Fréttablaðið - 02.08.2007, Síða 73
Eggert Gunnþór
Jónsson, íslenski unglinga-
landsliðsmaðurinn hjá Hearts í
Skotlandi, spilaði síðustu 22
mínúturnar í æfingaleik liðsins
gegn Barcelona síðastliðinn
laugardag og þótti standa sig
með miklum ágætum, þrátt
fyrir að spila ekki í sinni
kjörstöðu á miðjunni.
Eggert lék í stöðu miðvarðar
og att kappi við ekki ómerkari
mann en Thierry Henry, en
hann lék síðari hálfleikinn fyrir
spænska stórveldið í leiknum.
Aðrir snillingar á borð við
Samuel Eto´o, Ronaldinho og
Lionel Messi voru hins vegar
farnir af velli.
„Ég dekkaði hann í þann tíma
sem ég var inn á og ég verð að
segja að það var aðeins öðru
vísi en ég átti von á. Hann er
miklu stærri og sterkari en ég
hélt og það er gríðarlega erfitt
að fylgja honum eftir en mér
fannst ég koma ágætlega frá
mínu,“ segir Eggert.
Lokatölur leiksins urðu 3-1,
liði Barcelona í vil, en þess má
geta að öll mörk Barca komu
áður en Eggert kom inn á.
Tæplega sextíu þúsund manns
fylgdust með leiknum úr
áhorfendastúkunni.
„Henry er teknískur og
flinkur með boltann en svo er
hann greinilega ofboðslega
klár framherji og með góðar
staðsetningar. Einfaldlega
hrikalega góður,“ sagði Eggert
um einvígið við Thierry
Henry.
Hann er hrikalega góður
FRÁBÆR
AR
VIÐTÖKU
R!
Þúsundir
nýrra og
núverandi
viðskipta
vina
Glitnis ha
fa nú þega
r
skráð sig í
Vildarklúb
b Glitnis.
GLITNIS-
PUNKTAR
ERU
PENINGAR
Fylgstu með Glitnispunktunum
safnast upp í Netbanka Glitnis.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
Tryggvi Guðmundsson
var ánægður með byrjun leiksins
hjá FH í gær áður en leikur liðsins
hrundi eins og spilaborg.
„Ég veit bara ekki hvað gerðist.
Mér fannst við ekki verri en þeir,
þegar við þorum að halda boltan-
um. Þarna kom bersýnilega í ljós
munurinn á atvinnumönnum og
áhugamönnum. Þeir eru kaldir,
þora að halda boltanum innan liðs-
ins á meðan það kemur ákveðið
stress í okkur,“ sagði FH-ingur-
inn.
Tryggvi er rómaður fyrir klók-
indi sín sem hann tekur út sem lyk-
ilatriði í leiknum í gær. „Þeir eru
klókari í einu og öllu, í að fá auka-
spyrnur, tefja, og halda boltanum.
Klókindi eru svo mikilvægur part-
ur af þessu og það kemur í ljós hér.
Mörkin okkar eru alls ekki klók,
þau eru ótrúlega klaufaleg,“ sagði
Tryggvi sem er ekkert alltof
bjartsýnn fyrir síðari leikinn í
næstu viku.
„Þetta er auðvitað ekki búið en
þetta veganesti er ekkert sérstakt.
Við hefðum kannski átt að bæta
við, hann dæmdi af mark og við
hefðum átt að fá eitt eða tvö víti.
Pólverji að dæma hjá Hvít-Rúss-
um, ég veit ekki með það,“ sagði
Tryggvi og glotti.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari
FH, var ekki sáttur með tapið.
„Við byrjuðum vel og það átti að
gefa okkur kraft en við vorum
númeri of litlir. Við vorum alltaf á
eftir, of langt frá mönnunum okkar
og gáfum þeim alltof mikið pláss.
Mér fannst við ólíkir sjálfum
okkur og ég er ekki ánægður með
úrslitin,“ sagði Ólafur.
„Þetta verður mjög erfitt. Auð-
vitað eru líkurnar ekki miklar en
við komum til með að spila af full-
um krafti. Þetta gefur okkur
reynslu og þetta er þrælgaman
þrátt fyrir að úrslitin séu ekkert
sérstök. Við eigum undir högg að
sækja, Ísland er ekki besta fót-
boltaland í heimi og munurinn sést
þegar við spilum við útlendinga,
þeir voru einfaldlega betri.“
Númeri of stórir