Fréttablaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 17
Heiðarleiki, kjarkur, þor, vitundarvakning og flottari kroppur er það sem fæst með ástundum rope-yoga. „Rope-yoga er öflugt heilsuræktarkerfi sem byggist á vaxtarmótandi æfingum, hugleiðslu og kenningum um hinn gífurlegan mátt hugans,“ segir Elín Sigurð- ardóttir, íþróttafræðingur og rope-yoga meistara- kennari, sem í gær opnaði glæsilega rope-yoga stöð á Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði. „Hugmyndafræði rope-yoga byggir á ábyrgð hvers og eins á eigin tilveru. Með breyttu hugarfari er hægt að breyta líkamanum. Gott dæmi er Margrét Ýr, rope-yoga kennari í stöðinni minni. Hún var greind með MS-sjúkdóminn, en tók ákvörðun um að lifa sig ekki inn í sjúkdóminn heldur lifa sig inn í heilbrigði. Síðan hefur Margrét Ýr náð undraverðum bata en var áður komin í hjólastól,“ segir Elín, sem er einn þriggja rope-yoga meistarakennara á Íslandi og lærði í Kaliforníu hjá Guðna Gunnarssyni, upp- hafsmanni rope-yoga í heiminum. „Við verðum að vakna til vitundar, leyfa okkur framgöngu og að ná árangri í lífinu. Enginn stoppar okkur í því nema við sjálf. Við þurfum að vita hvers megnug við erum og vita hvað við viljum. Flestir vita hvað þeir vilja ekki, einblína á það og uppskera samkvæmt því, í stað þess að einblína á það sem þeir virkilega vilja og fá það með tilheyrandi hamingju,“ segir Elín en á líkamsræktarstöð hennar er boðið upp á innfrarauðan hitaklefa til meðferðar við vöðva- bólgu, gigt og til almennrar vellíðunar. „Rope-yoga mótar líkamann á fallegan hátt og brennir fitu hratt þótt æfingakerfið sé rólegt. Það þarf ekki að hamast og hlaupa frá sér allt vit til að brenna. Við áreynslu eykst innöndun og brennsla. Í rope-yoga notum við sjávarfallsöndun sem sexfaldar lífaflið. Þá hitnar líkaminn og bæði andleg og líkam- leg melting stórbatnar. Fólki eykst kjarkur og orka til að framkvæma drauma sína; það drífur sig í skóla, skiptir um vinnu og bætir samband við ástvini sína. Með öðrum orðum; það fer að lifa lífinu lifandi og til fulls,“ segir Elín sem leggur áherslu á að rope-yoga sé fyrir konur og karla á öllum aldri. „Þegar búið er að ná tökum á æfingakerfinu er hægt að kaupa sér bönd og stunda æfingarnar heima, en það er skuldbinding sem menn standa við gagn- vart sjálfum sér. Við erum svolítið föst í því að ljúga og svíkja; mest að okkur sjálfum. Fyrsta lygin er blundtakkinn á vekjaraklukkunni, svo að byrja í ræktinni á morgun, borga reikingana síðar, mæta of seint í vinnuna og fleiri svik. Fólk telur þetta skipta litlu en í raun minnkar sjálfsvirð- ingin í hvert skipti sem glæpurinn er framinn. Í rope-yoga förum við mikið inn á að standa við gefin loforð, vera heiðarleg og segja sannleikann við okkur sjálf og alla aðra.“ Á heimasíðu Elínar: www.elin.is má lesa vitnis- burði um bætt heilsufar þeirra sem leggja stund á rope-yoga. Lífinu lifað lifandi Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.