Fréttablaðið - 02.08.2007, Page 6

Fréttablaðið - 02.08.2007, Page 6
 Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra fagnar því að Þjóðarpúls Gallup sýni að meirihluti þjóðarinnar styðji ákvörðun ríkisstjórnarinnar um niðurskurð aflaheimilda. „Þessi ákvörðun var auðvitað mjög erfið og þess vegna þykir mér óneitanlega mjög vænt um að finna þennan mikla stuðning þjóð- arinnar,“ segir Einar. 55 prósent aðspurðra sögðust styðja ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar, en 37 prósent voru andvíg. „Ef við undanskiljum þá sem ekki taka afstöðu er stuðningurinn við þessa ákvörðun ennþá meiri og óhætt að segja að þjóðin sýni þessari erfiðu ákvörðun mikinn skilning,“ segir Einar. Í könnuninni kom einnig fram að eingöngu fimmtán prósent landsmanna styðji núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi. „Þetta kemur mér ekki á óvart,“ segir Einar. „Umræðan um sjávarút- veginn hefur farið mikið fram í skugga yfirvofandi aflasamdrátt- ar og framsals aflaheimilda úr sjávarbyggðum.“ Einar bendir jafnframt á að fáir aðspurðra hafi getað bent á ein- staka aðfinnsluverð atriði. „Ég leyfi mér að draga þá ályktun að þó fólki finnist sitt hvað athuga- vert við núverandi kvótakerfi hafi það ekki klárar hugmyndir um hvernig hlutirnir mættu fara betur,“ segir Einar. Vænt um að finna stuðning Flýta þarf fram- kvæmdum við gerð ferjuhafnar í Bakkafjöru og smíði nýs Herjólfs svo hægt verði að hefja siglingar milli Eyja og Bakka árið 2009. Þetta kemur fram í ályktun bæjar- ráðs Vestmannaeyjabæjar frá því á þriðjudag. Samkvæmt sam- gönguáætlun á ferjulægið í Bakka- fjöru að vera tilbúið árið 2010. „Það eru vissulega vonbrigði að ekki skuli að svo stöddu unnið að framgangi jarðganga hingað til Vestmannaeyja. Nú er komin upp ný staða. Í ljósi þessarar nýju stöðu er það mat bæjarstjórnar allrar að sigling Herjólfs í Bakka- fjöru verði samgöngum til Vest- mannaeyja mest til framdráttar,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri. „Þá höfum við lýst þeim vilja okkar að þessum framkvæmdum verði flýtt eins og kostur er svo hægt verði að hefja siglingar árið 2009,“ bætir hann við. „Það er algjörlega ljóst að við munum aldrei una við annað en að siglingar Herjólfs verði skil- greindar sem þjóðvegasamgöngur og þjónustu og verðlagningu verði hagað í samræmi við það. Það er því ljóst að baráttan fyrir bættum samgöngum heldur áfram.“ Vill flýta framkvæmdum Stjórn- völd í Danmörku, Frakklandi og Indónesíu buðust í gær til að taka þátt í friðargæslu í Darfúrhéraði í Súdan. Á þriðjudaginn samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna einróma að senda þangað, í sam- vinnu við Afríkubandalagið, 26 þúsund manna friðargæslulið. Erfitt gæti reynst að manna svo stórt friðargæslulið, sem yrði það fjölmennasta í sögunni. Hersveitir margra ríkja eru nú þegar önnum kafnar víða um heim, ýmist við friðargæslu eða beinlínis í hernað- arátökum, meðal annars í Írak og Afganistan. Nú eru til dæmis 7.100 breskir hermenn í Afganistan og 5.500 í Írak. Talskona í breska utanríkis- ráðuneytinu, sem vildi þó ekki láta nafns síns getið, fullyrti að Bretar myndu ekki senda hermenn með byssur og skriðdreka til Darfúr. Meira en 200 þúsund manns hafa tapað lífinu í átökunum í Darfúr, sem hófust árið 2003. Átökin hafa einnig valdið því að tvær og hálf milljón manna hafa flúið að heim- an. Átökin hófust í febrúar árið 2003 þegar ættbálkar heimamanna í héraðinu gerðu uppreisn gegn stjórninni og sökuðu hana um að hafa vanrækt íbúa héraðsins og mismunað þeim áratugum saman. Stjórnin hefur einnig verið sökuð um að hafa hefnt sín á heimamönn- um með því að styðja arabískar vígasveitir til árása gegn þeim. