Fréttablaðið - 02.08.2007, Side 22
[Hlutabréf] Peningaskápurinn ...
FL Group ætlar sér að auka vægi
óskráðra fjárfestinga (private
equity) á komandi misserum og
taka þátt í afskráningum fyrir-
tækja af mörkuðum. Þetta kom
fram í máli Hannesar Smárason-
ar, forstjóra FL, á kynningar-
fundi félagsins í gær.
Félagið hefur farið í vaxandi
mæli inn í slíkar fjárfestingar,
eins og í orkugeiranum í gegnum
43 prósenta hlut sinn í Geysi
Green Energy. Geysir eignaðist
Jarðboranir að fullu í gær og
festi kaup á 32 prósenta hlut í
Hitaveitu Suðurnesja á dögun-
um. Þá hefur Refresco, hollenski
drykkjarvöruframleiðandinn,
sem FL á tæpan helming í, lokið
við fjórar yfirtökur á árinu.
Hannes telur ljóst að virði
Refresco hafi aukist verulega en
félagið er bókfært á upphaflegu
kaupvirði, um fimm milljörðum
króna. Markmiðið er að þrefalda
stærð fyrirtækisins á næstu 2-3
árum.
FL hagnaðist um rúma átta
milljarða króna á öðrum árs-
fjórðungi og um alls 23 milljarða
króna á fyrri hluta ársins. Þetta
er besti fyrri árshelmingurinn í
sögu félagsins, fjórfalt meiri
hagnaður en á sama tíma í fyrra.
Arðsemi eigin fjár var 22 pró-
sent á öðrum ársfjórðungi.
„Við sáum mikinn vöxt fjár-
festingartekna sem stærri efna-
hagsreikningur og aukin umsvif
endurspegla,“ segir Hannes.
Tekjur annars fjórðungs námu
9,1 milljarði króna en rekstrar-
gjöld rúmum einum milljarði
króna.
Eignir félagsins stóðu í 319,6
milljörðum króna í júnílok og
höfðu vaxið um tæpan fjórðung
frá ársbyrjun. Var eiginfjárhlut-
fall tæp 47 prósent. Fimm
stærstu eignarhlutir félagsins
námu 271 milljarði króna en þeir
stærstu lágu annars vegar í fjár-
málafyrirtækjunum Glitni og
Commerzbank og hins vegar í
AMR, móðurfélagi American
Airlines. „Okkur líður mjög vel
með stærðina á efnahagsreikn-
ingnum eins og er. Við getum
augljóslega stækkað hann
umtalsvert ef við viljum, en
viljum líka halda háu eiginfjár-
hlutfalli.“ Handbært fé félagsins
var 31 milljarður króna í lok júní
og með því að nýta lánalínur er
fjárfestingargeta FL um 70
milljarðar að öllu óbreyttu.
„Við horfum til þess að hlut-
irnir geti gengið vel á seinni árs-
helmingi. Það eru hins vegar
miklar sveiflur á mörkuðunum
eins og er en við teljum að þeir
muni róast,“ segir Hannes spurð-
ur um útlitið fram undan.
Horfa til óskráðra fjárfestinga
Afkoma FL Group á fyrri hluta ársins er fjórfalt betri en á sama tímabili í fyrra. Félagið hagnast um átta
milljarða króna á öðrum ársfjórðungi. Árshelmingurinn er sá besti í sögu félagsins.
365 hf. hefur lokið endurfjármögnun
að því er fram kemur í tilkynningu
til Kauphallar. Áætlað er að
vaxtagreiðslur félagsins lækki um
sem nemur 220 milljónum króna á
ári. Vaxtaberandi skuldir nema nú
um sjö milljörðum króna.
Viðar Þorkelsson, framkvæmda-
stjóri fjármála- og rekstrarsviðs
365, segir endurfjármögnunina í
samræmi við stefnu. Greitt var
upp tveggja milljarða lán með 17
prósenta vöxtum.
Sala á hlut í Hands Holding upp
á 1,5 milljarða var meðal annars
notuð í greiðsluna. Samhliða var
gengið frá fjármögnun hjá Lands-
bankanum upp á 3,3 milljarða og
eldri lán greidd upp.
365 skuldar sjö
milljarða króna
Velta á öllum mörkuðum OMX
kauphallarsamstæðunnar nam að
meðaltali 393,2 milljörðum króna
á dag í júlí, og jókst um sextíu og
sjö prósent sé miðað við júlí í
fyrra. Aldrei hefur mælst meiri
velta í júlímánuði.
Fjöldi viðskipta jókst um 85
prósent frá fyrra ári. Að meðal-
tali voru rúmlega hundrað sjötíu
og þrjú þúsund viðskipti fram-
kvæmd á dag í júlímánuði.
Mest viðskipti voru með bréf í
Nokia, fyrir tæplega 47 milljarða
að meðaltali á dag. Viðskipti með
bréf í Eriksson námu tæpum 31
milljarði. Actavis var í þriðja
sæti, sé miðað við umfang við-
skipta. Að meðaltali var tæplega
fjórtán milljarða velta með bréf í
félaginu í júlí. Þessi miklu við-
skipti skýrast að mestu af yfir-
töku Novators á félaginu sem
lauk í júlí.
Metvelta hjá
OMX í júlí
Hagnaður Landsbankans á öðrum
ársfjórðungi nam 12,5 milljörðum
króna eftir skatta. Það var yfir
væntingum markaðsaðila en með-
altalsspá þeirra hljóðaði upp á 9,7
milljarða króna hagnað. Á fyrstu
fyrstu sex mánuðum ársins nemur
hagnaðurinn 26,3 milljörðum
króna. Það er 29 prósentum meira
en fyrsta hálfa árið 2006. Arðsemi
eigin fjár nemur 39 prósentum.
Hreinar rekstrartekjur annars
ársfjórðungs námu 29,2 milljörð-
um króna. Á fyrstu sex mánuðum
ársins námu þær 58,6 milljörðum
króna sem er 27 prósenta aukning
frá sama tímabili í fyrra.
Innlán frá viðskiptavinum juk-
ust um 274 milljarða króna á árs-
fjórðungnum. Þar spilar Icesave-
sparnaðarleiðin í Bretlandi, sem
bankinn fór af stað með í október
síðastliðnum, stærst hlutverk.
„Við höfum fengið hundrað þús-
und viðskiptavini í gegnum þenn-
an reikning og innlánin nema nú
fimm hundruð milljörðum króna,“
segir Sigurjón. „Til samanburðar
eru innlán Landsbankans á Íslandi,
hjá einstaklingum og fyrirtækj-
um, 320 milljarðar sem safnast
hafa upp á 121 ári.“
Aukin umsvif á erlendum inn-
lánsmörkuðum hafa gert Lands-
bankann óháðari alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum en áður. „Í dag eru
alþjóðlegir fjármálamarkaðir
óstöðugir og margir erlendir bank-
ar því að lenda í sömu stöðu og við
í fyrravor. Það má því segja að það
hafi verið lán í óláni að lenda í
þessu umróti,“ segir Sigurjón.
Fjárhagslegur styrkur
Landsbankans er mikill. Heild-
areignir við lok júní námu 2.597
milljörðum króna. Eigið fé í lok
júní nam 164 milljörðum króna.
Eiginfjárhlutfallið (CAD) er 12,5
prósent og fjárfestingargetan, án
þess að til útgáfu hlutafjár þyrfti
að koma, um þrjátíu milljarðar
króna.
Innlán aukast um
500 milljarða króna
Hagnaður Landsbankans nam 12,5 milljörðum króna.