Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 16

Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 16
greinar@frettabladid.is Ískemmtilegu viðtali í blaði nýlega við Sverri Þór Sverris- son ræðir hann um þau mál sem mótmælendur hafa tekið upp á sína arma. Hann afgreiðir árangursleysi mótmælanna og málin sjálf með setningunni: „Hverjum er ekki sama?“ Þessi setning hefur ráðið úrslitum fyrr og nú. Talibanar sprengdu afskekktar Búddastyttur í Afganistan. Hverjum var ekki sama? Á næsta ári verða raðir tuga fossa í Kelduá og Jökulsá á Fljótsdal þurrkaðar upp þ. á m. tveir samliggjandi fossar í Jökulsá í stærðarflokki Gullfoss. Tvær ár falla saman í annan þeirra fossa, Faxa – önnur þeirra tær bergvatnsá, hin gulbrúnt jökulfljót, svo að fossinn verður tvílitur. Hverjum er ekki sama? Hvað er verið að mótmæla því að Múlavirkjun og Fjarðarárvirkj- un verði stærri en leyft var, en hverjum er ekki sama? Það þarf að virkja Neðri-Þjórsá, þegar erlendi ferðamaðurinn stígur út úr Leifsstöð verður fyrsta mannvirkið sem heilsar honum risaálver og síðan getur hann rakið sig eftir háspennulínum, gufuleiðslum, stöðvarhúsum og síðar stíflum og lónum allar götur norður á miðhálendið. Hverjum er ekki sama þótt dýrmætri ímynd Íslands verði breytt? Enn hefur ekki verið fallið frá Norðlingaölduveitu en með henni verður þurrkuð upp fossaröð í Þjórsá með tveimur fossum á stærð við Gullfoss. Annar þeirra, Dynkur, er líklega flottasti stórfoss Íslands en hefur verið afræktur hvað aðgengi varðar. Landsvirkjun ætlar nú að nýta sér umsagnir um beiðni um rannsókn- arleyfi í Gjástykki frá 2004 á þann hátt að fara samkvæmt skyndi- veitingu leyfis tveimur dögum fyrir kosningar 2007 út í miklu meiri umhverfisröskun en umsagnirnar frá 2004 tóku afstöðu til. Þær umsagnir sýnast því ekki gildar nú − en hverjum er ekki sama? Gjástykki og Leirhnjúkssvæðið má hiklaust jafna saman við Þingvelli og Öskju. Hvers vegna? Jú, í Öskju skynjar ferðamaðurinn sköpun heimsins og þangað fóru bandarísku tunglfararnir til að æfa sig undir það að standa á tunglinu. Á Þingvöllum sést landrekið vel, hvernig vesturbakk- inn táknar Ameríku sem rekur burt frá austurbakkanum, Evrópu. Á hvorugum staðnum kemur til greina að hrúga upp borholum, gufuleiðslum, hápennulínum og stöðvarhúsum. Á svæðinu frá Leirhnjúki norður í Gjástykki urðu fjórtán eldgos á árunum 1975-84. Þá myndaðist þar einstakt landslag hvera, sprungna, gígaraða og hrauna, þar sem meðal annars má sjá hvernig hraun kom upp úr sprungum og rann niður í þær á víxl þegar landið rifnaði með hyldjúpum sprungum í landrekinu. Af öllu þessu eru til einstæðar myndir og kvikmyndir, meðal annars af upphafinu þegar jörðin rifnar sundur og eldurinn kemur upp eins og rautt hnífsblað sem ristir jörðina upp. Þarna eru hliðstæðir möguleikar og eru í Yellowstone um not myndefnis til að skapa upplifun. Í Yellowstone er ferðamannamiðstöð helguð nýlegum skógareldum. Þar er bíóhús með sýningum og ferða- maðurinn fær myndefni í hendur til að skynja og skilja þá sköpun og eyðingu og kynslóðaskipti gróðurs sem náttúrulegur skógareldur skapar. Við Kröflu væri hægt að hafa slíka miðstöð sem hjálpaði fólki til að ganga um svæðið og upplifa með hjálp mynda eldgosin og sköpunarkraft einstæðrar íslenskrar náttúru, standa og horfa á svarta hraunstrauma liðast niður hlíðar þar sem áður voru glóandi eldelfur, upplifa það að standa í sporum Marsfara því að á einum stað á þessu svæði hafa alheims- samtök áhugafólks um Marsferðir markað sér svæði til æfinga fyrir Marsfara framtíðarinnar eftir leit um allan heim. Þessu svæði ætla menn nú að umturna. Þegar komið er á svæðið er ekki aðeins eins og þetta allt hafi gerst í gær, heldur hjálpa myndirnar líka ferða- manninum til að upplifa það eins og það sé að gerast í dag. Hvergi í heiminum er slíkt að finna. Þetta er nú bara rannsóknarleyfi segja menn. En það var bara rannsókn- arleyfi sem gerði kleift að eyðileggja einstæða gönguleið og inngang að Sogunum við Trölla- dyngju í vor, en Sogin eru lit- fegursta gilið á Suðvesturlandi og þarf að fara allt til Landmanna- lauga eða Kerlingarfjalla til að sjá annað eins. En hverjum er ekki sama? Hverjum er ekki sama þótt enn sé beitt fé á svæði á Íslandi sem eru ekki beitarhæf? Sigríði í Brattholti var ekki sama um virkjun Gullfoss. Andóf hennar réði þó ekki úrslitum um það að Gullfossi var bjargað. Það var af öðrum ástæðum að hætt var við að þurrka Gullfoss með hugarfarinu: Hverjum er ekki sama? Höfundur er formaður Íslands- hreyfingarinnar - lifandi lands. Hverjum er ekki sama? Steingrímur Ólafsson nýráðinn frétta-stjóri Stöðvar 2 sætir gagnrýni innan fréttastofunnar fyrir að segja Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur fréttamanni upp störfum, segir í frétt DV í gær. Kristinn Hrafnsson fréttamaður segir uppsögnina lúalega og lítilmannlega. Fréttamönnum sem vilja sjálfstæði og fagmennsku hlýtur að vera misboðið þegar þeir horfa upp á fyrrverandi upplýsingafulltrúa Halldórs Ásgrímssonar reka virtan stjórnmálafréttamann stöðvarinnar. Vönduðum fréttamönnum hlýtur að bregða þegar þeir heyra að nýi fréttastjórinn hyggist móta þá eftir eigin höfði, eða hvað? Þegar nýi fréttastjórinn áttaði sig á því að ákvörðunin mæltist illa fyrir virðist sem hann hafi reynt að varpa ábyrgðinni yfir á Sigmund Erni Rúnarsson, forvera sinn. Í fyrstu axlaði Steingrímur einn alla ábyrgð á gjörningnum, en við fyrstu ágjöf er hann hlaupinn í skjól. „Ég frestaði ákvörðuninni þegar ég tók við, … síðan komst ég að sömu niðurstöðu og forveri minn,“ segir Steingrímur núna. Er enn verið að spinna? Kristinn Hrafnsson fréttamaður á Stöð 2 sýnir hugrekki og skorar á fréttastjórann að segja satt. Hann segist hafa borið ummæli Steingríms undir Sigmund Erni sem hafni þeim alfarið. Kristinn er ósáttur við að þegar talsmaður á höfuðbóli síðasta stjórnarheimilis skiptir um föt og gerist oddamaður í aðhaldi almennings gagnvart valdhöfum reki hann aðalfréttamanninn í pólitískum fréttum. „Smekklegt!“ segir Kristinn. Verður hann kannski rekinn líka? Þegar hratt er spunnið verður vefnaðurinn götóttur. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir talaði einmitt um spunadrengi fyrrverandi forsætisráðherra á fundi blaðamanna fyrir nokkrum árum. Hún sagði að þrátt fyrir glitrandi spuna væri keisarinn án klæða. Fréttastofa með fréttastjóra sem ekki segir satt er varla trúverðug. Fyrir nokkrum árum var nýr fréttastjóri sendur inn á Fréttastofu útvarpsins. Hann fór illa með sannleikann í viðtali og var fréttastjóri í hálfan dag. Höfundur er sagnfræðingur og varaþingmaður Vinstri grænna. Fréttastjórinn og sannleikurinn V íðs vegar um borgina, og reyndar víðar, eru foreldrar yngstu barna grunnskólans í vanda, eitt árið enn. Ástæðan er mannekla á frístundaheimilum sem leiðir til þess að hluti þeirra barna sem sótt hefur verið um fyrir fær ekki pláss. Foreldrarnir verða að bregðast við. Sumir þurfa að draga úr vinnu, jafnvel þannig að fjárhagslegu öryggi fjölskyldunnar er stefnt í tvísýnu. Aðrir eiga fjölskyldu og vini sem hægt er að leita til en víst er að einhver ung börn eru lengur ein heima en gott getur verið. Í skólunum er það sama uppi á teningnum. Ekki hefur tekist að ráða í allar stöður sem þýðir aukið álag á þá sem fyrir eru. Leikskólar eru ekki fullmannaðir, fólk vantar til starfa við umönnun aldraðra og á sjúkrahúsum. Og það er víðar mannekla. Sums staðar á landinu vantar meira en helming þeirra lögreglumanna sem ráð er fyrir gert til starfa. Öll framangreind störf eiga það sameiginlegt að snúast um samskipti við fólk, ungt, aldið, frískt, veikt og svo framvegis. Þetta eru störf sem snúast um umönnun, kennslu og löggæslu. Allt vandasöm störf sem krefjast mikillar færni í mannlegum samskiptum, störf sem allir eru sammála um að gott og vel menntað fólk eigi að gegna. Samt hefur það verið svo að þessi störf hafa með hverju árinu sem líður fest sig betur í sessi sem láglaunastörf. Þegar atvinnuleysi er í sögulegu lágmarki og á vinnumarkaði er keppst um að fá til starfa hæft fólk, meðal annars með tilboðum um allt frá mannsæmandi til hárra launa, þá brestur í. Þessi störf eiga það nefnilega líka sameiginlegt að vera, að miklum meirihluta, opinber störf þannig að svigrúm atvinnurekanda til að keppa við launatilboð að almennum vinnumarkaði er lítið. Sem betur fer er sá hópur stór sem þrjóskast við að vinna það starf sem hann menntaði sig til eða valdi af öðrum ástæðum, fólk sem þykir vænt um starfið sitt og velur að gegna því þrátt fyrir að betri kjör kunni að vera í boði annars staðar. Þetta fólk á heiður skilinn. Því ef þess nyti ekki við verður ekki annað séð en að við blasi upplausn í samfélaginu; samfélag án kennara, lögreglumanna, hjúkrunarfólks og annarra sem vinna tengd störf er ekki mikils virði. Ljóst er að til þess að viðhalda þeirri velmegun sem hér hefur náðst og er að hluta til ástæða þessarar manneklu verður að sýna þessum störfum og því fólki sem þeim gegnir þá virðingu sem því ber með því að greiða fyrir þau mannsæmandi laun. Sameiginlegum verkefnum skattgreiðenda verður að forgangs- raða þannig að þetta verði unnt. Annars blasir eingöngu við auk- inn vandi. Velmegunarvandi Allt vandasöm störf sem krefjast mikillar færni í mannlegum samskiptum, störf sem allir eru sammála um að gott og vel menntað fólk eigi að gegna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.