Fréttablaðið - 04.09.2007, Page 19

Fréttablaðið - 04.09.2007, Page 19
Kossar hafa meiri þýðingu fyrir konur en karla. Konur nota kossa til að vega og meta hvort í þeim sem kysstur er leynist hugsanlegur maki. Þær beita þeim síðar til að viðhalda nánd í ástarsamböndum og athuga hvern- ig þau standa. Þetta eru meðal annars niðurstöð- ur úr rannsókn sem framkvæmd var við New York háskóla, þar sem yfir þúsund nemendur voru spurðir hvað þeim fyndist um kossa. Konur reyndust vandfýsnari á hvern þær kysstu en karlar, sem sögðust til í að stunda kynlíf án kossa, með einhverjum sem þeir löðuðust ekki að eða álitu lélegan kyssara. Ennfremur var munur á hvernig kynin vildu hafa kossana og vakti athygli að körlum líkaði betur blaut- ir kossar þar sem tunguleikfimi er óspart stunduð. Loks þótti sýnt að á meðan konur vonast til að kossar leiði til lang- tíma ástarsambands, þá eru karlar vongóðir um að þeir komi þeim í bólið. Sjá www.bbc.co.uk. Konur hrifnari af kossum Reykingamenn eru líklegri til að þróa með sér Alzheimers-sjúkdóm og önnur vitglöp umfram þá sem hætt hafa reykingum eða aldrei reykt. Þetta kemur fram í tímaritinu Neurology um niðurstöður hol- lenskrar rannsóknar. Fylgst var með sjö þúsund manns, eldri en 55 ára, í sjö ár, en á rannsóknartím- anum voru 706 einstaklingar í úrtakinu greindir með vitglöp. Þekkt er að erfðavísirinn APOE4 eykur áhættu á vitglöpum. Hætta á Alzheimers-sjúkdómnum jókst ekki hjá þeim einstaklingum sem reyktu og voru með APOE4-erfða- vísinn í sér, en þeir sem ekki höfðu þann erfðavísi voru 70 prósent lík- legri til að fá Alzheimers ef þeir reyktu. Reykingar auka einnig hættu á heilablóðfali sem á sama tíma veldur skemmdum á heila og vitglöpum í kjölfarið. Aukin hætta á elliglöpum Vinnutíminn er sá þáttur sem hefur mest áhrif á nætur- svefn. Því meiri vinna, þeim mun minni svefn. Tímaritið Sleep birtir nið- urstöður bandarískrar rann- sóknar sem náði til 50 þúsund þátttakenda á þriggja ára tímabili. Þeir sem sváfu skemur en fjóra og hálfan tíma að nóttu, unnu að meðal- tali 93 mínútum lengur á virk- um dögum og 118 mínútum lengur um helgar. Í saman- burði unnu þeir sem fengu ellefu tíma nætursvefn að meðaltali 143 mínútum minna á virkum dögum og 71 mínútu minna um helgar. Þeir sem sváfu stutt eyddu einnig meiri tíma í félagslíf, nám og húsverk, en í samanburði jókst sjónvarpsgláp hjá þeim sem sváfu lengur. Aldurshópurinn 45 til 54 ára svaf minnst og vann mest. Næst vilja rannsakendur mæla áhrif mikillar vinnu og lítils svefns á heilsufar. Nú þegar hafa rannsóknir sýnt að fólk brennir kertin í báða enda vegna aukinnar kröfu vinnuveitenda á lengri vinnu- degi. Nútímatækni hefur ekk- ert gert til að auka frítíma hins vinnandi manns, sem bitnar á svefntíma hans og lífsgæðum. Sjö til níu tíma nætursvefn er enn ráðlagður fullorðnu fólki sem vill lifa við heil- brigði og auknar lífslíkur. Vinnuálag vont nætursvefninum Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.