Fréttablaðið - 02.08.2007, Síða 16
hagur heimilanna
Jóhanna Daðadóttir handverks-
kona gefur góð ráð um hvernig halda
á blómum á lífi.
Ungbarnasundnámskeið voru góð kaup
Tjaldvögnum, fellihýsum og
hjólhýsum fjölgar stöðugt
og dýrir vagnar seljast nú
sem aldrei fyrr. Á flest-
um tjaldsvæðum landsins
greiða menn sama gjald
fyrir nóttina hvort sem
gist er í litlu kúlutjaldi eða
stærðarinnar hjólhýsi. Það
þykir mörgum ósanngjarnt.
Yfirleitt kostar nótt á tjaldsvæði
á bilinu 700 til 800 krónur. Tungu-
dalur við Ísafjörð er eitt fárra
stórra tjaldsvæða þar sem gestir
borga minna fyrir gistingu í tjaldi
en gistingu í tjaldvagni eða felli-
hýsi.
„Við fengum mikið af kvörtun-
um frá fólki sem þótti ósann-
gjarnt að allir borguðu það sama
svo við brugðum á það ráð að
lækka gjaldið fyrir tjöldin,“ segir
Davíð H. Barðason, einn umsjón-
armanna tjaldsvæðisins.
Sala á eftirvögnum heldur
áfram að aukast á milli ára og á
sumum tjaldsvæðum, til dæmis á
Akureyri og í Reykjavík, eru það
nánast eingöngu útlendingar sem
sofa í tjöldum.
„Íslendingar kjósa þægindi,“
segir Gunnar Jónsson, sölustjóri
Tjaldvagnalands hjá Seglagerð-
inni Ægi. Hann segir að salan hafi
verið gríðarmikil í ár og vagn-
arnir verði sífellt stærri. „Aukn-
ingin er mest í sölu á hjólhýsum
og fellihýsum en sala á tjaldvögn-
um dregst saman. Aukningin er
því mest í dýru vögnunum en
hjólhýsi getur kostað á fimmtu
milljón,“ segir Gunnar sem telur
eðlilegt að þeir sem ferðist með
slíka vagna borgi meira fyrir
gistingu en þeir sem eru með lítil
tjöld.
Á Blönduósi var lengi vel ódýr-
ara að sofa í tjaldi en í eftirvagni
en því hefur nú verið breytt.
„Okkur þótti eðlilegra að hafa
bara sama gjald fyrir alla. Þótt
tjöldin taki minna pláss þá er það
oft þannig að tjaldbúar nýta sér
frekar þjónustu tjaldsvæðisins,“
segir Heiðar Óskarsson, umsjón-
armaður tjaldsvæðisins á Blöndu-
ósi. Hann segir að ekki hafi verið
mikið kvartað vegna þessa.
Sigríður Snorradóttir, umsjón-
armaður tjaldsvæðisins í Húsa-
felli, tekur í sama streng og segir
að það borgi sig að hafa verð-
skrána sem einfaldasta. „Tjald-
svæðið hefur náttúrlega minnkað
um helming því hver eining tekur
alltaf meira og meira pláss,“
segir Sigríður og bætir því við að
þótt fólk sé með dýran og stóran
útbúnað sé það yfirleitt ekki til-
búið til þess að borga meira fyrir
þjónustuna.
Sama gjald fyrir
tjöld og hjólhýsi
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna frá Miele
AFSLÁTTUR
30%
Miele gæði
ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900