Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 8

Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 8
Hvaða uppnefni hefur umdeilt öryggishlið fyrir Saga Class farþega hlotið? Í hvaða landi voru börn undir tíu ára aldri grunuð um 3.000 glæpi? Hvar í Evrópu hafa skógareldar geysað og valdið dauða 65 manns? Leðurblöku tókst nýlega það sem umhverfisvernd- arfólki og UNESCO, Menningar- stofnun SÞ, hafði mistekist í nokkurn tíma. Að stöðva umdeildar vegaframkvæmdir í Dresden. Menningarminjarnar í Dresden höfðu verið settar á válista heims- minjaskrár UNESCO vegna brúar- gerðar, sem þykir raska umhverf- inu. Þetta gæti þýtt að heimsminjanefndin fjarlægði Dres- den af heimsminjaskrá með öllu. Waldschlösschen-brúin yrði 635 metra löng nútímasmíð sem passar illa inn í minjarnar. Íbúar borgarinnar kusu um brúna árið 2005. Hún var samþykkt og sögð nauðsynleg vegna bílaum- ferðar í borginni. Borgarráð Dresden ákvað að hætta við brúna í fyrra, en lands- dómur í Sachsen úrskurðaði seinna að ákvörðun borgaranna skyldi framfylgt. Í sumar setti UNESCO sem skilyrði að brúin yrði hönnuð á nýjan leik, í betra samræmi við minjarnar. Síðan hefur verið rætt um jarð- göng og aðrar málamiðlanir, en framkvæmdum var ekki frestað fyrr en eftir að leðurblakan kom fram í dagsljósið í síðasta mánuði. Hún heitir Rhinolophus hippos- ideros og er í útrýmingarhættu. Einungis 650 slíkar eru til í heim- inum og þær halda sig á þessu svæði. Eftir þetta hefur ekki spurst til framkvæmda. Leðurblakan gerði útslagið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á fíkniefni og þýfi í húsleit sem gerð var í Mosfellsbæ á föstudag. Húsleitin var gerð að fengnum úrskurði. Fernt var í húsnæðinu þegar lögreglu bar að garði, þrír menn og ein kona, öll á þrítugs- aldri. Í húsnæðinu fundust um 20 grömm af hvítu efni sem talið er vera amfetamín, svo og slatti af marijúana. Að auki fann lögreglan ætlað þýfi, sem talið er vera úr innbroti. Fólkið, sem komið hefur við sögu lögreglu áður, var fært á lögreglustöð til yfirheyrslu og látið laust að því loknu. Voru með fíkni- efni og þýfi RV U ni qu e 08 07 04 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Lotus Professional Heildarlausn fyrir snyrtinguna WC SmartOne statíf blátt WC SmartOne statíf hvítt 3.982 kr. 1.865 kr. Þú spar ar bæð i pappír og sápu með nýju Lo tus Pro fession al skömm turunu m Lotus enMotion blár snertifrír skammtari Lotus enMotion hvítur snertifrír skammtari Lotus sápuskammtari Foam blár Lotus sápuskammtari Foam hvítur 1.865 kr. Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, hefur viðurkennt að hafa látið farga upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsarana, sem Edda-útgáfa gaf út árið 2005, því að hann hafi verið óánægður með nokkrar blaðsíður í henni. Edda-útgáfa er í eigu Björg- ólfs. Björgólfur sagði frá þessu í viðtali við breska blaðið The Observer sem var birt um helg- ina. Á blaðsíðunum var fjallað um hjónaband eiginkonu Björgólfs, Þóru Hallgrímsson, og stofnanda nasistaflokks Bandaríkjanna, George Lincolns Rockwells. Guð- mundur endurskrifaði þann hluta bókarinnar þar sem fjallað var um hjónabandið. Í bókinni, eins og hún var síðar gefin út, er minnst einu sinni á hjónabandið. Björgólfur segir í viðtalinu að honum hafi þótt það ósanngjarnt að samband Þóru og Rockwells hafi verið gert að aðalatriði í bók- inni því umfjöllunarefni hennar hafi verið Thors-ættin en ekki hjónabandið. Guðmundur Magnússon vill ekki svara því af hverju hann sættist á að endurskrifa þann hluta bókarinnar þar sem fjallað var um hjónabandið, en segir að hann hafi verið sáttur við bókina eftir að hafa breytt henni. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda og fyrrverandi þróunarstjóri hjá Eddu-útgáfu, segir aðspurður að í þessu tilfelli hafi ekki verið um ritskoðun að ræða hjá Björgólfi því að Guðmundur hafi sæst á að breyta bókinni. „Það vita það líka allir að kjósi eigandi fyrirtækis að beita því fyrir sig á einn eða annan hátt þá gera þeir það. Ég er ekki að segja að hlutirnir eigi að vera þannig en svona er þetta bara,“ segir Kristján. Bókin um Thorsarana er ekki eina bókin sem hefur verið breytt eftir að Björgólfur Guðmundsson eignaðist Eddu því árið 2003 var kafli tekinn úr bók Pálma Jónas- sonar fréttamanns um Sverri Her- mannsson, fyrrverandi banka- stjóra Landsbankans: „Sverrir – skuldaskil.“ Pálmi Jónasson stað- festir að kaflinn hafi verið tekinn út úr bókinni skömmu áður en hún fór í prentun. „Stjórnendur Eddu fóru á taugum stuttu áður en að það átti að gefa bókina út,“ segir Pálmi. Pálmi segir að þeir Sverrir hafi báðir viljað birta kaflann. Á endanum bað Sverrir Pálma um að taka kaflann út því í honum væru upplýsingar sem hugsanlega væri brot gegn bankaleynd að greina frá. Pálmi segist ekki geta greint frá því sem var í kaflanum. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var í kaflanum meðal annars fjallað um óundirritað bréf sem talið er að Kjartan Gunnars- son, bankaráðsmaður í Lands- bankanum, hafi skrifað til Matt- híasar Johannessen, ritstjóra Morgunblaðsins, árið 1998. Talið er að haft hafi verið í hótunum við Morgunblaðið í bréfinu. Kjartan Gunnarsson mun hafa verið sá maður sem hvað helst beitti sér fyrir því að kaflinn var tekinn úr bókinni um Sverri. Lét farga bók Guðmundar Björgólfur Guðmundsson hefur viðurkennt að hafa látið farga upplagi af bókinni um Thorsarana. Ann- arri bók breytt eftir að Björgólfur eignaðist Eddu. Líbanski herinn leitaði í gær í rústum bygginga í norðan- verðu Líbanon að flóttamönnum úr samtökum herskárra Palestínu- manna, daginn eftir að þeir voru hraktir úr flóttamannabúðunum Nahr el-Bared rétt fyrir utan bæinn Trípólí. Þriggja mánaða umsátri stjórn- arhersins í Líbanon um flótta- mannabúðirnar lauk á sunnudag- inn með heiftarlegum bardaga þar sem 39 herskáir Palestínumenn féllu, tuttugu voru handteknir og þrír líbanskir hermenn létu lífið. Fuad Saniora forsætisráðherra lýsti þá strax yfir sigri á samtökun- um Fatah Islam, sem hafa hallast að hugmyndum og aðferðafræði al- Kaída. Bæjarbúar í Trípólí fögnuðu úrslitunum ásamt hermönnum á götum höfuðborgarinnar, margir veifuðu fánum og hrópuðu í fögn- uði. Sumir hleyptu af byssum sínum og aðrir skutu flugeldum á loft. Eiginkona leiðtoga Fatah Islam, Shaker al-Absi, bar í gær kennsl á lík hans á sjúkrahúsi í Trípólí. Tveir hinna handteknu staðfestu einnig að líkið væri af leiðtoga þeirra. Nærri 160 hermenn hafa fallið í átökunum, sem þýðir að þetta eru verstu innanlandsátök í landinu frá borgarastríðinu 1975-90. Auk þess létust í átökunum meira en 20 almennir borgarar og meira en 60 liðsmenn Fatah Islam. Karlmaður var stöðvaður tvisvar af lögreglu fyrir lyfjaakstur á Selfossi í gær. Í fyrra skiptið komu lögreglumenn auga á hann við akstur á eigin bíl fyrir hádegi, og var hann stöðvað- ur. Bíllinn var tekinn í umsjá lögreglunnar og manninum sleppt. Síðar um daginn var maðurinn aftur kominn á stjá, en þá hafði hann orðið sér úti um annan bíl. Lögregluþjónar stöðvuðu hann aftur, enn var hann undir áhrifum lyfja og aftur var bíllinn tekinn í umsjá lögreglu. Að því loknu var manninum sleppt. Tekinn tvisvar sama daginn Fyrsti áfangi í innleiðingu rafrænna lyfseðla á landsvísu hófst á Selfossi í gær og er stefnt að því að rafrænir lyfseðlar verði orðnir að veruleika um allt land um næstu áramót eða fyrstu mánuði á eftir. Sjúklingar munu þá ekki lengur fá í hendur pappírslyfseðil hjá læknum heldur sendist rafrænn seðill beint í lyfseðilsgátt og geta sjúklingar nálgast lyfin í hvaða apóteki sem er. Lyfseðlar verða sendir rafrænt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.