Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 13
[Hlutabréf]
Stoðir ráða nú yfir 96,72 prósent-
um hlutafjár í danska fasteignafé-
laginu Keops. Þeir hlutir sem eftir
standa eru innlausnarskyldir og
verður yfirtöku formlega lokið á
næstu dögum. Heildarvirði Keops
er um 49,3 milljarðar íslenskra
króna.
Samkvæmt tilboði Stoða gátu
hlutafjáreigendur valið milli þess
að fá 24 danskar krónur fyrir hlut
í Keops, eða hlutafé í Stoðum í
skiptum.
Eigendur sjötíu prósenta hluta-
fjár völdu síðari kostinn. „Þetta
gekk vonum framar. Nú eru um
þrjú hundruð danskir hlutafjár-
eigendur í Stoðum, sem enn er
óskráð íslenskt félag. Greinilegt
er að viðhorf Dana til íslensks við-
skiptalífs hefur breyst talsvert
síðan öll lætinu urðu kringum
kaupin á Magazin Du Nord,“ segir
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
forstjóri Stoða.
Boðað hefur verið til stjórnar-
fundar í Keops, þar sem formlega
verður tekin ákvörðun um að
afskrá félagið úr dönsku Kaup-
höllinni. Stefnt er að því að skrá
Stoðir í Kauphöll Íslands innan níu
mánaða. Líklegt er að nýtt nafn
verði fundið á hið nýsameinaða
félag áður en til skráningar
kemur.
„Undirbúningur að skráningu
er hafinn á fullu. Nú förum við í að
ná eins mikilli samþættingu milli
félaganna tveggja og mögulegt er.
Við stefnum að því að eftir mánuð
verði þetta farið að virka eins og
eitt félag,“ segir Skarphéðinn
Berg.
Heildareignir Stoða og Keops
eru metnar á 381,2 milljarða
íslenskra króna. Leiguhúsnæði
hins nýsameinaða félags er sam-
tals um 2,8 milljónir fermetra, og
leigutakar rúmlega 3,800. Stoðir
eiga nú eignir á Íslandi, í Dan-
mörku, Svíþjóð og í Finnlandi.
„Við skilgreinum okkur sem norð-
ur-evrópskt fasteignafélag,“ segir
Skarphéðinn Berg. Aðspurður
segir hann enga ákvörðun hafa
verið tekna um hvort farið skuli
inn á nýja markaði, en viðurkenn-
ir að bæði þýsku og bresku fast-
eignamarkaðirnir séu fýsilegir
kostir.
Stoðir í Kauphöll
undir nýju nafni
Yfirtöku Stoða á Keops lýkur formlega á næstu dög-
um. Alls eiga 300 danskir fjárfestar hlut í félaginu, sem
verður skráð í Kauphöll Íslands innan níu mánaða.
Hagnaður MP fjár-
festingabanka nam
tæplega 1,12 millj-
örðum króna á fyrri
árshelmingi og jókst
um 94 prósent sé
miðað við sama tíma-
bil í fyrra. Heildar-
eignir bankans voru
rúmir 42,4 milljarðar
króna í lok júní 2007.
Gengishagnaður nam
808 milljörðum króna
og jókst lítillega frá
fyrra ári.
Fram kemur í tilkynningu frá
MP fjárfestingabanka að fyrri
hluti ársins hafi verið mjög hag-
felldur. Bankinn hafi
skilað methagnaði og
þóknanatekjur aukist
verulega milli ára.
Þá segir að starf-
semi bankans hafi
haldið áfram að vaxa í
Mið- og Austur-Evr-
ópu þar sem megin
vaxtabroddur starf-
seminnar verði í náinni
framtíð.
Alls starfa nú 46
manns hjá MP fjár-
festingabanka; 38 í
höfuðstöðvunum í Reykjavík og
átta til viðbótar í útibúi bankans í
Vilníus.
Methagnaður hjá MP
Hagnaður jókst um 94 prósent milli ára.