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að 26 þúsund manna friðargæslulið verði komið til Darfúrhéraðs fyrir árslok. Fyrir er í héraðinu sjö þúsund manna friðargæslulið frá Afríku- bandalaginu, sem verður hluti af nýju gæslusveitunum. Ætlunin er að nýja liðið verði að mestu skipað fólki frá Afríku. Vitað er að stjórnvöld í Nígeríu eru reiðubúin að senda 700 hermenn til viðbótar þeim 2.000 Nígeríumönnum, sem fyrir eru í héraðinu. Styrkur herliðsins fer þó algerlega eftir því hve langt auðug ríki eru reiðubúin til að ganga í að senda herlið, lögreglumenn, herbúnað og annan stuðning til Darfúr. „Sannleikurinn er sá að fá stór ríki hafa það mikilla hagsmuna að gæta að þau séu reiðubúin að taka þá áhættu að fara inn í ástand eins og þetta – sem er afar flókið og mjög erfitt viðureignar – án þess að hafa minnstu hugmynd um pólitíska lausn sem gæti gert það mögulegt að ákveða hvenær aðgerðunum mun ljúka,“ segir Dominique David, framkvæmda- stjóri franskrar hugmyndaveitu um alþjóðastjórnmál. Hann segist nokkuð viss um að meirihluti liðsmanna hins væntan- lega friðargæsluliðs í Darfúr muni koma frá Asíuríkjum. Erfitt gæti orðið að manna lið í Darfúr Danir, Frakkar og Indónesar hafa boðist til þess að senda liðssveitir til friðargæslu í Darfúrhéraði. Bretar og fleiri þjóðir eiga þó erfitt með að taka þátt vegna þess hve margir eru bundnir í verkefnum í Afganistan, Írak og víðar. Tæplega fertugur maður í Bandaríkjunum fékk málið á ný eftir að hafa árum saman einungis getað tjáð sig með takmörkuðum augnhreyfingum og þumalfingurshreyfingum. Læknum tókst að koma örvandi rafskautum fyrir í heila mannsins, þannig að nú getur hann talað, tuggið og kyngt þannig að ekki þarf að gefa honum næringu í æð. Maðurinn varð fyrir alvarlegum heilaskemmdum eftir að hafa orðið fyrir árás fyrir sex árum og hefur legið að mestu rænulaus á sjúkrahúsi síðan. Hann er enn alvarlega lamaður og þarf á mikilli aðhlynningu að halda. Lamaður fær málið á ný Hlustar þú á Megas? Á að hætta að birta opinberlega álagningarskrár skattstjóra? N1 BÍLAÞJÓNUSTA SÆKTU UM VIÐSKIPTA- OGSAFNKORT Á WWW.N1.IS ER BÍLLINN KLÁR Í FRÍIÐ? ALLT A Ð 10% A FSLÁTT UR! Safnko rtshafa r fá 3% afslátt í form i punk ta. Viðskip takorts hafar f á 7% a fslátt, auk 3% í form i Safnk orts- punkta – sam tals 10% af slátt. Láttu smyrja bílinn og athuga hjólbarðana hjá Hjól- barðaþjónustu N1 og farðu áhyggjulaus í sumarfríið. Réttarhálsi 2, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 587 5588 Fellsmúla 24, Rvík, hjólbarðaþjónusta 530 5700 Fellsmúla 24, Rvík, smurþjónusta 530 5710 Ægisíðu 102, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 552 3470 Langatanga 1a, Mosfellsbæ, hjólbarða- og smurþj. 566 8188 Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði, hjólbarðaþjónusta 555 1538 Dalbraut 14, Akranesi, hjólbarðaþjónusta 431 1777 Tryggvabraut, Akureyri, smurþjónusta 462 1080 Piltur ætlaði að koma sér undan hraðaksturssekt lögreglunnar á Selfossi á þriðju- dagskvöld með því að stinga af en fær í staðinn hærri sekt. Pilturinn, sem er á átjánda ári, ók á 126 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Þegar lögregla kom á vettvang hljóp hann út úr bílnum og faldi sig bak við runna. Hann á nú von á sektum vegna hraðakstursins og fyrir að reyna að stinga af. Hann missir að líkindum prófið vegna fjölda punkta í ökuferilsskrá. Faldi sig í runna

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.