Fréttablaðið - 04.09.2007, Síða 24

Fréttablaðið - 04.09.2007, Síða 24
 4. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR4 fréttablaðið tölvur og tækni GPS-staðsetningartækin eru vörður nútímans sem hjálpa fólki að rata á ferðalögum. Sú tækni hefur rækilega sann- að gildi sitt og er í stöðugri framþróun eins og Ríkarður Sigmundsson hjá fyrirtækinu R. Sigmundsson lýsir. „Stærsti vaxtarbroddurinn í GPS- tækninni er í svokölluðum leið- sögutækjum sem hjálpa þér að komast í viðtal á réttum stað á réttum tíma. Við hjá R. Sigmunds- syni erum þeir einu sem bjóðum upp á slíka tækni hér á landi. Þá á ég við kort sem tilgreina ein- stefnu, hámarkshraða á hverjum vegi, heimilisföng og alls konar upplýsingar. Verkfræðistofan Hnit og dótturfélag hennar, Sam- sýn, hafa lagt í gríðarlega vinnu fyrir okkur við að safna saman gögnum úr ýmsum áttum og setja inn á kortin. Við erum þar með um 40.000 örnefni og yfir 4.000 staði sem veita þjónustu, svo sem sund- laugar, lögreglu, heilsugæslu, bensínstöðvar, skíðasvæði, versl- anir, hótel, golfvelli og söfn svo nokkuð sé nefnt. Við blöndum þannig saman í okkar tæki upplýsingum um ör- nefni, leiðir og hæðarlínur í óbyggðum og leiðsögutækni sem hjálpar þér að finna heimili fólks sem er kannski nýflutt í eitthvert úthverfa Kópavogs sem þú hefur aldrei komið í áður. Kortin eru á geisladiski sem hægt er að skoða í Windows-stýri- kerfi í tölvunni og færa síðan inn í GPS-tækið. Þannig er hægt að skipuleggja ferðalag og skoða áhugaverða staði í tölvunni á stór- um skjá og senda staðsetning- ar yfir í tækið sem síðan leiðir fólk á staðinn. Snertiskjáir á tæk- inu hjálpa til við að velja það sem verið er að leita að.“ Ríkarður segir þennan leiðsögu- búnað eingöngu gilda í Garmin- tæki. „VHS- og Beta deilan í gamla daga hjá vídeóunum er þúsund- föld í þessum geira. Hver fram- leiðandi hefur sitt form á gögnun- um. Við erum umboðsmenn fyrir Garmin GPS-tæki og fengum Hnit og Samsýn til að búa til kort sem ganga í þau. Við seljum svo bún- aðinn í flestum útivistarbúðum, Fríhöfninni, Elkó, Bílanausti og hjá umboðsmönnum um allt land,“ upplýsir hann. Garmin-tækin eru til í mörg- um útfærslum að sögn Ríkarðs og verðið er frá 39.000 upp í á annað hundrað þúsund króna. „Sum tækin eru með Bluetooth-síma- búnaði til að hafa í bílnum og á honum kviknar þegar kveikt er á bílnum. Síminn er aldrei tek- inn upp úr töskunni en ef hann hringir sést á skjánum hver er á línunni, svo er hátalari og míkra- fónn á tækinu. Sumum GPS-tækj- um fylgir innbyggt tæki til að nota í akstri erlendis. Það tekur við um- ferðarupplýsingum og lætur vita ef slys, vegagerð eða aðrar hindr- anir eru framundan. Tækið getur þá valið nýja leið framhjá staðn- um ef óskað er. Þetta er magnað kerfi.“ gun@frettabladid.is Virka jafnt í óbyggðum sem úthverfum Kópavogs „Við höfum sett kort inn í tækin okkar sem eru með alls konar upplýsingum,“ segir Ríkarður. Garmin-tækin henta vel við margs konar skilyrði. Farsímabann hefur verið sett á ferðamannaparadís í Karíbahaf- inu. Stundum er áreitið svo mikið í nútímasamfélagi að marga dreym- ir um að komast í frí þar sem tæki og tól eins og iPod og farsímar eru hreinlega skilin eftir heima. Nú gætu þeir hinir sömu látið drauminn rætast með fríi á Palm Island, fjölsóttri eyju sem tilheyr- ir Grenadíneyjunum í Karíba- hafinu. Þar er blátt bann lagt við notkun farsíma, fartölva og ann- arra tækja á ströndum eyjunnar. Hljómar eins og fullkomin flóttaleið fyrir þá sem vilja sleppa við allan ysinn og þysinn. - rve Farsímalaust frí Suma dreymir um frí án allra tækja og tóla.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.