Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 6
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur
lagt það til að eigendur fyrirtækisins, Reykja-
víkurborg (93,5 prósent), Akranesbær (5,5
prósent) Borgarbyggð (0,76 prósent) og
Borgarfjarðarsveit (0,17 prósent), breyti
félaginu úr sameignarfyrirtæki í hlutafélag.
Tillaga þess efnis var samþykkt á stjórnar-
fundi í gær. Meirihluti stjórnarinnar vonast til
þess að félagið geti tekið til starfa sem
hlutafélag 1. janúar 2008. Báðir fulltrúar
stjórnarminnihlutans, Dagur B. Eggertsson
Samfylkingunni og Svandís Svavarsdóttir
Vinstri grænum, greiddu atkvæði gegn
tillögunni. „Tillagan var fjarri því að vera
tilbúin til afgreiðslu,“ sagði Dagur að loknum
fundi. Hann telur ekki að nein tilraun hafi
verið gerð af hálfu Orkuveitunnar til þess að
fara yfir málin heildstætt, meðal annars hvort
ábyrgðir eigenda sameignafyrirtækis skekki
samkeppnisstöðu gagnvart hlutafélögum sem
ekki njóta sambærilegra ábyrgða, eins og
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur nú til
skoðunar. „Það hefur ekki verið gerð lögfræði-
leg úttekt á þessu máli frekar en öðrum,“
sagði Dagur.
Haukur Leósson, stjórnarformaður Orku-
veitunnar, segir breytinguna til góðs og til
þess fallna að stytta verkferla. „Ákvarðana-
tökur eru svifaseinar í sameignarforminu og
það samræmist illa kröfum nútímans,“ sagði
Haukur. Hann ítrekar að ekki standi til að
einkavæða fyrirtækið, að minnsta kosti ekki á
þessu kjörtímabili. „Ég veit svo sem ekki hvað
gerist á næsta kjörtímabili en þessi breyting á
rekstrarforminu tengist ekkert einkavæðing-
aráformum.“
Meirihluti stjórnar bar því einnig við, sem
frekari röksemd fyrir hlutafélagaforminu, að
tekjuskattshlutfall fyrirtækisins myndi lækka
úr 26 prósentum niður í átján prósent. Sú
ástæða væri nægilega góð rök til þess að
breyta rekstrarforminu.
Stjórnin vill Orkuveitu
Reykjavíkur sem hlutafélag
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu til eigenda um að breyta Orkuveitunni í hlutafélag. Tillag-
an fjarri því að vera tilbúin til afgreiðslu, segir Dagur B. Eggertsson. Breyting til góðs, segir stjórnarformaður.
„Bjarni Harðarson hefur náttúrulega
verið í Perú og misst af þessari umræðu allri,“ segir
Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar.
Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokks-
ins, hefur vakið athygli á minnisblaði, þar sem
fjármálaráðuneytið veitir Vegagerð yfirdráttar-
heimild, takist ekki að nýta aðrar ónýttar heimildir.
Gunnar bendir á að um minnisblaðið megi lesa í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um ferjuna.
„Þetta mál Bjarna er þriggja vikna gamalt og kom
fram á fyrsta degi,“ segir Gunnar. Yfirdráttarheimild-
in sé einmitt meðal þess sem ágreiningur fjármála-
ráðuneytis og Ríkisendurskoðunar snúist um.
Fjárlaganefnd fundaði í gær um ferjumálið og
hlýddi á Einar Hermannsson, skipaverkfræðinginn
sem samgönguráðherra sagði bera ábyrgð á því. Einar
sækist nú eftir uppreisn æru, en Gunnar telur ekki í
verkahring nefndarinnar að fara lengra með þátt hans
í málinu, enda hafi Vegagerðin tekið á sig ábyrgð
hans. Fjárlaganefnd ætlar að ljúka umfjöllun sinni um
Grímseyjarferju um miðjan mánuðinn og starfshópur
samgönguráðuneytis á að skila niðurstöðum á næstu
dögum um hvernig eigi að ljúka við ferjuna.
Fulltrúar Vinstri
grænna vilja að athugað verði
hvort ekki sé hagkvæmara að selja
nýju Grímseyjarferjuna í því
ástandi sem hún er og smíða nýja
ferju í staðinn.
Þeir þingmenn Jón Bjarnason og
Árni Þór Sigurðsson hafa því farið
fram á að samgönguráðherra skipi
óháða nefnd, með aðild heima-
manna í Grímsey, sem fjalli um þá
kosti sem bjóðast um nýja ferju.
