Fréttablaðið - 02.08.2007, Síða 56
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
„Hvenær uppgötvaði ég að
ég var Guð? Sjáðu til, ég
var að biðja og uppgötvaði
skyndilega að ég var að tala
við sjálfan mig.“
Lestarstöð sprengd
Líney Rut Halldórsdóttir íþrótta-
fræðingur hefur verið ráðin í starf
framkvæmdastjóra Íþrótta- og ólympíu-
sambands Íslands, fyrst kvenna.
Hún mun taka við starfinu af Stefáni
Konráðssyni, sem hefur verið ráðinn
sem framkvæmdastjóri Íslenskrar
getspár.
„Þetta leggst bara mjög vel í mig,“
segir Líney. „Þetta verður krefjandi og
spennandi og örugglega skemmtilegt
verkefni að takast á við. Það eru mörg
sóknarfæri innan ÍSÍ, til dæmis í
lýðheilsunni og afreksstarfinu.“
Spurð hvort hún sjái fyrir sér
einhverjar breytingar samfara
nýjum framkvæmdastjóra, segir
Líney: „Framkvæmdastjóri starfar
með framkvæmdastjórn og forseta
sem starfa í umboði íþróttaþingsins
og þeim samþykktum. Stefán hefur
haldið mjög vel utan um rekstur og
starfsemi íþróttahreyfingarinnar
þannig að ég sé ekki endilega fyrir mér
stórar breytingar en það eru klárlega
sóknarfæri til staðar.“
Líney er ekki alls ókunn starfsemi
ÍSÍ því hún hefur áður starfað fyrir
hreyfinguna. „Þegar ég kom úr námi
í Bandaríkjunum starfaði ég sem
framkvæmdastjóri íþróttafélags í
fimm ár og kom þaðan inn í gömlu
Ólympíunefndina í mars árið 1997,“
segir Líney sem tók við starfi sviðsstjóra
afrekssviðs ÍSÍ þegar hreyfingin
sameinaðist Ólympíunefndinni. „Þar
var ég til loka árs 2002 þegar ég tók
við deildarstjórastarfi íþrótta- og
æskulýðsdeildarinnar í menntamála-
ráðuneytinu. Svo að ég losna ekkert frá
þessum íþróttum,“ segir Líney og hlær.
Sjálf er Líney mikil útivistarkona og
gengur á fjöll og rennir sér á skíðum
þegar tími gefst til en á árum áður
keppti hún í knattspyrnu hér heima.
„Á skólaárum mínum í Bandaríkjunum
keppti ég í blaki og körfubolta, þó ég
sé lág í loftinu,“ segir hún brosandi og
bætir við: „Svo keppti ég reyndar líka
aðeins í hafnabolta.“
Líney segist enn eiga eftir að ganga
endanlega frá starfslokum í mennta-
málaráðuneytinu en gerir ráð fyrir að
það verði 1. eða 15. september. „Þá verð
ég alkomin til ÍSÍ og tek þar við góðu
búi í mjög mótuðu og vel reknu sam-
bandi. Þetta er stærsta fjöldahreyf-
ing landsins þannig að þetta er heilm-
ikil áskorun,“ segir Líney Rut, nýráðin
framkvæmdastjóri ÍSÍ.
www.minningargreinar.is
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Eddu Guðjónsdóttur
Sléttuvegi 17 í Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deildum A-7
og B-7 á Landspítalanum í Fossvogi og á
líknardeildinni í Kópavogi fyrir góða umönnun.
Guðjón Sigurðsson, Jóhannes Sigurðsson og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
Ruth Halla Sigurgeirsdóttir,
Ársölum 3,
lést á Landspítalanum 1. ágúst. Hún verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju föstudaginn 10. ágúst kl. 11.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vilja minn-
ast hennar er bent á sjóðinn Blind börn á Íslandi í síma
525 0000 og á klara@blind.is
Ólafur Axelsson
Jón Axel Ólafsson
Ólafur Ragnar Ólafsson
Jóhann Garðar Ólafsson Hulda Dögg Proppé
Kristín Ruth, Ólafur Ásgeir, Óttarr Daði, Róbert Aron.
Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem
auðsýndu okkur samúð og hluttekningu
við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður og ömmu,
Aldísar Pálu
Benediktsdóttur,
sem lézt á líknardeild Landspítalans í Kópavogi hinn
12. júlí sl. Einlægar þakkir flytjum við læknum,
hjúkrunarfólki og öðru starfsfólki í Heimahlynningu, á
krabbameinsdeild, kvennadeild og líknardeild spítalans
fyrir allan velgjörning við hana, fyrr og síðar. Einnig
þökkum við samstarfsmönnum hennar og vinum hjá
Landsbankanum, í Mæðrastyrksnefnd og hjá líknar-
félaginu Ljósinu fyrir elskusemi í hennar garð, alla tíð.
Verið öll Guði falin.
Sigurður E. Guðmundsson
Guðrún Helga Sigurðardóttir Friðrik Friðriksson
Benedikt Sigurðsson
Kjartan Emil Sigurðsson
Aldís Eva Friðriksdóttir
Dagur Páll Friðriksson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Ólafs Kristjáns
Guðmundssonar,
Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði, áður til
heimilis að Kirkjulundi 8 í Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur Þ. B. Ólafsson Þuríður Kristín Kristleifsdóttir
Magnea Guðlaug Ólafsdóttir
Þórunn Ólafsdóttir Daníel M. Jörundsson
Magnús Óli Ólafsson Erla Dís Ólafsdóttir
Kolbrún Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
Jón Hafsteinn Oddsson,
bóndi og refaskytta, Álfadal á
Ingjaldssandi, síðar Gerðhömrum í
Dýrafirði,
sem lést á sjúkrahúsi Ísafjarðar mánudaginn 23. júlí,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
4. ágúst kl. 14.00.
Guðmunda Jónína Guðmundsdóttir
Einar Jónsson María Pálsdóttir
Bergljót Vilhelmína Jónsdóttir Ásgeir Guðjón Kristjánsson
Dagný Jónsdóttir Arnór Magnússon
Álfhildur Jónsdóttir Þór Ólafur Helgason
og fjölskyldur.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Sjúkrahús Ísafjarðar.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Elísabet
Guðmundsdóttir
Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík,
Áður Grýtubakka 4,
sem lést sunnudaginn 29. júlí á Hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ, verður jarðsungin frá Seljakirkju í dag,
fimmtudaginn 2. ágúst, kl. 15.00.
Ómar Heiðberg Ólafsson Kristín Þórarinsdóttir
Bragi Hjörtur Ólafsson
Guðmundur Kristinn Ólafsson Ingibjörg Sigurðardóttir
S. Stefán Ólafsson Jóhanna J. Guðbrandsdóttir
Olga Ólafsdóttir Sigurður Jónsson
Sólveig Ólafsdóttir Trausti Hermannsson
Sigurlín Ólafsdóttir Ólafur Valur Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK