Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 70
 Síðari leikur KR og Häck- en verður sá fyrsti sem Logi Ólafs- son stýrir KR-skútunni. Hann tók við liðinu á mánudaginn og segir fyrstu dagana hafa verið „algjöra snilld“. Häcken er í 6. sæti næstefstu deildarinnar í Svíþjóð og hitaði upp fyrir leikinn með 4-0 sigri um síðustu helgi. „Persónulega renni ég nokkuð blint í sjóinn. Ég þekki ekki Häcken en leikmennirnir og Sigursteinn Gíslason aðstoðar- þjálfari þekkja þetta betur. Það þykir fínt að vera með 1-1 stöðu eftir útileik en mér skilst að þetta séu áþekk lið,“ sagði Logi við Fréttablaðið í gær. Logi vonast til að geta hafið upp- byggingu sína hjá KR strax í kvöld en hann varar við röngu hugarfari fyrir leikinn. „Við ætlum að gera tilraun til þess að spila þetta eins og við viljum gera þetta í framtíð- inni. Það er óvarlegt að fara inn í þennan leik með það hugarfar að halda fengnum hlut og ætla bara að pakka í vörn. Það er þó alveg ljóst að við munum ekki taka nein- ar verulegar áhættur en við förum samt inn í leikinn með það hugar- far að vinna,“ sagði Logi. Nýi stjórinn í brúnni er ekki vit- und stressaður fyrir fyrsta leikinn undir kröfuhörðum áhangendum og stjórn sem var orðinn lang- þreytt á erfiðu ástandi í Vestur- bænum. „Nei, það er ekkert stress í gangi. „Ég veit að það eru allir leikir erfiðir, ekki síst fyrir KR eins og staðan er í dag. Vonandi náum við að gera þetta þannig úr garði að sjálfstraust manna aukist eftir leiki og í leikjunum sjálfum,“ sagði þjálfarinn sem var ekkert búinn að velta byrjunarliðinu fyrir sér eða hvort miklar breytingar yrðu gerðar á því frá stjórnardög- um Teits Þórðarsonar. „Ég stilli bara upp því sterkasta sem ég tel að við eigum völ á.“ Logi ætlar að láta liðið sitt spila almennilega knattspyrnu en blanda saman léttleikandi spili og lengri og árangursríkum sending- um, eins og hann orðaði það. „Við spilum fótbolta og reynum að ná tökum á því að geta varist vel sem liðsheild. Ég vona að við getum búið til gott lið sem getur haldið boltanum og spilað sig í gegnum varnir andstæðinganna,“ segir þjálfarinn og tekur jafnframt fram að möguleikarnir á því að komast áfram séu góðir. Sjálfstraust er nokkuð sem hefur verið áberandi ábótavant hjá KR í sumar, á því vonast Logi til að gera bragarbót. „Það verða ekki kallaðir sálfræðingar, geð- læknar og prestar í það, við reyn- um að vinna það sjálfir. Aðferðin er bara að halda áfram að æfa og vonast til að koma sjálfstraustinu úr æfingunum inn í leikina.“ Logi segir enn fremur að mór- allinn í liðinu sé góður og hann merki alls ekki að allt sé í háaloft inni í búningsklefanum. „Mér fannst ég merkja það að menn eru staðráðnir í að gera betur og aðeins að lyfta upp húmornum í þessu. Menn þurfa að halda ein- beitingu, hún verður að vera á réttum stað á réttum tíma. Við megum ekki gefa okkur of mikinn tíma samt,“ sagði Logi sem ætlar að gefa leikmönnum frí á næst- unni. „Það er oft ekki verra að menn fari frá hver öðrum þegar ástand- ið er svona. Við vinnum í því að sameina liðið,“ sagði Logi Ólafs- son. Logi Ólafsson stýrir KR í fyrsta skipti í kvöld í Evrópuleik gegn Häcken. Logi segist ekki þekkja mikið til sænska liðsins en hefur fengið haldgóðar upplýsingar fyrir leikinn. Hann leggur áherslu á að sameina liðið fyrstu daga sína hjá KR. Ætla sér að taka okkur í kennslustund Markmaðurinn Casper Jacobsen hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Breiðablik út sumarið 2008. Jacobsen kom frá Danmörku eftir að Hjörvar Hafliðason meiddist og gerði upprunalega samning til 30. ágúst. Hann hefur aðeins fengið á sig fimm mörk í sjö deildarleikjum í sumar. Hjörvar þarf smá tíma til að koma sér inn í þetta aftur en síðan er frábært að vera með tvo sterka markmenn að berjast um stöðuna,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Blika, við Fréttablaðið í gær. Hjá Breiðabliki út sumarið 2008 Sigurður Ingimundar- son, þjálfari Keflavíkur, segir útlendingamál félagsins vera í góðum gír þrátt fyrir að Úkraínu- maðurinn Denis Ikovlev hafi hætt við að koma. Hann er að skoða nokkra leikmenn og ætlar að taka sér góðan tíma í að finna leikmenn fyrir næsta tímabil. Keflavík hafði náð samkomulagi við umboðsmann Ikovlevs sem hafði ekki skrifað undir. Ikovlev vildi frekar fara til Rússlands þar sem hann fékk mun hærra peningatilboð, eitthvað sem Keflavík átti ekki möguleika á að keppa við. „Hann er að fara í miklu meiri peninga og ég lái honum það ekki. Ég talaði við strákinn og þetta góður náungi og góður leikmaður,“ segir Sigurður. Fékk risatilboð frá Rússlandi Leikmenn, þjálfarar og fulltrúar Häcken, sænska liðsins sem KR-ingar mæta í Evrópu- keppninni í dag, staldra stutt við á Íslandi. Liðið mætti til landsins í gær og tók eina stutta æfingu í Frostaskjólinu í gærkvöldi eftir að hafa eytt deginum í skoðunar- ferð um Reykjavík. Á morgun er förinni heitið í Bláa lónið áður en lagt verður af stað aftur til Svíþjóðar. Stoppið er í það heila því ekki nema rúmur sólarhringur, sem þykir afar lítið þegar mikilvægur Evrópuleikur er annars vegar. Staldrar stutt við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.