Tíminn - 25.01.1981, Blaðsíða 12

Tíminn - 25.01.1981, Blaðsíða 12
Sunnudagur 25. janúar 1981. 12 65 hestafla Á TILBOÐSVERÐI Eigum 5 st. 65 ha. URSUS dráttavélar með upphituðu húsi, sem verða seldar á tilboðsverði eða kr. 42.000.- Greiðslukjör: 25.000.- út, eftirstöðvar á 5 mánuðum VfiiKK Sundaborg 10 — Símar 8-66-55 & 8-66-80 Sviftsmynd úr nýja leikritinu. Þjóðleikhúsið: Líkaminn — annað ekki á Litla sviðinu Frumsýning á Litla sviði Þ jóðleikhússins: Likaminn — annað ekki eftir James Saunders Nk. þriðjudagskvöld, 27. janú- ar, kl. 20.30 frumsýnir Þjóð- leikhúsið nýlegt breskt leikrit eftir James Saunders á Litla svið- inu. Leikritið heitir „Bodies” á frummálinu, en hefur i islenskri þýðingu örnólfs Árnasonar hlotið nafnið LIKAMINN — ANNAÐ EKKI. Það er Benedikt Árnason sem leikstýrir, en Jón Svanur Pétursson gerir leikmynd og bún- inga, er þetta fyrsta leikmyndin sem Jón Svanur gerir fyrir Þjóð- leikhúsið, en hann hefur starfað sem leiktjaldamálari við stofnun- ina nokkur undanfarin ár. Páll Ragnarsson sér um lýsinguna i sýningunni. Hlutverkin i leiknum eru aðeins fjögur og eru i höndum Krist- bjargar Kjeld, Gisla Alfreðsson- ar, Steinunnar Jóhannesdóttur og Sigmundar Arnar Arngrimsson- ar. LIKAMINN — ANNAÐ EKKI er meðal þeirra leikrita sem hvað mesta athygli hafa vakið i Bret- landi á siðari árum, en annars er James Saunders reyndur kunn- áttumaður i leikritun sem samið hefur fjölda leikverka bæði fyrir leiksvið, útvarp og sjónvarp. Þjóðleikhúsið hefur reyndar áður sýnt leikrit eftir Saunders, en það var „Næst skal ég syngja fyrir þig” sem sýnt var á Litla sviðinu i Lindarbæ veturinn 1966-67. — Erfitt er að segja frá efni verks- ins án þess að ljóstra upp um efnisþráðinn sem ekki væri sann- gjarnt gagnvart væntanlegum á- horfendum. Þó er óhætt að geta þess, að leikritið f jallar um tvenn hjón, önnu og Margeir, sem Kristbjörg og Gisli leika, og Helenu og Davið, sem Steinunn og Sigmundur örn leika. Hjón þessi hittast eina kvöldstund eftir niu ára aðskilnað, en áður fyrr hafði verið mjög náinn vinskapur með þessu fólki. Niu ár eru langur timi af mannsævi og ýmislegt hefur breyst, ekki sist fólkið sjálft. A þeim árum sem liðin eru, hefur lifsgildi og verðmætamat þessa fólks breyst mjög og lýstur þarna saman ólikum viðhorfum til manneskjunnar og lifsins, breytni mannsins og kennisetn- inga. Rekstur Litla sviðsins er ýms- um vandkvæðum háöur og er skortur á sýningarkvöldum og geymslurými einn alvarlegasti vandinn. Nú hefur það i tvigang gerst á þessu leikári, að til frum- sýningar kæmi áður en næsta leikrit á undan væri útgengið sem kallaðer. Þannig lauk sýningum i haust á I ÖRUGGRI BORG Jök- uls Jakobssonar fyrir fuliu húsi er leikrit Valgarös Egilssonar DAGS HRIÐAR SPOR var frum- sýnt, og nú hefur verið gripið til þess ráðs að flytja DAGS HRIÐ- AR SPOR upp á stóra sviðið og ljúka sýningum þar. Svipaö hefur raunar veriðgertáðurog af sömu ástæðum og nægir i þvi sambandi að nefna sýningarnar á NÓTT ÁSTMEYJANNA og INUK sem báðar voru frumsýndar á Litla sviðinu. Einhell vandaöar vörur Rafsuðuvélar Ódýrar, handhægargerðir. Skeljungsbúðin Suöulandsbfaut 4 sítí 38125 Heildsölubirgöir: Skeiungur hf. Smáyörudeid-Laugavegi 180 sími 81722 spörum RAFORKU Askrift?* Eítt símtal, -eöa miöann'í póst. Þannig verður þú áskrifandi að Eiðfaxa: Hringir í síma (91)85111 eða (91)25860. Þú getur líka fyllt út hjálagðan miða og sent okkur. Síðan sjáum við um að þú fáir blaðið sent um hæl. Flóknara er það ekki. ★ Eiðfaxi er mánaðarrit um hesta og hestamennsku. Vandað blað að frágangi, prýtt fjölda mynda. IEI3FAX I Pósthólf 887 121 Reykjavlk .1 Slmi 8 5111/258 60 Ég undirritaður/undirrituð óska að gerast áskrifandi að Eiðfaxa: I—iÞaðsemtiler i—i i—■ fra og með I J af bloðum fra upphafi. I I frá aramotum 80/81. | J naesta tolublaði. NAFN NAFNNUMER HEIMILI POSTNUMER p Eiðfaxi hóf göngu sina 1977 og hefur komið út manaðarlega siðan. Hvert eintak af eldri blöðum kostar nú 15 Nýkr. Fyrri hluti 1981, januar-júni kostar 90 Nýkr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.