Fréttablaðið - 02.08.2007, Side 40
2. ÁGÚST 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið byggingaiðnaðurinn
Fjöldi íbúa höfuðborgarsvæðisins jókst
um 2.808 manns árið 2006 en líklega
eru fæstir þeirra í fasteignahugleiðing-
um. Á sama tímabili voru 2.383 nýjar
íbúðir samþykktar hjá Fasteignamati
ríkisins.
Það þarf ekki annað en að fá sér stuttan
bíltúr um höfuðborgarsvæðið til að sjá að
alls staðar er verið að byggja. Hafnarfjörð-
ur teygir anga sína stöðugt lengra í átt að
álverinu og ný hverfi, svo sem Urriðaholt
og Norðlingaholt, eru að dúkka upp á stutt-
um tíma. Þá veltir maður því fyrir sér hvort
eftirspurn sé eftir öllum þessum nýju íbúð-
um. Er nóg af nýju fólki að flytjast til höf-
uðborgarsvæðisins og er það að leita sér að
húsnæði til að kaupa fremur en að leigja?
Samkvæmt Fasteignamati ríkisins voru
2.383 nýjar íbúðir samþykktar á síðasta ári
en ætla má að fjöldinn fari vaxandi næstu
ár. Því til stuðnings má nefna að um 4.200
íbúðir eru í byggingu í Hafnarfirði, Kópa-
vogi og Garðabæ en þá á eftir að telja
saman nýbyggingar í Reykjavík, Seltjarn-
arnesi, Álftanesi og Mosfellsbæ.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu flutt-
ust alls 9.161 manns til höfuðborgarsvæð-
isins árið 2006. Aftur á móti yfirgáfu 6.353
manns svæðið og því hefur fjöldi íbúa höf-
uðborgarsvæðisins aukist um 2.808 manns.
Af þeim eru 2.551 maður af erlendu bergi
brotinn en aðeins 257 manns frá landsbyggð
Íslands.
Af þessum tölum má túlka að helsti
markhópur fyrir nýbyggingarnar séu út-
lendingar en eru þeir í svo miklum mæli
að kaupa sér íbúðir? „Við höfum engar
tölur yfir þessi mál en það sem við finn-
um er að fólk er rosalega mikið að leita
sér að leiguhúsnæði,“ segir Sabine Le-
skopf verkefnisstjóri hjá Alþjóðahús-
inu. „Ég hugsa að fólk búi hér í nokkur ár
áður en það fer út í íbúðarkaup. Við fáum
mikið af fyrirspurnum um leigumarkað-
inn en fólki finnst hann hrikalega dýr. Það
er mikil þörf fyrir ódýrt leiguhúsnæði,“
segir Sabine.
Oftar en ekki eru það fjölskyldur sem
flytja saman til Reykjavíkur og því má
gera ráð fyrir að fleiri en einn sé um
hverja íbúð. Íbúafjöldi höfuðborgarsvæð-
isins jókst um 2.808 manns árið 2006 svo
gróflega má áætla að um 1.000 til 1.500
nýjar íbúðir þurfi fyrir fólkið en á sama
tíma voru 2.383 nýjar íbúðir samþykktar
og þúsundir í viðbót í byggingu.
Í fljótu bragði virðist því vanta íbúa í um
1.000 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu í náinni
framtíð.
mariathora@frettabladid.is
Er nóg af fólki til að fylla nýbyggingarnar?
Urriðaholt er eitt margra hverfa sem rísa munu á
næstunni. Í Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ eru
4.200 íbúðir í byggingu.
Fjöldi íbúa á höfuðborgarsvæðinu jókst
um 2.808 á síðasta ári. Þar af eru 91
prósent þeirra erlendir ríkisborgarar sem
flestir eru á höttunum eftir leiguhús-
næði. Á sama tímabili voru 2.383 nýjar
íbúðir samþykktar á höfuðborgarsvæð-
inu og er von á enn fleirum þetta árið.
SU
Ð
U
RN
ES
V
ES
TU
RL
A
N
D
V
ES
TF
IR
Ð
IR
N
O
RÐ
U
RL
A
N
D
E
YS
TR
A
A
U
ST
U
RL
A
N
D
SU
Ð
U
RL
A
N
D
Árið 2006 fluttust 3.770 manns til höfuðborgar-
svæðisins af landsbyggðinni en 3.513 manns fóru
til landsbyggðarinnar af höfuðborgarsvæðinu.
Aðfluttir umfram brottflutta á höfuðborgarsvæðið
eru því aðeins 257 manns en á sumum svæðum
landsbyggðarinnar bættust fleiri við en fluttust á
brott.
BROTTFLUTTIR UMFRAM AÐFLUTTA
FRÁ LANDSBYGGÐINNI TIL
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
N
O
RÐ
U
RL
A
N
D
V
ES
TR
A
-2
48
14
2
12
3
22
6
28
- 9
1
77