Fréttablaðið - 04.09.2007, Qupperneq 22
4. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR2 fréttablaðið tölvur og tækni
Wii-leikjatölvan frá Nintendo
er komin í efsta sæti í leikja-
tölvustríðinu. Síðan hún kom
út í lok síðasta árs hefur hún
selst ævintýralega vel og hafa
framleiðendur vart undan
að anna eftirspurninni. Fleiri
eintök hafa selst af Wii en
Xbox360, sem hefur verið á
markaðnum tvöfalt lengur eða
síðan í nóvember árið 2005.
Samkvæmt heimasíðu VG Charz,
sem tekur saman sölutölur leikja-
tölva um allan heim, hefur Wii
frá Nintendo selst best af þrem-
ur leikjatölvum þessarar kyn-
slóðar, eða í 10.910.000 eintökum.
Xbox360 frá Microsoft fylgir fast
á eftir með 10.670.000 seld eintök,
en hún kom hins vegar mun fyrr
út en Wii. Lestina rekur PlayStat-
ion 3 frá Sony, sem kom út á svip-
uðum tíma og Wii í Bandaríkjun-
um, með 4.390.000 eintök.
Wii hefur því tekið toppsætið í
leikjatölvustríðinu með 42 prósent
af seldum leikjatölvum þessarar
kynslóðar, Xbox360 kemur næst
með 41,1 prósent og PlayStation 3
er í þriðja og síðasta sæti með 16,9
prósent.
Töluverðar efasemdir voru um
velgengni Wii áður en hún kom á
markað, sér í lagi vegna þess hve
óvenjuleg hún er miðað við hefð-
bundnari leikjatölvur. Í stað þess
að leggja áherslu á öflugri tölvu
með hraðari örgjörva og flottari
leikjum einbeittu starfsmenn Nin-
tendo sér að því að gera tölvuna
aðgengilegri fyrir þá sem ekki
hafa átt leikjatölvur hingað til.
Til að mynda líkist stýripinn-
inn frekar sjónvarpsfjarstýringu
en hefðbundnum stýripinna fyrir
leikjatölvur, og er með innbyggð-
um hreyfiskynjara. Íþróttaleiki á
borð við tennis og keilu er hægt að
spila með því að hreyfa fjarstýr-
inguna eins og spilarinn í leikn-
um, rétt eins og þú haldir á tenn-
isspaða eða keilukúlu.
Miðað við velgengni tölvunn-
ar síðan hún kom út virðist sem
starfsmenn Nintendo hafi náð
markmiði sínu, að fanga áhuga
þeirra sem ekki hafa keypt leikja-
tölvur áður. salvar@frettabladid.is
Wii trónir á toppnum
Wii er töluvert minni en Xbox360 og
PlayStation 3, og stendur upp á rönd í
stofunni. Stýripinninn er ekki ósvipaður
sjónvarpsfjarstýringu eins og sést á
myndinni.
1 11 21 31 41 51 61 71 81 91
10.000.000
9.000.000
8.000.000
7.000.000
6.000.000
5.000.000
4.000.000
3.000.000
2.000.000
1.000.000
0
Sala á leikjatölvum á heimsvísu síðan þær komu á markað
Playstation 3
Wii
Xbox360
Vikur síðan sala hófst
Fjöldi
eintaka
Nýir tölvuleikir bætast hratt í
hóp þeirra sem fyrir eru, eru
hver öðrum betri og mega aðdá-
endur tölvuleikja hafa sig alla
við til að fylgjast með því sem
er nýjast á markaðnum hverju
sinni. Hér má líta nýjustu leikina
frá Senu fyrir hinar ýmsu teg-
undir tölva. - sig
Nýir og spenn-
andi tölvuleikir
RATATOUILLE er byggður á
samnefndri kvikmynd frá Pixar. Auk
hefðbundinnar spilunar geta leik-
menn leyst fjölda minni leikja sem
ganga út á að leysa hin ýmsu verk-
efni í eldhúsinu. Leikurinn nær and-
rúmslofti myndarinnar fullkomlega
enda skartar hann röddum þeirra
sem talsettu myndina. Leikurinn
er fyrir PC, PS2, PS3, PSP, Xbox 360
og NDS
BOOGIE er partíleikur ársins
fyrir Nintendo Wii. Leikmenn geta
dansað, sungið og búið til sín eigin
tónlistarmyndbönd, allt með því
að nota Wii stýripinnann og hljóð-
nema sem fylgir leiknum. Leikurinn
inniheldur meira en 40 lög og geta
fleiri en einn spilað saman. Leikur-
inn er fyrir þriggja ára og eldri.
