Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 62
Kl. 17 Dagný Guðmundsdóttir opnar sýninguna Maður með mönnum II í Start Art að Laugavegi 12b klukkan 17 í dag. Sýningin er systursýning Maður með mönnum í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Hún sýnir ljósmyndir og púða með stæltum karlmönnum í átökum. Sýningin stendur til 30. ágúst. Gömul gæra á Egilsstöðum Nýjasta plata KK og Magga Eiríks, Langferðalög, hefur selst í um það bil 4.700 eintökum og er þar með orðin ein mest selda plata sumarsins. Þeir félagar hafa verið á tónleikaferð um landið, hvarvetna hefur verið húsfyllir og hefur mikil stemning myndast. Í kvöld verða þeir á Hótel Borg og hefjast tónleik- arnir klukkan 20.30. Á laugardagskvöld verða þeir síðan í félagsheimilinu að Flúðum í Hrunamanna- hreppi og daginn eftir klukkan 15 verða þeir á Hótel Geysi í Haukadal. Ein mest selda platan Faxaskjól 26 107 Vesturbær Einbýlishús á einstakri sjávarlóð Stærð: 230,5 fm Fjöldi herbergja: 7 Byggingarár: 1945 Brunabótamat: 29.750.000 Bílskúr: Já Verðtilboð Lind Þórarinn Jónsson Lögg. fast. hdl. thorarinn@remax.is Bókið skoðun í síma 862-1109 RE/MAX Lind - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is Anna Karen Sölufulltrúi annaks@remax.is 862 1109RE/MAX Lind er með í einkasölu einbýlishús á einstakri sjávarlóð í Vesturbænum. Einn allra eftirsóttasti staður höfuðborgarsvæðisins. Húsið er byggt 1945 og er á þremur hæðum. Heildarstærð er 230,5 fermetrar með bílskúr. Stærð lóðar er 518.0fm. Húsinu hefur verið haldið vel við en það var m.a. málað og múrviðgert. Gler og gluggapóstar hafa einnig verið endurnýjaðir. Þessi eign býður uppá mikla möguleika. Sjón er söguríkari. Sumartónleikaröðinni í Skálholti lýkur með krafti nú um helgina. Tónleikar verða á hverjum degi frá fimmtudegi til sunnudags. Á laugardaginn frumflyt- ur Kammersveitin Ísa- fold tónverk eftir Daníel Bjarnason staðartónskáld. Einnig verður boðið upp á skapandi tónlistarsmiðju fyrir börnin á laugardag og sunnudag. „Þetta er svolítið sérstök dagskrá hjá okkur um helgina,“ segir Alexandra Kjeld, kynningarstjóri Sumartónleika í Skálholti. „Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld með dúóinu Aurora Borealis sem eru Margrét Hrafnsdóttir sópran og Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleik- ari. Svo verða tónleikar frá laug- ardegi til mánudags með Kamm- ersveitinni Ísafold.“ Ísafold spilar ferna tónleika um helgina þar sem hún flytur tvö sett af efnisskrám. Fyrri efnisskráin kallast Da pacem Domine. „Á henni eru verk eftir 20. aldar tónskáld og sam- tímamenn. Þar ber helst frum- flutningurinn á nýja verkinu hans Daníels en auk þess eru meðal annars verk eftir Arvo Pärt og Xenakis.“ Seinni efnisskráin ber heitið In Memoriam. Verkin á henni eru styttri verk sem tón- skáld hafa samið í minningu eða til heiðurs einhvers. Á laugardag og sunnudag er boðið upp á skapandi tónlistar- smiðju fyrir börn. „Við höfum verið með svona námskeið síð- ustu ár og þetta hefur gengið rosalega vel. Það eru alls konar hljóðfæri þarna sem börnin fá að prófa og svo eru tónleikar fyrir foreldrana í lok dagsins.“ Alexandra segir að tilvalið sé að koma um hádegið og byrja á að fá sér að borða og skoða staðinn. Tónlistarsmiðjan fyrir börnin byrjar rétt fyrir kl. 15 og fyrstu tónleikar dagsins hefjast skömmu síðar. Einnig er boðið upp á skoð- unarferðir um staðinn og hægt að fá sér eitthvað í svanginn. VINNINGAR ERU BÍ ÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR, DVD M YNDIR OG MARGT FLEIRA! SENDU SMS JA SMF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA ! 11. HVER VINNUR ! HEIMSFRUMSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 27. JÚLÍ Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.