúmið i heila
viku. Þau voru óþreytandi við
að berjast gegn óréttlætinu i
heiminum og létu sig varða hin
ólikustu vandamál. Kúgun kon-
unnar „Woman is the Nigger of
the World”, vandamálið i
Norður-lrlandi „The Luck of the
Irish” og fleira i þessum dúr.
Baráttan um dvalarleyfiö
i USA.
John var afkastamikill fyrstu
árin eftir skilnaðinn við Bitlana
og gaf út þó nokkrar plötur sem
sýndu það og sönnuðu að hann
var listamaður af hæstu gráðu
og að hann hafði auk þess sitt-
hvað að segja heiminum. John
stóð á sinum tima i miklu striði
við yfirvöld i Bandarikjunum.
Hann sótti um að fá dvalarleyfi,
en þau vildu ekki veita honum
það vegna þess að hann hafði
einhvern timan verið tekinn
með eiturlyf i fórum sinum.
Loks eftir fjögurra ára baráttu
tókst honum það og honum var
veitt dvalarleyfi. Þetta var árið
1975 og þá lét hann sig svo að
segja hverfa. Þau hjónin skiptu
um hlutverk. Hann skyldi vera
heima og sinna ungum syni
þeirra, Sean, á meðan hún sæi
um fjármál þeirra hjóna.
Þannig gekk lifið sinn vanagang
i fimm ár eða þar til þau
ákváðu að gefa út plötu þá sem
nú er nýkomin á markaðinn.
Hún ber heitið „Double
Fantasy” og hefur að geyma
jafnmörg lög eftir hvort þeirra
hjóna. Undirtitill plötunnar er
„A heart play” og er það viðeig-
andi þvi að á þessari plötu er að
finna ástarjátningar þeirra
hvors i annars garð og til sonar
þeirra. Ekki fékk John að njóta
ávaxta af þessu samstarfi
þeirra hjóna nema i stuttan
tima þvi örlögin gripu inn i.
Tónlist Lennons mun ekki
gleymast.
Friðarsinninn John Lennon
féll fyrir vopni. Alla sina ævi
barðist hann gegn ofbeldi og ó-
réttlæti. Sú lifsskoðun hans kom
vel fram i þeim orðum sem
hann lét hafa eftir sér er hann
og hinir Bitlarnir fengu orðu hjá
Bretadrottningu.: „Allt það fólk
sem kvartaði yfir þvi að við
hefðum fengið þessa orðu fékk
sina orðu fyrir hugrekki i striði
— fyrir að drepa fólk. Við feng-
um okkar fyrir að skemmta
öðru fólki. Ég held þvi fram að
við áttum hana betur skilið, ertu
ekki sammála?”.
Framhald á bls. 19.
Bitlarnir stiga sin fyrstú skrel
Hollandi og öðrum Evrópulönd-
am.
„Frumstæðar” fisk-
veiðar arðbærar?
Það er ávallt mikiö skrifaö i
erlend blöð um nýjungar og
nýja véltækni I fiskiveiöum og
fiskiðnaði. Minna er rætt um
„frumstæðar” veiðiaðferðir,
sem þó skipta verulegu máli i
baráttunni gegn hungri i heim-
inum.
Fátækar þjóðir geta ekki
keypt sjávarafurðir frá fiskiðn-
rikjunum. Afurðirnar eru of
dýrarog ekkier til aðstaða til að
dreifa eða geyma niöurlagðar,
eða frystar sjávarafuröir. Það
verður þvi að leysa prótein-
vandamálin með öðrum hætti.
Nú eru menn farnir aö lita
öðrum augum á „frumstæöar”
veiðiaðferðir og freistast til
þess að þróa þær og gera þær
arðbærari. Kosturinn viö þessar
veiðiaðferðir er m.a. sá að
Hfrikið við strendurnar er ekki i
þeim háska, sem háþróuð 'veiði-
tæki geta valdið. Hin einföldu
tæki vernda gegn rányrkju og
röskun i lifrikinu.
Vaxandi fólksfjölgun i þró-
unarlöndunum kallar þó á
aukna fæðuöflun úr hafinu, og
margháttaöar hugmyndir eru i
gangi um það hvernig leysa
megi vandann.
