Tíminn - 23.12.1980, Side 1
.Slðumúla 15 • Póalhólf 3^0 • Jleykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392
Lokágerð fjárlaganna:
Svígrtun tíl skattahrfivtinga
JSG — í hinum endanlegu fjár-
lögum fyrir áriö 1981, sem sam-
þykkt voru á Alþingi sföastliö-
inn laugardag, feist fjöldi
breytinga frá upphaflegu fjár-
lagafrumvarpi. Flestar þessar
breytingar eiga það sameigin-
legt aö horfa til hækkunar.
Þannig hækkaöi tekjuhliö fjár-
lagafrumvarpsins samtals um
17,9 milljaröa í meðferð þings-
ins en gjaldahliöin um 19,3 mill-
jaröa.
Niðurstöðutölur fjárlaganna
eru þær, að heildartekjur eru
551,5 milljarðar en heildargjöld
545,8 milljarðar. Rekstraraf-
gangur er þvi 5,7 milljarðar
króna sem er nær 1,5 milljarði
minni afgangur en var i upphaf-
lega framvarpinu. Séu lána-
hreyfingar teknar með, þá kem-
ur i ljós að greiðsluafgangur
fjárlaganna er 2,7 milljarðar
króna.
Ef litið er á breytingar sem
urðu á tekjuhlið fjárlagafrum-
varpsins þá er stærst þeirra
hækkun á tekjuskatti einstak-
linga um 4,9 milljarða. Tekju-
skattsálagningin er við það
miðuð að skattvisitala hækki
um 45%, og þar með t.d. skatta-
þrep og verði 146 stig. Hins veg-
ar er talið að tekjubreyting milli
áranna 1979 og 1980 verði að
minnsta kosti 51% og e.t.v. 52
eða 53%. Þessi mismunur á
skattvisitölu og tekjubreytingu
leiðir af sér tiltölulega meiri
skattheimtu en þá er miðaði við
óbreytt álagningakerfi.
Þar með er ekki öll sagan
sögð. Þess konar álagning
myndi gefa af sér nokkru meiri
tekjur en hin endanlega fjár-
lagatala segir til um. Þvi er
beinlinis gertráð fyrir svigrúmi
til breytinga á skattalögunum,
til þess að létta skattbyrði ein-
stakra tekju eða félagshópa.
Fyrir utan breytingar á
álagningakerfinu sjálfu s.s.
lækkun álagningahlutfalla
koma til greina breytingar á
skattlagningu einstæðra for-
eldra,einstaklinga i sjálfstæðum
atvinnurekstri, svo eitthvað sé
nefnt.
Verði breytingar sem þessar
settar i samband við viðtækari
efnahagsaðgerðir, þá er ekki úr
vegi að minna á að i fjárlaga-
frumvarpinu er enn 11 milljarða
gjaldaliður sem ætlað er að
standa undir efnahagsað-
gerðum. Sá liður var lækkaður
um 1 milljarð i þinginu, en mill-
jarðurinn er færður til nýsam-
þykkts fæðingarorlofs.
Övfst að
talningu
ljúkl fyr-
irjól,
í atkvæðagreiðslu
bankamanna
AB — t gær i eftirmiödaginn
höföu atkvæöi aðeins borist frá
liðlega heimingi kjörstaöa i at-
kvæöagreiöslu bankastarfs-
manna um nýgeröan kjara-
samning. Aö sögn Vilhelms G.
Kristinssonar framkvæmda-
stjóra Sambands islenskra
bankamanna þá hömluðu sam-
gönguerfiöleikar þvi aö skrifstofu
StB bærust kjörgögn. Þó sagöist
Vilhelm enn vonast til þess aö
þeir hjá SÍB gætu talið atkvæöin
fyrir hádegi á morgun, aöfanga-
dag.
Vilhelm sagðist ekki vita ná-
kvæmlega hversu mikil þátttakan
i atkvæðagreiðslunni hefði verið
en þó átti hann ekki von á að hún
væri mikið-yfir 70%.
Vilhelm taldi það mjög liklegt
að samningurinn yrði samþykkt-
ur og sagðist hann draga þá
ályktun af viðbrögðum þeim er
bankastarfsmenn hefðu sýnt á
kynningarfundum.
Vestfirðir:
500 manns
bíða eft-
ir flugi
AM — Innanlandsflug
gekk bærilega i gær,
þótt ekki væru tök á að
fljúga til Vestfjarða, þar
sem vindur i fjallahæð
hamlaði aðflugi að sögn
Péturs Maack, af-
greiðslustjóra innan-
landsflugs Flugleiða.
Flognar voru i gær fimm ferðir
til Akureyrar tvær til Egilsstaða
tvær á Sauðárkrók ein á Horna-
fjörð, Húsavik og Vestmannaeyj-
ar og tvær ferðir með vörur til
Egilsstaða og ein á Húsavik. Stóð
vöruflugið fram á nótt.
Ekki blæs byrlega fyrir flug á
Vestfirði i dag samkvæmt veður-
spá i gærkvöldi en nú biða á
þriðja hundrað manns eftir ferð
þangað og um tvö hundruð vestra
vilja komast suður.
Gullrúsinan
seld í dag
AM — Nú hafa verðlags-
yfirvöld fyrirboðið Ás-
geiri Hannesi Eirikssyni
að fela gullrúsinuna
frægu i „pylsuendan-
um” á einni af pylsum
Pylsuvagnsins við
Austurstræti og þegar
við ræddum við Ásgeir
sagði hann okkur að bú-
ið væri að spretta upp
megninu af þeim 100
pyisum, sem jafna átti
niður á dagana fram til
jóla og finna gripinn.
Að vandlega athuguðu máii
hefur Ásgeir ákveðið að pylsan
verði boðin upp i dag á Lækjar-
torgi eða i Austurstræti og and-
virði hennar varið til þess að
gleðja útigangsmenn sem gjarna
eru á ferli i grennd við Pylsu-
vagninn sem kunnugt er. Verð-
mæti gullrúsinunnar er ekki undir
hálfri milljón króna og er að vona
að vel verði boðið i gripinn sem
smiðaðurer af mesta hagleik hjá
Gull og silfur á Laugaveginum.
Uppboðstiminn verður auglýstur
nánar i dag.
AB —Ekkier aö efa þaö aö hinir
fjölmörgu gestir sem hlýddu á
Langholtskirkjukórinn syngja
undir stjórn Jóns Stefánssonar
sl. föstudagskvöld hafi komist i
hátföarskap. Kórinn söng i
kirkjuskipi sinu, en þaö komst
undir þak I nóvember sl. Kirkju-
skipiö var upplýst meö kyndlum
og aö sögn fróöra manna var
hijómurinn einstakiega falleg-
ur, enda mun kórinn hugsa gott
tU glóöarinnar aö fá aö syngja
reglulega á þessum staö I fram-
tlöinni, svo er hljómburöurinn
góöur. Þess veröur vonandi ekki
Iangt aö bföa aö kórmeölimir
geti sungið fullum hálsi á þess-
um staö, án þess aö þurfa aö
diiöa sig 1 kuldaflikur, eins og
þeir þurftu aö gera á föstudags-
kvöldið.
Timamynd —G.E.