Fréttablaðið - 02.08.2007, Page 38

Fréttablaðið - 02.08.2007, Page 38
 2. ÁGÚST 2007 FIMMTUDAGURfréttablaðið byggingaiðnaðurinn Margir verða fyrir því óláni að kaupa köttinn í sekknum þegar þeir telja sig hafa fest kaup á draumahúsinu. Alls kyns gallar koma í ljós og fyrr en varir rýkur viðgerðarreikningurinn upp úr öllu valdi. Hægt er gera ýmislegt til að fyrirbyggja slíkt, meðal ann- ars fá ástandsmat framkvæmt á húsnæðinu. Sverrir Jóhannesson byggingar- tæknifræðingur starfar hjá Línu- hönnun, einni af mörgum verk- fræðistofum landsins sem annast ástandsmat. Hann segir mikilvægt að fá álit sérfræðinga þegar hús- félög eða fólk í fasteignahugleið- ingum vilja fá úr því skorið hvort húsnæði þarfnist endurbóta. „Við skoðum einfaldlega hvað er að húsnæðinu og hvað þurfi að gera til að koma því í gott horf,“ segir Sverrir. „Síðan er mjög mis- jafnt hvernig við metum ástandið. Yfirleitt er um sjónmat að ræða, húsið skoðað, til að sjá steypu- skemmdir og annað slíkt.“ Þegar ástandsmat er fram- kvæmt er yfirleitt horft eftir ákveðnum atriðum. Sverrir segir gott að hafa sum þessara atriða á bak við eyrað vilji maður sjálf- ur gera lítilsháttar úttekt áður en sérfræðingarnir eru kallaðir til starfa. „Það er til dæmis mikilvægt að horfa á steypuna. Hvort þörf er á klæðningu, sem eru dýrustu við- gerðirnar. Þótt hús sé sprungið þarf steypan ekki að vera skemmd. Eðli sprungnanna segir til um það. Síðan þarf að fá sérfræðing til að meta ástandið. Yfirleitt sjá þeir, eða aðrir vanir aðilar, hvort um al- varlegar skemmdir er að ræða eða ekki.“ Sverrir bendir á að einnig þurfi að skoða glugga vel. „Það er mjög algengt að það leki inn með gluggum. Þess vegna skiptir máli að timbrið í gluggunum sé gott og eins allar þéttingar. Gluggar þarfnast góðs viðhalds, þar sem timbrið í þeim veðrast og skemm- ist fljótt.“ Sverrir segir að sama megi segja um timburhúsnæði. Timbur- hús þurfi að vera þétt og mikil- vægt að vera með fyrirbyggjandi viðhald. Bíða til dæmis ekki þang- að til að málning er verðuð eða flögnuð af heldur mála húsnæð- ið upp á nýtt þegar þörf krefur, til að lenda ekki í einhverjum vand- ræðum. „Það er síðan annað mál að ákveðnir gallar eða skemmdir sjást stundum illa,“ segir Sverrir. „Til dæmis þegar þak lekur. Þá þarf að opna það til að sjá í hverju vandinn er fólginn.“ Sverrir segir að stundum þurfi að fara út í frekari rann- sóknarvinnu. Sérstaklega þegar til stendur að fara út í dýrari framkvæmdir. Sýni eru þá tekin, til að mynda úr timbri eða steypu, til að meta ástandið frekar og fá rannsóknarniðurstöður. Þá sést hvort klæðning sé nauðsynleg og svo framvegis. „Það tekur síðan mislangan tíma að fá niðurstöður úr rannsóknum, eða allt eftir því hvað er verið að skoða,“ bendir Sverrir jafnframt á. „Þegar þær eru komnar leggj- um við fram viðgerðartillögur. Setjum fram nokkra kosti sem velja má á milli, eftir því hversu farið er ítarlega í viðgerðir. Að svo búnu er gert kostnaðarmat við tillögurnar, sem við leggjum til.“ Loks hvetur Sverrir fólk til að huga vel að viðhaldsmálum og fá þar álit sérfróðra aðila. roald@frettabladid.is Ástandsmat mikilvægt Mikilvægt er að meta ástand húsnæðis áður en gengið er frá kaupsamningi. Sverrir Jóhannesson starfar hjá Línuhönnun, verkfræðistofu sem annast meðal annars ástandsmat á fasteignum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Skemmdir á þökum eru algengir gallar sem erfitt getur reynst að koma auga á. Danfoss ofnhitastillar Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins Háþróuð og notendavæn hitastýring sem veitir þægilega húshitun og hámarks orkusparnað Við erum leiðandi í hönnun og framleiðslu ofnhitastilla ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.