Fréttablaðið - 02.08.2007, Síða 44
2. ÁGÚST 2007 FIMMTUDAGUR10 fréttablaðið byggingaiðnaðurinn
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur
hafið störf en miðstöðin varð til
við samruna Iðntæknistofnun-
ar og Rannsóknastofnunar bygg-
ingariðnaðarins. Þess er vænst
að sameinuð starfsemi verði
lyftistöng á sviði nýsköpunar og
tækni.
Gert er ráð fyrir verulegum
samlegðaráhrifum við samein-
ingu þessara tveggja stofnana
á sviði rannsókna og tækni og
einnig þjónustu við sprotafyrir-
tæki og frumkvöðla. Nýsköpunar-
miðstöð Íslands hefur nú mögu-
leika á að samtvinna rannsókn-
ar- og þróunarstarf við starfsemi
á sviði viðskipta í ríkari mæli en
verið hefur hér á landi.
Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðv-
ar Íslands samkvæmt lögum, sem
samþykkt voru á Alþingi síðast-
liðið vor, er að styrkja samkeppnis-
stöðu íslensks atvinnulífs og auka
lífsgæði. Í því felst meðal annars
að miðla þekkingu og veita stuðn-
ingsþjónustu fyrir frumkvöðla og
sprota- og nýsköpunarfyrirtæki
og að stunda tæknirannsóknir,
þróun, greiningar, prófanir, mæl-
ingar og vottanir.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
er einnig ætlað að annast stjórn-
sýsluverkefni sem stofnuninni eru
falin samkvæmt lögum, stjórn-
valdsfyrirmælum eða ákvörðun
ráðherra og taka mið af stefnu
Vísinda- og tækniráðs í starfsemi
sinni á hverjum tíma.
Starfsmenn Nýsköpunarmið-
stöðvarinnar verða um 80 talsins,
en að auki er gert ráð fyrir hundr-
uðum nemenda í ýmis konar námi
sem tengjast munu hinum ýmsu
verkefnum. Nýsköpunarmið-
stöð Íslands er að hluta til fjár-
mögnuð af ríkissjóði en innlendir
og erlendir rannsóknarstyrkir
og útseld verkefni standa undir
meirihluta af tekjum hennar.
Nýsköpunarmiðstöð
Íslands hefur störf
Nýsköpunarmiðstöðin varð til við samruna Iðntæknistofnunar og Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins, sem unnið hefur ýmis verk á sviði byggingartækni
undanfarin ár.
Fyrsta stig hugmyndasam-
keppni um framtíðarskipulag
í Vatnsmýrinni er lokið. Sextán
hópar komust áfram en úrslit
verða kunn í nóvember.
„Upphaf þessa ferlis má rekja
til atkvæðagreiðslu um flugvöll-
inn á sínum tíma. Markmiðið er
að tryggja sem bestan grunn fyrir
framtíðaruppbyggingu flugvallar-
svæðisins. Þess vegna var efnt til
hugmyndasamkeppninnar sem fór
formlega í gang á síðasta ári,“ segir
Dagur B. Eggertsson, sem er full-
trúi borgarstjórnar í dómnefnd-
inni, ásamt Gísla Marteini Baldurs-
syni og Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur sem er jafnframt formaður
dómnefndarinnar. Ásamt borgar-
fulltrúunum eiga sæti í dómnefnd-
inni þeir Joan Busquets skipulags-
fræðingur, sem stýrði skipulagi
Barcelona í aðdraganda ólympíu-
leikanna, nú kennari við Harvard-
háskóla, Kees Kaan arkitekt frá
Rotterdam, Hildebrand Machleidt
skipulagsfræðingur frá Berlín og
fulltrúi íslenskra arkitekta, Steve
Christer.
„Alþjóðlegir meðlimir dóm-
nefndarinnar eru einvala lið fag-
manna víðs vegar að. Þeir hafa
gríðarlega reynslu af skipulags-
verkum af þessari stærðargráðu og
þess vegna sannkölluð forréttindi
að vinna með þeim,“ segir Dagur.
Dómnefndin lauk nýverið störf-
um og að sögn Dags voru valdir sex-
tán hópar af þeim 137 sem skiluðu
fullgildum tillögum. „Þeir hópar
sem voru valdir munu vinna áfram
úr hugmyndum sínum og skila ítar-
legri útfærslum í lok október. Endan-
leg niðurstaða verður síðan kynnt í
nóvember,“ segir Dagur.
Hugmyndasamkeppnin fer fram
undir nafnleynd en Dagur segir
mikla breidd einkenna þær tillög-
ur sem komust áfram á seinna stig
keppninnar.
Dómnefndin mun veita sex til
átta tillögum viðurkenningu og
tvær til fjórar verða tilgreindar
framúrskarandi að sögn Dags.
Allir sextán hóparnir sem kom-
umst áfram á seinna stig fá 10.000
evrur að launum. Auk þess mun
dómnefndin ráðstafa 200.000
evrum í verðlaunafé til þeirra sex
til átta tillagna sem verða valdar.
Að sögn Dags er þó óljóst hve-
nær verður af framkvæmdum í
Vatnsmýrinni. „Reykjavíkurborg
mun ganga til viðræðna við sam-
gönguyfirvöld um næstu skref að
samkeppni lokinni. Borgin mun
jafnframt bjóða að minnsta kosti
einum hópi sem hefur hlotið fram-
úrskarandi viðurkenningu, samn-
ing um skipulagningu á hluta Vatns-
mýrarsvæðisins,“ segir Dagur.
Skilafrestur tillagna fyrir
seinna stig er til 5. október 2007.
Endanleg niðurstaða verður í
nóvember 2007 ásamt verðlauna-
afhendingu. rh@frettabladid.is
Framtíðin í Vatnsmýrinni
Markmið samkeppninnar er að sögn Dags B. Eggertssonar borgarfulltrúa að fá sem
bestan grunn fyrir framtíðarskipulag flugvallarsvæðisins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hugmyndasamkeppni um skipulagningu Vatnsmýrarsvæðisins hófst í fyrra. Alls bár-
ust 137 fullgildar tillögur og af þeim komust sextán áfram á seinna stig keppninnar.
SET ehf. Röraverksmiðja • Eyravegur 41 • 800 Selfoss
Sími: 480 2700 • Fax: 482 2099 • Netfang: set@set.is • Vefsíða: http://www.set.is
Miklar breytingar hafa orðið við lagningu
hitaveitna þar sem foreinangruð plaströr eru nú
notuð í grennri lögnum í meiri mæli, í stað
hefðbundinna hitaveituröra úr stáli.
Röraverksmiðjan SET er eitt fárra fyrirtækja í
heiminum sem framleiðir foreinangruð PEX rör
í nýrri og tæknilega fullkominni framleiðslulínu.