Fréttablaðið - 02.08.2007, Qupperneq 69
Tæp fimmtíu tónlistaratriði
hafa bæst við Iceland
Airwaves-hátíðina sem
verður haldin í miðborg
Reykjavíkur í haust.
Dönsku sveitirnar Lali Puna og Ms
John Soda eru á meðal þeirra sem
hafa bæst við á Airwaves-hátíðina
ásamt The Duke Spirit, Foals og
The Teenagers frá Bretlandi.
Einnig hafa sveitir á borð við
Jakobínarínu, Brain Police,
Kimono, The Viking Giant Show og
Shogon boðað komu sína á
hátíðina.
The Teenagers, Foals og Late of
the Pier koma allar fram á sérstöku
kvöldi bresku plötuútgáfunnar
Moshi Moshi, sem hefur staðið
fyrir tónleikum á Airwaves
undanfarin ár. The Teenagers hafa
verið hvað mest áberandi af þessum
sveitum í breska tónlistarheiminum
undanfarið og getið sér gott orð
fyrir eigin lagasmíðar, auk
endurhljóðblandana á verkum Air
og Au Revoir Simone. Þeir hafa
verið duglegir við tónleikahald í ár
og munu m.a. koma fram á Reading-
tónlistarhátíðinni í Englandi.
Þýska útgáfan Morr Music
verður einnig á Iceland Airwaves
og á vegum hennar spila hljóm-
sveitirnar Lali Puna, Ms John Soda,
Tied & Tickled Trio, Benni Hemm
Hemm og Seabear. Á meðal þeirra
hljómsveita sem höfðu áður boðað
komu sína á Airwaves eru Bloc
Party, !!!, Deerhoof, Of Montreal,
Gusgus og múm og því stefnir allt í
fjölbreytta og skemmtilega hátíð.
Fimm myndir hafa bæst við dag-
skrá Bíódaga Græna ljóssins sem
verða haldnir dagana 15. til 29.
ágúst í Regnboganum.
Myndirnar sem voru að bætast
við eru Away From Her, fyrsta
leikstjórnarverkefni leikkonunnar
Söruh Polley með Julie Christie í
aðalhlutverki, Fast Food Nation
eftir Richard Linklater byggð á
samnefndri metsölubók, Goodbye
Bafana eftir Bille August sem
fjallar um samband Nelsons
Mandela og fangavarðarins sem
gætti hans í tuttugu ár, Fuck,
heimildarmynd um orðið „fuck“,
uppruna þess og áhrifamátt, og
Zoo, heimildarmynd um hestariðla.
Á þessari tveggja vikna hátíð
verða frumsýndar um tuttugu
myndir frá öllum heimshornum,
jafnt heimildarmyndir sem leiknar
myndir.
Meðal myndanna sem verða
sýndar eru Sicko, nýjasta mynd
Michaels Moore, sem fjallar um
bandaríska heilbrigðiskerfið,
Goya‘s Ghost eftir Milos Forman
og Cocaine cowboys, heimildar-
mynd um kókaíninnflytjendurna í
Miami sem Scarface er byggð á.
Um tuttugu frumsýningar
L AUG AV EGU R 6 6 , 101 R E YK JAVÍK
KONUR OG MENN
50% AFSLÁTTUR
MEIRI AFLÁTTUR Í DAG FIMMTUDAG