Fréttablaðið - 02.08.2007, Page 33

Fréttablaðið - 02.08.2007, Page 33
Öll brúðhjón sem skrá sig á brúðargjafalista hjá Tekk- Company fá litla gjöf við skráningu. Nöfn þeirra fara einnig í LUKKUKRUKKUNA sem 5 lukkuvinningar verða dregnir úr í desember; ein 150.000 kr. og fjórar 10.000 kr. úttektir í Tekk-Company. Við bjóðum ykkur að skrá ykkur á brúðargjafalista Kæru brúðhjón! Hvíta steypu er hægt að lita í öllum regnbogans litum eða hafa hana einfaldlega í sínum náttúrulega hvíta lit. „Í augum margra sem fást við mannvirkjagerð, til dæmis arki- tekta og þeirra sem telja sig hafa vit á, telst þetta vera mjög athyglis- vert,“ segir Bjarni Óskar Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Aal- borg Portland á Íslandi, sem í samstarfi við MEST sér um gerð hvítu steypunnar. „Við héldum nýlega ráðstefnu um þessa nýju steypu og vakti hún athygli við- staddra.“ Að sögn Bjarna er það hvítt sement ásamt ljósum fylliefnum sem notað er í steypuna sem veld- ur litnum. Að öðru leyti eru ein- kenni og styrkur steypunnar sá sami og í annarri hefðbundinni steypu sem Aalborg Portland á Íslandi býður viðskiptavinum sínum upp á. „Steypan er hins vegar nokkuð dýrari en sú hefðbundna og þar spilar sementið og fylliefnin aftur inn í,“ bendir Bjarni á. „En hafa ber í huga að steypan ein og sér vegur hins vegar hlutfallslega lítið í kostnaði í mannvirkjagerð. Ætli hann sé ekki innan við tíu prósent.“ Hins vegar er steypan þess eðlis að maður þarf að vanda betur til verka við notkun hennar, þar sem maður kemur væntanlega ekki til með að yfirborðsmeðhöndla steyp- una þegar steypt er með hvítu. Það hleypir verðinu eitthvað upp.“ Þegar hafa nokkur íslensk hús risið sem hvíta steypan hefur verið notuð í, þar á meðal Flens- borgarskóli. Steypan hefur síðan verið notuð í miklum mæli í ein- ingarframleiðslu, eins og til dæmis hjá Loftorku. Bjarni segir að húsunum eigi eftir að fjölga töluvert í framtíð- inni gerðum úr þessari steypu og verður spennandi að sjá útkom- una. Hvít steypa býður upp á ýmsa möguleika A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.