„Ef höfð eru snör handtök og
ákvörðun tekin fljótlega getur ný
ferja, byggð frá grunni, verið
tilbúin 2009,“ segir í tilkynningu
frá Vinstri grænum.
Vilja smíða nýtt
Grímseyjarfley
„Við erum með tillög-
ur um að gera mætti 2+2 veg alla
leið með því að fækka mislægum
gatnamótum og fjölga hringtorg-
um. Þetta ætti að kosta um átta
milljarða,“ segir Þór Sigfússon,
forstjóri Sjóvár.
Fulltrúi Vegagerðarinnar lýsti
kostum 2+1 vegar í blaðinu í gær.
Fram hefur komið að slík fram-
kvæmd kosti um 5,8 milljarða, en
2+2 vegur um 13,5 milljarða.
Einnig að samgönguráðuneyti
hafi fjárheimildir sem samsvara
um 7,4 milljörðum á núverandi
samgönguáætlun.
Þór segir að þótt góð reynsla sé
af 2+1 vegum frá Svíþjóð, séu
aðrar aðstæður hér á landi.
Hugmyndir tryggingafélagsins
snúist meðal annars um að
þrengja milli akreina og setja þar
vegrið.
„Það eru veigamikil rök fyrir
2+2 vegi. Upphaflega átti að hafa
mikið af mislægum gatnamótum
á þessari leið. Við teljum að okkar
útfærsla krefjist ekki umhverf-
ismats, fremur en 2+1 leiðin. Hún
hefði líka í för með sér að
framkvæmdir gætu hafist mun
fyrr. Við viljum bretta upp
ermarnar,“ segir hann.
Sjóvá vilji leggja veginn án
þess að innheimta veggjöld. „Og
þannig spörum við okkur tjón
fyrir hundruð milljóna á ári.“
Pyotr Gagarín, 71 árs
gamall rússneskur vörubifreiða-
stjóri á eftirlaunum, segist vera
þekktur fyrir að skafa ekki utan af
hlutunum. Nú er hann þekktur um
allt Rússland fyrir að kalla
ríkisstjórann sinn „úrþvætti“.
Fyrir vikið var hann ákærður
fyrir að vera öfgamaður. Ákæran
er lögð fram samkvæmt nýlegum
lögum um öfgamennsku.
„Þetta er skrípaleikur sem er
settur á svið til að hafa áhrif á
kosningarnar,“ segir Gagarín.
„Maður móðgar einhvern og þá er
maður skyndilega orðinn öfga-
maður.“
Orðalag laganna er það vítt að
stjórnvöld hafa möguleika á að
leggja fram ákærur og banna
starfsemi samtaka fyrir smávægi-
legar sakir.
Ákærður fyrir
að brúka kjaft
Tekur þú strætó?
Hefur þú fordóma gagnvart
útlendingum?
Málefni Laugavegs 4 til
6 verða fyrst á dagskrá borgar-
stjórnarfundar sem hefst í
Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan tvö í
dag. Svandís Svavarsdóttir,
borgarfulltrúi Vinstri grænna,
hvetur alla þá sem vilja til að
fylgjast með fundinum af áhorf-
endapöllum, því góð mæting gæti
haft áhrif.
„Þú veist hvernig pólitík virkar,
stjórnmálamönnum finnst alltaf
erfitt að standa á móti lýðræðisleg-
um þrýstingi,“ segir hún. „Þó það
sé nánast búið að taka ákvörðun
um þessi hús þá er enn hægt að
snúa því við. Við köllum eftir
þrýstingi borgarbúa.“
Vill fjölmenni
á Ráðhúspalla
Nýtt héraðsfréttablað
á Ströndum á Vestfjörðum lítur
dagsins ljós á fimmtudag.
Blaðið mun kallast Gagnvegur
og verður því dreift ókeypis inn á
hvert heimili Strandamanna.
Útgefandi og ritstjóri verður
Kristín Sigurrós Einarsdóttir,
grunnskólakennari og fréttaritari
á Hólmavík.
Meðal efnis verður viðtal við
Strandamann vikunnar, atburða-
dagatal, fréttir og dagskrá
sjónvarps.
Langt er um liðið síðan prent-
miðill var gefinn út á Ströndum
og ætti þetta að vera kærkomin
viðbót við fjölmiðlun á svæðinu,
segir í tilkynningu.
Héraðsblaðið
sent í hvert hús