HEAVENLY SWORD kemur
út 19. september næstkomandi og
er gríðarlega flottur leikur. Sögu-
þráðurinn er fullur af drama og
hasar en grafík og myndskeið leiks-
ins sýna hvað býr í PlayStation 3
tölvunni. Leikurinn er blanda af
hasar, húmor, hröðum bardagaat-
riðum og öflugum söguþræði og
er örugglega einn af leikjum ársins.
BIOSHOCK er tímamótaleik-
ur frá þeim sömu og gerðu System
Shock leikina. Hér þvælast menn
um neðansjávarborg og þurfa að
gera allt til að bjarga eigin skinni,
jafnvel fórna mannkyninu. Leikur-
inn er blanda af skotleik og hlut-
verkaleik þar sem menn upplifa
ýmiss konar hrylling í einhverri
glæsilegustu grafík sem sést hefur.
Bioshock er fyrir 18 ára og eldri og
er til í PC og Xbox 360.
SINGSTAR 90‘S er með þrjá-
tíu topplögum frá tíunda áratugn-
um. Öllum lögunum fylgja uppruna-
legu myndböndin en leikirnir eru
með þeim vinsælli á Íslandi í dag.
Meðal laga eru: Everybody Hurts
með REM, Wannabe með Spice Girls,
Creep með Radiohead og fleiri.
GUITAR HERO ROCKS
THE 80‘S er sá nýjasti af Guitar
Hero leikjunum sem hafa slegið
í gegn hér á landi og hleypt lífi í
ófá partíin. Í leiknum, Guitar Hero
Rocks the 80‘s, geta leikmenn
dúndrað sér í gegnum heitustu
rokklög níunda áratugarins. Tveir
geta keppt saman eða á móti hvor
öðrum í þessum leik sem ætlaður
er fyrir sjö ára og eldri í PS2-tölvum.
Einar Baldvin Arason kvikmyndagerðarmaður
finnur endalaus tækniundur á uppboðssíðunni
eBay.
„Laserpod er ein uppáhaldsgræjan mín. Þetta er
svona leysilampi sem virkar eins og nútímalegur
lavalampi og er líka handhægt leysisjóv. Þetta virkar
best með reykvélina í gangi í dimmu herbergi en það
gerist því miður ekki alveg nógu oft hjá mér. Síðan
er hægt að framkalla enn betri stemningu með tón-
list undir,“ segir Einar Baldvin Arason kvikmynda-
gerðarmaður sem segir lampann vera magnaðan
þegar hann er kominn í gang.
„Ljósin fljúga út um allt og vekja rosaleg áhrif
enda er laserpod alveg málið núna, því Ipod er svo
2004,“ segir Einar Baldvin hlæjandi.
Einar bæði tekur og framleiðir innslög hjá Sjón-
varpinu ásamt því að klippa og liggur þá löngum
stundum yfir klippiforritinu AVID. „Ég hef mest-
megnis notað PC en núna ákvað ég að bregða út af
vananum og var að panta mér MacBook sem er á leið-
inni til landsins. Ég hef heyrt að það sé mjög þægi-
legt að vinna á makkann og í mínu starfi er gott að
vera hæfur á bæði,“ segir Einar Baldvin og bætir
við: „Ég hef þó mest gaman af litlum heilalausum
tæknigræjum sem ég finn á eBay og get leikið mér
að þegar ég er ekki í vinnunni.“
Að eigin sögn er Einar Baldvin forfallinn eBay-fík-
ill og fékk einmitt leysilampann þar. „Það má segja
að hver einasti dagur sé eins og jól þegar ég er með
pakka á leiðinni frá eBay,“ segir Einar Baldvin hlæj-
andi sem vinnur að því að innrétta heimilið sem leik-
völl fyrir fullorðinn strák.
„Ég er með fótboltaspil og margar litlar tækni-
græjur frá eBay auk þess að vera með Playstation
2. Við hittumst síðan átta saman og spilum með skjá-
varpann í gangi og laumum kannski inn einum bjór
á meðan,“ segir Einar Baldvin. Auk leysilampans
hefur Einari fengið á eBay lyklakippur sem geta spil-
að gítarsóló og syngjandi upptakara.
Hann viðurkennir fúslega að hann hafi verið
tölvunörd sem krakki og að þannig sé það jafnvel
enn. „Ég spilaði mikið á Amstrad sem krakki og þá
einhvern vetraríþróttaleik og síðan tók Nintendo
við. Ég er enn í íþróttunum og uppáhaldsleikurinn í
dag er fótboltaleikurinn Pro Evolution Soccer,“ segir
Einar Baldvin og bætir við: „Það má samt segja að
ég sé svona alhliða tækniáhugamaður og á erfitt með
að gera upp á milli. Enda er aðalatriðið bara að hafa
gaman að þessu.“ rh@frettabladid.is
Syngjandi upptakarar
Einar Baldvin Arason hefur gaman af allri tækni og heldur
mikið upp á leysilampann góða.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA