Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.09.2007, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 04.09.2007, Qupperneq 10
Vinnumálastofn- un lét ekki stöðva starfsemi þýska verktakafyrirtækisins Hunnebeck Polska við Hraunaveitu Kára- hnjúkavirkjunar í hádeginu í gær eins og útlit var fyrir. Hunnebeck er undirverktaki verktakafyrir- tækisins Arnarfells. Stöðva átti starfsemi fyrirtækisins því það var óskráð hjá Vinnumálastofnun. Forsvarsmenn Hunnebeck skráðu fyrirtækið hins vegar hjá Vinnu- málastofnun um helgina, segir Gissur Pétursson, forstjóri stofn- unarinnar. Mikil umræða skapaðist um fyr- irtækið eftir að rútu með nokkrum erlendum starfsmönnunum þess var ekið út af veginum niður af Bessastaðafjalli í Fljótsdal á sunnudaginn í síðustu viku. Tut- tugu menn af þeim 29 sem lentu í slysinu voru óskráðir hjá Vinnu- málastofnun. Á föstudaginn sendi Vinnumála- stofnun sýslumannsembættinu á Seyðisfirði beiðni um að vinna Hunnebeck-manna yrði stöðvuð á hádegi á mánudag ef forsvarsmenn fyrirtækisins hefðu ekki gengið frá skráningu fyrirtækisins fyrir þann tíma, segir Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði. Lárus hafði sent lögreglumenn á Kára- hnjúkasvæðið í gærmorgun og áttu þeir að stöðva starfsemi Hunnebeck. Á ellefta tímanum afturkallaði Vinnumálastofnun beiðnina um stöðvun. Gissur Pétursson segir að Vinnu- málastofnun hafi ekki áður sent lögregluembætti beiðni um að stöðva vinnu verktakafyrirtækis. Hann segir að fyrirtækið hafi brot- ið lög með því að starfa óskráð hér á landi. Aðspurður segir Gissur að Vinnumálastofnun íhugi málsókn gegn fyrirtækinu vegna þessa. Hunnebeck hefur auk þess feng- ið frest þar til í dag til að skila ráðningarsamningum 36 starfs- manna sinna til Vinnumálstofnun- ar, segir Gissur. „Fyrirtækið gæti hafa brotið íslensk lög ef það hefur ekki greitt starfsmönnum sínum laun samkvæmt íslenskum kjara- samningum, segir Gissur og bætir því við að hugsanlegt sé að stöðva starfssemi fyrirtækisins vegna þessa. Annað fyrirtæki, GT-verk- takar hefur einnig frest þar til í dag að skila ráðningarsamningum þrjátíu erlendra starfsmanna sinna. Nokkrir starfsmanna GT- verktaka lentu einnig í rútuslysinu á Bessastaðafjalli. Marteinn Másson, lögmaður Hunnebeck og GT-verktaka, segist reikna með því að ráðningarsamn- ingum starfsmanna GT-verktaka verði skilað til Vinnumálastofnun- ar í dag en að lendingin í máli Hunnebeck verði sú að Arnarfell ráði starfsmenn fyrirtækisins beint til sín. Hugsanlega farið í mál við Hunnebeck Stöðva átti vinnu verktakafyrirtækis við Kárahnjúka í gær. Starfsemi fyrirtæk- isins verður hugsanlega stöðvuð ef það hefur ekki farið eftir kjarasamningum. Skila á ráðningarsamningum starfsmanna Hunnebeck og GT-verktaka í dag. Faðernismál Lúðvíks Gizurarsonar var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Lúðvík gerir þá kröfu að Hermann Jónasson, fyrrum forsætisráðherra, verði dæmdur faðir sinn. Mannerfðafræðileg rannsókn var gerð á lífsýnum frá Dagmar Lúðvíksdóttur, móður Lúðvíks, og Hermanni. Niðurstöður Rannsóknarstofu í réttarlæknis- fræði á Landspítala - háskóla- sjúkrahúsi sýndu í kjölfarið að 99,9 prósenta líkur eru á því að Hermann sé faðir Lúðvíks. Faðernismálið var dómtekið Þriðju kynslóðar farsíma- kerfi var formlega tekið í notkun á Íslandi þegar Síminn kynnti 3G- þjónustu sína í gær. Helstu nýjungarnar sem 3G- tæknin felur í sér eru þríþættar: Móttaka sjónvarpsútsendinga, tenging við internet með allt að 7,2 megabita hraða og myndsímtöl þar sem viðmælendur sjá hvor annan meðan á símtali stendur. Síðastnefnda nýjungin er bylting í samskiptamáta heyrnarlausra þar sem hún gerir þeim kleift að tala í síma á móðurmáli sínu, tákn- málinu. Síminn hefur gert sam- starfssamning við Félag heyrnar- lausra um að allir meðlimir félagsins auk heyrnarlausra grunnskólabarna á höfuðborgar- svæðinu fái 3G-síma sér að kostnaðarlausu. Einnig afhenti Síminn Samskiptamiðstöð heyrnar- lausra og heyrnarskertra þrettán 3G-síma sem táknmálstúlkar munu nota við þjónustu sína við heyrnar- lausa og heyrnarskerta. Fyrst um sinn nær þjónustan einungis til höfuðborgarsvæðisins en samkvæmt samningi Símans við Póst- og fjarskiptastofnun mun 3G-kerfið ná að lágmarki til 60 prósenta íbúa í hverjum lands- fjórðungi eftir tvö og hálft ár. Í dag eru um 7.000 3G-farsímar í umferð á Íslandi. Búist er við að árið 2015 verði flestir farsímaeig- endur komnir með 3G-síma. Þriðja kynslóð farsíma tekin í notkun Berglind Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin í stöðu ráðu- neytisstjóra heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis frá og með 1. september. Berglind hefur undanfarið gegnt stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs í utanríkisráðu- neytinu. Davíð Á. Gunnarsson, sem gegnt hefur starfi ráðu- neytisstjóra í heilbrigðis- og trygginga- málaráðu- neytinu, mun flytjast úr embætti ráðuneytisstjóra í utanríkis- ráðuneytið í embætti „Special Envoy for Global Health“. Þar mun hann sinna störfum á vettvangi alþjóða- heilbrigðismála með sérstaka áherslu á málefni Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar. Ráðuneytis- stjóraskipti Rússland mun ekki hvika frá andstöðu sinni við eldflaugavarnakerfi Bandaríkj- anna í Austur-Evrópu og kröfu sinni um að staða Kosovo verði ákveðin í samræmi við óskir Serbíu að því er utanríkisráðherra Rússlands, Sergey Lavrov, greindi frá í gær. Lavrov sagði þetta tvö dæmi um svokallaðar „rauðar línur“ sem ættu við þegar raunveruleg hætta steðjaði að þjóðaröryggi Rússa eða þegar vegið væri að alþjóðleg- um réttindum. Þetta eru tvö stærstu deilumál Bandaríkjamanna og Rússa í dag. Hvika ekki frá andstöðu sinni Kristján Möller samgönguráðherra hefur skipað starfshóp um Vaðlaheiðargöng. Hópnum er ætlað að gera tillögur um hvernig og hvenær gangagerð geti orðið. Meðal þess sem til álita kemur er hvort einkafyrirtækjum verði falin framkvæmdin. Nefndin á að skila áliti fyrir lok september. Formaður hópsins er Eiríkur Bjarnason úr samgönguráðuneyti og fer hann fyrir Hreini Haralds- syni frá Vegagerðinni, Ásgeiri Magnússyni úr Samtökum atvinnulífsins og Jóni Birgi Guðmundssyni frá Akureyrarbæ. Starfshópur um göng undir Vaðlaheiði

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.