Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 58
Pete elskar enn þá Kate.
Paris er sloppin úr fang-
elsi. Nicole á leiðinni í
fangelsi. Og Britney komin
með skalla og dottin í það.
Enn eina ferðina.
Oft spyr ég mig að því
hvernig ég nenni að lesa alla
þessu vitleysu. En svarið er ofur-
einfalt: Af því að ég hreinlega elska
sögur af fræga fólkinu. Jafnvel þótt
ég viti innst inni að ég ætti frekar
að lesa um gengisþróun, stýrivexti,
hlutabréfamarkaðinn og aðra gagn-
lega hluti.
Þetta er alveg eins og að standa
fyrir framan borð hlaðið kræsingum.
Sumum hollum og góðum, öðrum
góðum en kannski ekkert sérlega
hollum, eins og vinkona mín benti á.
Þarna eru grænmeti og ávextir og
ýmislegt annað sem nærir kroppinn,
en fyrr en varir er höndin farin að
fikra sig eftir frönskunum og fitan
runnin ofan í maga.
Slúður er nefnilega eintómt
skyndibitafæði þegar öllu er á
botninn hvolft, sem í verstu tilfellum
skilur eftir sig svolítinn sting í maga.
Þetta veit ég allt saman. Samt kýs
ég að taka góða dýfu í djúpsteiking-
arpottinn á hverjum degi, þar sem
ég svamla um í góðum félagsskap
þúsunda Íslendinga.
Eini gallinn við slúðrið er að það
er vel flest frá útlöndum komið. Það
er nefnilega leitandi að virkilega
safaríkum sögum sem segja frá
fylliríi, kynlífi og nærbuxnaleysi
íslensku stjarnanna. Man annars
einhver hvenær íslensk stjarna
skandalíseraði almennilega síðast?
Ætli það hafi verið þegar brjóstið
á Leoncie gægðist út hjá Hemma
Gunn á níunda áratugnum?
Það er helst einu sinni á ári sem
ég hef ærna ástæðu til að gleðjast,
en það er í ágúst. Þá er ég búinn að
nötra í mánuð eins og köttur sem
bíður eftir að feitur fugl geri sig lík-
legan til að lenda í garðinum mínum.
Í ágúst gerir skatturinn nefnilega
skattgreiðslur landsmanna opinber-
ar og tekjur þeirra um leið. Þá finnst
mér gott að koma mér fyrir við
hlaðborðið og renna ljúfmetinu niður
samviskulaust. Enda segja sérfræð-
ingarnir að það dragi víst úr ójafnri
stöðu starfsmanna og misrétti
kynjanna.OPIÐ HÚS Í DAG – 17.00 – 18.00
KRISTNIBRAUT 31 - ÍBÚÐ 302
KRISTNIBRAUT 31 - 113 RVK. - Íbúð 302
Laus við kaupsamning. Falleg 4ra herbergja 110,3 fm
íbúð á efstu hæð með miklu útsýni. Sérmerkt stæði í
lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Verð tilboð.
Þóra Þrastardóttir, sölufulltrúi
tekur á móti gestum.
Sími 822 2225
Fr
um
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á
Fontanellas Playa, Las Gaviotas eða
Alcudia Pins í viku.