Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 46

Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 46
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég hef reyndar ekki séð þetta,“ segir Sigurður Hjartarson, safn- stjóri Hins íslenzka Reðasafns. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær eyddi gamanleikarinn Will Forte drjúgum tíma í að ræða heimsókn sína á Reðasafn Sigurðar á Húsavík hjá spjallþáttastjórn- andanum Conan O‘Brian. Reðasafnið hefur vakið verðskuldaða athygli að undan- förnu og nýlega birti spænska dagblaðið El Periódico stóra grein eftir Xavier Moret um safnið. Greinin var skrifuð á bæði kast- ilísku og katalónsku þannig að allir gætu lesið hana. Að sögn Sigurðar hefur síminn varla stoppað eftir að sú grein kom út og hafa blaðamenn frá Chile og Spáni viljað forvitnast um þetta sérstæða safn. Þar að auki var safnstjórinn í löngu viðtali við kanadíska útvarps- stöð sem vakti mikla athygli meðal Íslendinganna þar. „Markús Örn Antonsson, sendiherrann okkar í Kanada, sendi mér meðal annars póst og þakkaði mér fyrir að Íslend- ingar væru ennþá með húmor. Við áttum afar góð og gagnleg bréfa- skipti,“ segir Sigurður. Það sem hefur fangað athygli erlendra miðla hvað mest er yfirlýst gjöf Páls Arasonar enda hefur hann ánafnað stolti sínu og djásni til safnsins. Reðasafnið var stofnað fyrir tíu árum, þann 23. ágúst árið 1997. Sig- urður hélt upp á afmælið með því að hafa frítt inn en að eigin sögn mættu aðeins fjórir til afmælis- veislunnar. „Annaðhvort eru Hús- víkingar búnir að sjá þetta allt saman eða þá að enginn er spámað- ur í eigin föðurlandi,“ útskýrir Sig- urður og þótti nú fyrri skýringin líklegri. En sumarið í ár hefur verið gott og segir Sigurður að fá söfn geti státað af rúmlega fjórð- ungs aukningu gesta og því sé gott ris á Reðasafninu. Hann þakkar það ekki síst áhuga erlendra fjöl- miðla á safninu en vefsíðan Odd- Edge.com hefur meðal annars valið safnið eitt það skrítnasta í heimi. En nú er síðasta opnunarvika sumarsins staðreynd enda fækkar ferðamönnum jafnt og þétt þegar vetur konungur hefur innreið sína. Sigurður er þó hvergi af baki dott- inn því hann tekur á móti stórum hópi sjónvarpsfólks frá bresku sjónvarpsstöðinni ITV um miðjan næsta mánuð en það vill fræðast um eitt sérstæðasta safn Íslands. „Þetta er alveg skelfilega svekkj- andi,“ segir Óttar Guðnason kvik- myndatökumaður en gerð kvik- myndarinnar Stopping Power hefur verið slegið á frest um óákveðinn tíma. Frá þessu er greint í kvikmyndatímaritinu Variety. Óttar er kominn heim frá Berlín en þar átti hann að vera fram til jóla og hann segir að það hafi verið erfitt að ganga niður landganginn í flughöfn Leifs Eiríkssonar. „Þetta er alveg svakalega skrít- ið því einn af fjárhagslegu bakhjörlum myndarinnar hætti skyndilega og dró fjármagn sitt til baka,“ útskýrir Óttar en viður- kennir um leið að þetta sé vafalít- ið mun flóknara en svo. „Mikil vinna hafði farið í undirbúning- inn, ég er búinn að vera þarna í átta vikur og eflaust eiga ein- hverjir eftir að höfða skaðabóta- mál á hendur Internationalmedia sem framleiðir myndina,“ segir Óttar sem sjálfur beið hins vegar engan fjárhagslegan skaða enda var greitt út vikulega. „Ég var þarna líka minna út af peningun- um og meira út af þeirri dýr- mætu reynslu sem ég fékk og bý að þrátt fyrir allt.