Fréttablaðið - 02.08.2007, Page 29
Dagný Rut Gísladóttir er
mjög hrifin af ævintýralegum
búningum og dramatík, en
bara á bak við tjöldin.
„Ég keypti uppáhaldskjóllinn
minn klukkutíma fyrir frumsýn-
ingu á verkinu Virkjunin í Þjóð-
leikhúsinu. Þetta var fyrsta verk-
ið sem ég vann að og það var svo
vitlaust að gera að ég rétt náði að
hlaupa niður í Rokk og rósir, þar
sem ég fann hann í svörtum
ruslapoka,“ segir Dagný Rut
Gísladóttir búningakona.
Að eigin sögn hefur hún bæði
prjónað og saumað út síðan hún
var lítil og búningastarfið því
eðlilegt framhald af því stússi.
„Ég komst inn sem aðstoðar-
manneskja fyrir tilviljun í Þjóð-
leikhúsinu og fann um leið að ég
var á réttri hillu, enda algjört
draumastarf,“ segir Dagný Rut,
sem hefur komið að fjölda sýn-
inga í Þjóðleikhúsinu og Íslensku
óperunni auk þess að sjá um bún-
inga í sjónvarpsauglýsingum.
Markmiðið er að vinna við bún-
ingahönnun í framtíðinni og þá
helst við óperu- eða leikhús. „Ég
er þegar komin inn í nám í bún-
ingahönnun í Barcelona en námið
er það dýrt að ég ætla að vinna
við þetta á meðan ég safna fyrir
skólagjöldunum. Síðan langar
mig mest til að fást við ævintýra-
lega og dramatíska búninga,“
segir Dagný Rut, sem þrífst best
á bak við tjöldin og er sjálf langt
í frá dramatísk í klæðaburði.
„Ég er mjög hrifin af hönnun
Humanoid og Marc Jacobs og hef
mjög gaman af Vivianne West-
wood. Síðan finnst mér gaman að
kíkja í verslanirnar KronKron,
Liborius og Trílogía hérna heima.
Í útlöndum finnst mér hins vegar
gaman að gramsa á mörkuðum
eða komast í einhverjar litlar
sérstakar búðir. Þá get ég alveg
gleymt mér í sömu búðinni allan
daginn enda er jafnvel að finna
fjársjóði í svörtum ruslapok-
um,“ segir Dagný Rut.
Keypti kjólinn klukku-
stund fyrir frumsýningu
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki