Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 64
Ragnheiður Harvey, dag- skrárfulltrúi í Norræna húsinu, vill að matreiðsla gangi fljótt og vel fyrir sig á virkum dögum. „Venjulega er þetta þannig að maðurinn minn sér um innkaup og matreiðslu á virkum dögum og ég um helgar,“ sagði Ragnheiður. „Mér finnst mjög gaman að elda, ef ég er ekki alveg örmagna af þreytu. Það er notalegt að geta búið til eitthvað gott saman og bjóða börnum og fjölskyldu í mat svona um helgar,“ sagði hún. Þessa dagana kemur Ragnheið- ur svo sannarlega örmagna heim úr vinnu, því í Norræna húsinu er nú unnið hörðum höndum að undirbúningi menningarhátíðar- innar Reyfis, en hún mun standa frá 18. til 26. ágúst. „Við erum að leggja lokahönd á dagskrána, sem verður alveg ótrúlega fjölbreytt. Hér verða rithöfundar, tónlist- aratriði og dans, við verðum með ýmsar sýningar og kvikmyndir. Þetta er allt frá Norðurlöndun- um, en svo leggjum við áherslu á Ísland líka,“ útskýrði hún. Ragnheiður bjó í Noregi í sex- tán ár, þar sem hún vann hjá norska ríkissjónvarpinu. Hún segir ekki mikinn mun á matar- menningu landanna, en kveðst þó hafa saknað fersks fisks á meðan á dvölinni stóð. „Það veiðist frábær fiskur í Norður-Noregi, en af einhverjum ástæðum tekur mjög langan tíma að koma honum til Oslóar,“ sagði Ragnheiður. „Svo er jólamaturinn allt, allt öðruvísi en hér.“ Þjóðlegur norskur jólamatur er ribbe-steik, eða rifjasteik. Með henni eru bornar fram kjötbollur úr kjötfarsi. Manni fannst þetta ekki alveg nógu jólalegt,“ sagði hún og hló. Magn í uppskriftinni fer eftir þörfum hvers og eins. Á vef Umhverfisstofnunar, ust. is, má finna mikinn fróðleik um matvæli og matreiðslu. Þar má til dæmis nálgast margar góðar ábendingar um mataræði þungaðra kvenna, fræðast um örverur í matvælum og þær matareitranir eða matarsýkingar sem af þeim geta hlotist. Á vefnum er að finna fræðslu um svokallað nýfæði og ráðlegg- ingar til skólamötuneyta vegna fæðuofnæmis barna, sem henta jafnframt venjulegum fjölskyld- um sem vilja víkka skilning sinn á efninu. Þar má enn frekar finna upplýsingar um íslenska matvælalöggjöf. Á vefnum er einnig hægt að skoða útgefna bæklinga sem Umhverfisstofnun hefur sent frá sér á pdf-formi, ásamt glærum úr fræðslufyrirlestrum, fræðslupistla, orðskýringasafn og ýmsar reglugerðir. Af bæklingum væri ekki úr vegi að renna yfir Góð ráð við grillið, en þar er að finna ýmsar ábendingar kokkum til handa. Eins er að finna bækling um fæðubótarefni sem sífellt algengara er að fólk notfæri sér. Fræðslupistlarnir fjalla hins vegar um allt frá baunaspírum til kúariðu. Fróðleiksfúsir ættu ekki að láta vefinn fram hjá sér fara. Upplýsingar um matvæli má nálgast á ust.is/matvaeli. Nú eru góð ráð ódýr Prófaðu... ...að skella í lyftiduftsbollur á helgardegi. Það tekur ekki mikið meira en hálftíma, og morgunmatur með nýbökuðu brauði er óneitanlega algjört dekur og dagurinn fer ljúflega af stað. Tab er ómissandi í alla staði Í næsta þætti af Mat og lífsstíl heimsækir Vala Matt myndlistar- hjónin Ragnar Kjartansson og Ásdísi Sif Gunnarsdóttur. „Þau eru að slá í gegn út um allan heim með frumlegum listaverkum sínum og gjörningum, og það má eiginlega segja að heimsóknin til þeirra hafi verið hálfgerður gjörningur,“ sagði Vala og hló. „Þau bjuggu til mjög skemmtilegan bröns fyrir okkur. Raggi bjó til rétt sem hann lærði í Húsmæðraskólanum, en hann var fyrsti karlmaðurinn sem lærði við þann skóla. Það er náttúrulega ótrúlega skemmtilegt – og líkt honum,“ sagði Vala. Kertasalatið úr Húsmæðraskól- anum var afar skemmtilegt, að sögn Völu. „Svo kom það líka dálítið á óvart að þessi blanda var bara alveg glettilega góð,“ sagði hún og hló við. Kertasalat Ragga Kjartans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.