Fréttablaðið - 04.09.2007, Síða 4
Vinnuveitendur eru
látnir innheimta fjármagnstekju-
skatt starfsmanna sinna fyrir toll-
stjórann í Reykjavík og sýslumenn.
Lektor við Háskólann í Reykjavík
er afar ósáttur við að vinnuveitend-
um séu sendar upplýsingar um
fjármagnstekjur starfsmanna.
„Hvernig aðrar tekjur mínar en
launatekjur hjá vinnuveitandanum
mínum eru skattlagðar kemur
vinnuveitandanum ekki við, það
hlýtur að vera réttur einstaklingsins
að fá að halda þessum upplýsingum
fyrir sjálfan sig,“ segir Ármann
Gylfason, lektor við Háskólann í
Reykjavík.
„Í fyrra seldi ég einhver hluta-
bréf, og eins og lög gera ráð fyrir
gaf ég það upp á skattframtali í vor.
Í ágúst kom álagningarseðill þar
sem fram kom að ég skuldaði fjár-
magnstekjuskatt,“ segir hann.
Ármann segir að greiðslunum
hafi verið skipt upp á fimm gjald-
daga, og fyrsta reikninginn hafi
hann getað greitt í heimabanka.
Hann hafi svo ekki fengið fleiri
reikninga í heimabankann, en þess
í stað hafi vinnuveitandi hans verið
látinn vita að draga ætti frá launum
hans á næstu mánuðum. Hann seg-
ist afar ósáttur við að vinnuveit-
anda sé blandað í málið með þess-
um hætti í stað þess að honum sé
sjálfum sendur reikningurinn.
Einnig sé þetta eflaust í óþökk
vinnuveitandans, sem sé settur í
það hlutverk að innheimta fyrir
ríkissjóð.
Tollstjórinn í Reykjavík inn-
heimtir skattskuldir borgarbúa, en
annars staðar er innheimtan í hönd-
um sýslumanna. Sigurður Skúli
Bergsson aðstoðartollstjóri segir
að heimild til að draga skattskuld
af launum sé afar gömul.
Á henni var skerpt með nýrri
reglugerð árið 2001, þar sem sú
skylda er lögð á launagreiðendur
að halda eftir allt að þremur fjórðu
hluta launa starfsmanna sem skulda
tekjuskatt, útsvar og gjald í Fram-
kvæmdasjóð aldraðra.
Sigurður segir að þeir sem
ekki séu skráðir með
launagreiðanda fái
greiðsluseðla
vegna
fjármagnstekjuskatts, en sé vitað
hver vinnuveitandinn sé fari inn-
heimta fram í gegnum hann.
Spurður hvers vegna þetta verk-
lag sé viðhaft segir Sigurður: „Þetta
hefur verið talin nokkuð þægileg
og örugg leið til að innheimta gjöld-
in að draga þetta af laununum.“
Einhverjir launagreiðendur hafi þó
kvartað yfir því að sinna þessu
verki fyrir ríkið án þess að fá greitt
fyrir.
Sigurður segir að það gæti verið
eitthvað dýrara að innheimta með
greiðsluseðlum, en ekki hafi verið
lagt sérstakt mat á það.
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri
Persónuverndar, vildi aðspurð ekki
taka afstöðu til þess hvort þetta
vinnulag stæðist lög um persónu-
vernd. Kvörtun þurfi að berast Per-
sónuvernd til að lagt verði í þá
vinnu sem þurfi til að kanna það.
Láta vinnuveitendur
innheimta skuldir
Innheimtumenn ríkissjóðs krefjast þess að vinnuveitendur dragi skuldir vegna fjár-
magnstekjuskatts frá launum starfsmanna en senda ekki reikning. Kemur vinnuveit-
endum ekki við segir skattgreiðandi. Þægileg og örugg leið segir aðstoðartollstjóri.
Kennsla í rússnesku
hófst við Háskóla Íslands (HÍ) í
gærmorgun eftir þriggja ára hlé.
Nú verður námið í fyrsta skipti á
meistarastigi.
Kristín Ingólfsdóttir rektor tók
á móti Olgu Korotkovu, nýja
rússneska sendikennaranum, og
fulltrúum frá rússneska sendiráð-
inu í Reykjavík rétt áður en
fyrsta kennslustundin hófst.
Björgólfur Guðmundsson var
einnig viðstaddur móttökuna þar
sem námið er stutt af fyrirtæki
hans, eignarhaldsfélaginu
Samson.
Tuttugu og einn nemandi er
skráður í rússneskunám við
Háskóla Íslands.
Fyrsta kennslu-
stundin í gær
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir tekur til starfa sem
framkvæmdastjóri þingflokks
Vinstri grænna í september. Hún
tekur við af Drífu Snædal, sem
mun áfram
gegna starfi
framkvæmda-
stýru flokksins.
Guðfríður
Lilja var í öðru
sæti á fram-
boðslista
Vinstri grænna
í Suðvestur-
kjördæmi fyrir
síðustu
alþingis-
kosningar en náði ekki kjöri. Hún
er með BA-próf í sagnfræði og
stjórnmálafræði frá Harvard-
háskóla í Bandaríkjunum og
mastersgráðu í hugmyndasögu og
heimspeki frá Cambridge-háskóla
í Bretlandi. Hún hefur unnið sem
alþjóðaritari á alþjóðasviði
Alþingis frá 2001.
Guðfríður stýrir
þingflokki VG
Megn óánægja
er meðal margra þeirra, sem börð-
ust gegn niðurrifi Ungdómshússins
á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í
vor, vegna ólátanna um helgina í til-
efni af því að hálft ár var liðið frá
því húsið var rifið.
Allt logaði í óeirðum aðfaranótt
sunnudagsins. Rúður voru brotnar í
verslunum og bönkum, götuvígi
reist og kveikt í bifreiðum. Sextíu
og þrír voru handteknir og einn
lögreglumaður særðist lítillega.
Flestir hinna handteknu voru
fljótlega látnir lausir.
„Þrír eða fjórir verða ákærðir
fyrir ofbeldi gegn lögreglunni,“
sagði Flemming Steen Munch, tals-
maður lögreglunnar í Kaupmanna-
höfn.
Óeirðirnar hófust í kjölfar mót-
mælagöngu sem ungmenni efndu til
seint á laugardagskvöld í tilefni af
því að hálft ár er liðið frá því Ung-
dómshúsið á Norðurbrú var rifið.
Einungis er þó talið að fáir þeirra,
sem tóku þátt í óeirðunum um helg-
ina, hafi tengst Ungdómshúsinu á
nokkurn hátt. Þetta hefur danska
dagblaðið Politiken eftir talsmanni
fjölmiðlahóps Ungdómshússins,
sem nefnir sig aðeins Sander.
Í gærkvöld héldu aðstandendur
Ungdómshússins og stuðningsmenn
þeirra fund þar sem farið var yfir
atburði helgarinnar.
Tollskýrslugerð
Hagnýtt og ítarlegt námskeið í gerð tollskýrslna. Kynntar
eru helstu reglur er varða innflutning, innflutnings-
takmarkanir og undanþágur. Farið er yfir fylgiskjöl með
vörusendingum og hvaða tilgangi þau þjóna við innflutning
og gerð tollskýrslna. Farið er m.a. yfir myndun tollverðs
og útreikning aðflutningsgjalda. Kynntir eru fríverslunar-
samningar og notkun tollskrárinnar.
Lengd: 21 std. og er boðið uppá morgun-
og kvöldnámskeið.
Verð: 28.000.- Sérútbúin kennslubók og ítarefni
innifalið.
Hefst 11. september
og lýkur 20. september.
Morgunnámskeið þriðjudaga
og fimmtudaga kl 8:30 - 12:00
Kvöldnámskeið þriðjudaga
og fimmtudaga kl 18:30 - 21:30
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
Eldsneytisverð
lækkaði um tvær krónur hjá N1,
Olís og Skeljungi í gær. Fyrir-
tækin höfðu tilkynnt um tveggja
króna hækkun á eldsneyti
síðasta föstudag. Hækkunin
síðan fyrir helgi hefur því
gengið til baka, og kostar
bensínlítrinn nú 126 krónur í
sjálfsafgreiðslu á stöðvum
félaganna þriggja.
Atlantsolía hækkaði eldsneyt-
isverð hjá sér í gær um eina og
hálfa krónu, og stendur það nú í
125,90 krónum miðað við
sjálfsafgreiðslu. Verðið þar
hafði ekki lækkað aftur þegar
Fréttablaðið fór í prentun í gær.
Verðhækkunin
varði í þrjá daga