Það er mótsagnakennt t.d. I
meira lagi, aö meðan útflutn-
ingur á rækju frá Indlandi er
mjög arðbær atvinnugrein, þá
þjást milljónir manna þar af
hungri, þvi efnahagurinn leyfir
ekki fiskkaup frá fjármagns-
frekum fiskiönaði Indlands.
Rækjan fer þvi, ásamt öðrum
fiski, á yfirhlaðið matborð iðn-
rikjanna i Evrópu og Ameriku.
Alþjóðastofnanir leita þvf
stöðugt nýrra leiða til að nýta
gæöi sjávarins með litlum til-
kostnaði, þannig að unnt sé að
seöja hungur milljóna manna,
sem aldrei hefði ráð á að kaupa
togarafisk, eöa flök fró frysti-
húsum.
JG.
Hollend-
Afrikubúi meðfrumstætt netsitt. Þótt ekki sé veiðitæki hans merkilegt á Islenska vlsu, er þessi fiskimaður þó
öflugri liðsmaður I baráttunni gegn hungri en „sto’ru” fiskveiðiþjóðirnar, sem ráöa yfir nýtisku skipum og
fiskiðjuverum.
Hollenskur dragnótabátur heldur til veiöa. Þetta er einn af sex togbátum sem Hollendingar hafa breytt
I dragnótabáta, til þess aöspara oliuvörur.
ingar f ara
aftur á
dragnót
Svo viröist sem þróun fisk-
veiðimála, ef hafréttarmál eru
undanskilin, beinist I þá átt að
draga sem mest úr orkufrekum
fiskveiðum. Togveiöar eru dýr-
ar og þrengt hefur verið aö veið-
um úthafstogara, og á þeim
miðum er standa til boða í
Evrópu, er naumast nægan afla
að fá.
Fiskimenn og útgerðarmenn
gera félagslegar kröfur vilja fá
ódýrara eldsneyti, eöa niður-
greitt, en yfirvöld eru treg.
Hætta togveiðum og
fara á dragnót.
Nýlega var frá þvi skýrt, aö
hollenskir bátaútgerðarmenn
væru að breyta togbátum i
dragnótabáta og fengu þeir
fjárstyrk frá yfirvöldum vegna
þess arna. Alls munu sex bátar
ný fara á dragnót, en þeir voru
áður „siðutogarar.”
Er þetta gert vegna oliu-
kreppunnar, enmun minni olia
fer til dragnótaveiða en tog-
veiöa.
Dragnótaveiðar eru þó ekki
algjör nýjung I Hollandi, þvi
hollenskir dragnótabátar voru
til fyrir siðari heimstyrjöldina.
Þessirbátarsem nú hefja drag-
nótaveiöar eru mjög vel búnir,
þannig að aðeins 3 manna áhöfn
er á bátunum.
Dragreipavindurnar eru
smiöaðar I Danmörku, þar sem
þessi veiðiaöferð er og hefur
verið i fullu gildi, en auk þess
eru önnur hjálpartæki, sem áð-
ur voru óþekkt á dragnótaveið-
um, svo sem vökvadrifinn krani
og kraftblökk.
Dragnótin er ekki sérlega vel
liðiö veiðarfæri á tslandsmið-
um, en fróölegt væri að vita,
hvort þessi breyttu viðhorf,
gætu ekki haft þýöingu hér viö
land, þar eð útgerðin hér á ekki
við minnioliuvanda að etja, en i
Skortur á svfna-
kjöti og eggj-
um fyrir jól?
AB — Eins og fram hefur koinið I
fréttum siðustu daga þá blasir við
að svinakjöt sc á þrotum á
markaðnuin og Utlit er fyrir að
ekki takist að fullnægja eftir-
spurn fyrir jólahátiðina.
Þá vofir einnig yi'ir skortur á
eggjum og hefur verð þeirra að
undanförnu stórhækkað m.a.
vegna fóðurbætisskattsins. Þar
spilar einnig inn i minnkað fram-
boð á eggjum og þaö að margir
virðast hamstra egg nú i jóla-
mánuðinum.
Þetta og margt fleira kom fram
i kynnisferð sem Verslunarráð Is-
lands bauð fréttamönnum til i
gær. Heimsóti var svi'nabú Krist-
ins Sveinssonar að Hamri i Mos-
fellssveit, svo og aliíuglaslátur-
hús Isfugls i Mosfellssveit og að
lokum hænsnabúiö að Vallá,
Kjalarnesi.