“ Stopping Power var heldur engin „smámynd“. Jan De Bont er einn af þeim stóru í Hollywood og á að baki smelli á borð við Speed og Twister auk þess sem hann er virtur tökumaður sjálfur. Stórstjarnan John Cusack hafði verið ráðin í aðalhlutverkið og var undir- búningur á lokastigi þegar áfallið reið yfir. „Búið var að kaupa 160 bíla og mála tvær flugvélar. Annars skilst mér að það sé mjög óvenjulegt að blása af mynd þegar undirbúningurinn er kominn á þetta stig,“ segir Óttar sem bjóst við að hella sér aftur út í gerð auglýsinga þegar heim væri komið. Óttar svikinn um stórmyndina „Þetta var þrautalending. Menn voru bara komnir út í horn með þetta forlag,“ segir Hallgrímur Helgason um fyrirhugaðan sam- runa JPV og Máls og menningar í Forlaginu. Hann kvaðst þó ánægður með niðurstöðuna. „Ég þekki Jóhann Pál og hef ekkert nema gott af honum að segja, svo ég er sáttur við mitt,“ sagði rit- höfundurinn, sem kallar afdrif Máls og menningar sorgarsögu. „Þetta er forlag sem stóð ágæt- lega í eigin húsnæði fyrir tíu árum, en fór í mikla óvissuferð. Nú er staðan þannig að forlagið þurfti að selja húsið til að kaupa sjálft sig, til að láta Jóhann Pál svo hafa það. Mér finnst það sorgarsaga,“ sagði Hallgrímur. Einar Már Guðmundsson, sem hefur gefið út undir merkjum Eddu, eins og Hallgrímur, sagði ekki annað hægt en að lítast vel á nýtt fyrirkomulag. „Þarna eru komnir saman þeir sem hafa mesta reynslu af bókaútgáfu,“ sagði Einar Már, og benti á að breytingarnar yrðu líklegast til þess að minnka yfirbyggingu í bókaútgáfunni. „Kannski var Edda, svona eftir á að hyggja, ekkert sniðugt fyrir- komulag, sér- staklega vegna þess að það varð svo mikil yfirbygging,“ sagði hann. Einar sagðist þó geta ímyndað sér að stærð nýs forlags yrði til vandkvæða fyrir nýja höfunda. „Ég læt mér svona detta það í hug að það sé kannski ekkert sér- staklega góð staða að það sé nán- ast bara einn staður sem menn geta snúið sér til,“ sagði hann. Stefán Máni, sem fór frá Eddu til JPV eftir nokkra óánægju með kynningu Eddu á bók hans, Túr- istanum, sagðist ánægður með breytingarnar. „Á meðan Jóhann Páll og hans ágæta fjölskylda sér um mín mál er ég sáttur. Þetta er mín fjölskylda í útgáfumálum,“ sagði Stefán Máni. Stærð Forlagsins var honum ekki áhyggjuefni. „Hún er bara hug- læg. Þetta snýst um fólk, og stærð hússins skiptir engu máli,“ sagði hann. Jóhann Páll Valdimarsson, sem verður útgefandi hjá Forlaginu, sagðist ekki hafa náð að tala við alla þá höfunda sem breytingarn- ar snerta. „Ég er í kapphlaupi við tímann að reyna að tala við fólk,“ sagði Jóhann Páll, „en allir þeir sem mér hefur unnist tími til að tala við hafa tekið þessu hreint og beint faganndi.“ Hann sagði Arnald Indriðason og Ólaf Jóhann Ólafsson, tvo söluhæstu rithöfundana Eddu- megin, hafa tekið vel í fyrirhug- aðar breytingar. „Ég hef rætt við þá og á eftir að ræða við þá nánar. Ég er ákaflega vongóður um að ég njóti samstarfs við þá í framtíð- inni,“ sagði Jóhann Páll. Taka Forlaginu opnum örmum „Ég fer reyndar voða lítið út að borða, en þegar ég geri það er Sjávarkjallarinn efstur á listanum.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.