Nánar verður greint frá ferð
þessari i blaðinu á morgun.
Flúormagn í heyi meira en talið
hafði verið.
„Ætti ekki að
koma að sök”
segir Páll Agnar Pálsson yfirdýralæknir
„Mælingar á flúormagni i bein-
um Ur sláturlömbum af öskufalls-
svæðunum, sem tekin voru til
rannsóknar i liaust, sýna að bein-
in hafa tekið til sin verulegt flúor-
magn á öskumenguðu landi. Bú-
ast má við, að eitthvað muni bera
á tannskemmdum i skepnum sem
eru að taka Ut vöxt á þessum
svæðu m.
Áriðandi er að tryggja öllu búfé
á öskufallssvæðinu næga stein-
efnagjöf i vetur.
Komið hefur i ljós, að verulegt
öskumagn hefur borist i hlöður
með öskumenguðu heyi. Flúor-
magn i sliku heyi er svo hátt, að
varastber aðgefa þaö ungviöi, og
helst ætti ekki að fóðra annað bú-
fé á þvi eingöngu.”
Svosegir i fréttatilkynningu frá
samstarfsnefnd rannsóknastofn-
ana um ílúormælingar vegna
Heklugoss i ágúst i sumar.
Vegna þessarar fréttar sneri
Timinn sér til Páls Agnars Páls-
sonar yfirdýralæknis og spurði
hann hvaða áhrif f lúormagn þetta
i heyi gæti haft á sauðfénaðinn.
„Það sem hefur gerst þarna á
þessu svæði fyrir norðan er að
miklu meira magn af ösku hefur
fylgt heyinu inn i hlöðurnar en við
bjuggumst við. Þvi gerist það að
þegar heyin eru mæld núna þá
koma út miklu hærri gildi en
gerðist við mælingar i sumar og
haust. En sem betur fer er það
aðeins hluti heysins á þessum
svæðum sem svona er ástatt um.
A flestum stöðum verður hægt að
Framhald á bls. 19.
Islensk-ameriska félagið gefur út blað:
GDSTDR”
1. tölublað 1. árg.
gefið út i Los Angeles 22. nóv. s.l.
BSt — Blað með Islenska nafninu
„Gustur” var gefið Ut laugardag-
inn 22. nóvember sl. i Los Ange-
les. Undir fyrirsögninni segir að
þetta sé eina isienska dagblaðið
sem sé prentað I Bandarikjunum
(þaðer reyndar prentað á ensku)
siðan segir: lst Edition (1. Ut-
gáfa) Number 1. (nr. 1)
I blaðhausnum segir að Gust-
ur komi út ársfjórðungslega og sé
gefið út af lslensk-ameriska
félaginu I Los Angeles i Kali-
forniu. Ritst jóri blaðsins er Jakob
Magnússon, gjaldkeri Sigurjón
Sighvatsson og einnig standa að
útgáfu blaðsins, þeir Valdimar
Hrafnsson, Sveinn Thordarson og
Vilhjálmur Egilson.
Ýmsar fréttir i stuttu máli frá
íslandi eru i blaðinu og sagt er frá
félagslifi i Islensk-ameriska
félaginu og frá hátiðum á vegum
þess. Nokkrar myndir eru i
blaðinu, þar á meðal mynd frá
keppninni um „Ungfrú Holly-
wood” i Reykjavik og mynd frá
17. júni-hátiðarhöldum i Kali-
forniu.
«!»m* mtsnuí*tm
kntfkmtiíe öf<S€>hic
Motnw
Cc~Art aoitetty
ním Wt-u
íb LJL
>*** ■#*> ■» *)» :
»f »» *. iS»f.
ix&S^Msííí'. íXSUc'.CWKx'jgw
>*■■• y/. * ■&. :
: ( rl* X<x-:S(.v5
Á forsíðu er mynd sem tekin er á Austurvelli I Reykjavik. ,,Jólin
koma". Myndina tók Anna Björnsdóttir og sést þar fólk sem dansar
i kring um jólatréð á Austurvelli klukkan 3 um nótt eftir að hafa ver-
iðaðskemmta sér á Hótel Borg,sem séstibaksýn.