Tíminn - 28.01.1981, Page 4

Tíminn - 28.01.1981, Page 4
WilIUií '•í spegli tímans1 Peter dreymdi um aö veröa aölaöur. Heföi hann oröiö eiginmaöur Margrétar prinsessu, heföi sú ósk hans rætst. 24. júli 1980 dó leikarinn vinsæli Peter Sellers af hjartaslagi. Eins og að lik- um lætur hafa margir siöan reynt að gera sér minningar um hann að féþúfu. Kemur upp úr kafinu, að hann var margslunginn maður, sem átti i erfiðleikum með sjálfan sig. Hann fékk fyrst alvar- legt hjartaáíall 1964, er hann var giftur Britt Ekland. Er sagt, að hann hafi þá verið dáinn samtals i 90 sekúndur. Eftir þann atburð fannst honum hann oft endurlifa dauðastundina og fékk mörg og erfið þunglyndisköst. Ekki var hann þó af baki dottinn i kvennamálum, en hvað þau varðaði lifði hann fjölbreyttu og erfiðu lifi. Fyrsta konan i lifi hans var móðir hans, Peg. Hún var Gyðingur og helgaði syni sinum krafta sina til ævi- loka. Sumum þótti nóg um, hversu náið samband var milli þeirra mæðginanna. Af þvi kom að Peter festi ráð sitt. Hann giftist ástralskri leikkonu, Anne Hayes að nafni. Það hjónaband entist i 11 ár, en fór út um þúfur skömmu áður en hann giftist BrittEkland. Eiginkona nr. 2 var sem sagt Britt Ekland, þau giftust 1964, en skildu 1968. Og nú fór snjóboltinn að rúlla hratt i kvennamálum hjá Peter. Er það fyrst frá þvi að segja, að um sama leyti og þau Britt skildu, var hjónaband Margrétar prins- essu og Snowdon lávarðar að fara út um þúfur, en mikið vinfengi var með þessum tvennum hjónum. Fékk nú Peter þá flugu i höfuðið, að hann ætti að giítast Mar- gréti. En eitthvað var hann ekki vel að sér i hirðsiðum I þessum málum og fór svo að Margrét hafnaði honum al- gerlega. Síðan lagði Peter hatur á Ron Llewellyn, sem varð vinur Margrétar, en Margret gaf Peter þá eink- unn, að hann væri erfiðasti karlmaður, sem hún hefði kynnst. Þá var leitað að þvi næst besta, og nú krækti Peter i 22 ára stúlku, Miröndu Quarry, sem átti lávarð að stjúpföð- ur. Reyndar var Peter búinn að reyna við Miu Farrow i millitiðinni. Miranda reynd- ist fljótlega hafa bæði töglin og hagldirnar i hjónaband- inu. Svo var það, að Peter hitti Lizu Minelli. Var þar um ást viðfyrstu sýn að ræða og hann tilkynnti umheimin- um, að þau væru trúlofuð. Reyndar var hann enn giftur Miröndu, en það skipti ekki máli. En 3 dögum siðar sleit Liza trúlofuninni eftir að stjörnuspekingur hafði sagt henni, að úr þessu yrði aldrei hjónaband. Airam hélt Peter i kvennaleit. Einu sinni tók hann með sér sænsku stúlk- una Titti Wachtmeister til Kýpur, þar sem hann vann við kvikmyndaupptöku. En kvöld eitt þótti honum hún of alúðleg við sessunaut sinn á veitingahúsi, svo að hann rauk til, pakkaði niður farangri hennar og skellti töskunni á borðið hennar og örskraði: —Farðu frá Kýpur með fyrstuflugvél! Reyndar tókst ekki betur til en svo i daufri lýsingunni, að hann haföi farið borðavillt og átt- aðisig ekki fyrr en undrandi stúlkurödd sagði: — Ha? Ég? En ég á heima hér. 1976 gerði Peter svo siðustu til- raunina til að hreiöra um sig i rólegu hjónabandi. Þá gift- ist hann Lynne Frederick, sem ekki var nema 21 árs gömul. Kunnugir segja, að hún hafi ekki alltaf átt góða daga I hjónabandinu, en hún þraukaði, jafnvel eftir að Peter sjálfur kom þeim orð- rómi á kreik að skilnaður væri í vændum. Hann fékk svo hvert hjartaáfallið á fæt- ur öðru, en var ekki til við- tals um að hægja aðeins ferðina. Þvi fór sem fór. Að- eins 54 ára að aldri varð hann að lúta i lægra haldi, er hjartað gafst endanlega upp. t fjögur ár stóö stormasamt hjónaband Peters og Britt Ekland. Peter var veikur fyrir aöal- bornu fólki. Honum þótti þvi stór sigur unninn, þegar hann fékk Miröndu Quarry aö konu. Mjög náiö samband var meö Peter og móöur hans, Peg. Hann ieitaöi alltaf aö eftir- mynd hennar i hverri þeirri konu, sem hann kynntist. Lynne Krederick, siöasta eiginkona Peters, varö fljótlega aö læra þaö, aö hennar hlutverk i hjónabandinu var móöurhlutverk- iö. Hún varö aö porra hann upp, þegar hann fékk þunglyndis- köstin. — Hækkaö um tikall, segiröu. Hefur vatnið nú hækkaö einu sinni enn? Æ tf -^Tl Miövikudagur 28. janúar 1981 krossgáta 3494. Krossgáta Lárétt 1) Hirzla. 5) Fugl. 7) Vin. 9) Andi. 11) Eins. 12) Kyrrð. 13) Rödd. 15) Gutl. 16) Púki. 18) Kátur. Lóðrétt 1) Saumur. 2) Stafrófsröö. 3) Stór. 4) Klukku. 6) Rari 8) Vond. 10) Baugur. 14) Svik. 15) Her. 17) Sólguö. Ráðning á gátu No. 3493 Lárétt 1) Magnar. 5) Ort. 7) Náð. 9) Agn. 11) In. 12) Lú. 13) Nam. 15) Rær. 16) óró. 18) Státin. Lóörétt 1) Máninn. 2) Goð. 3) Nr. 4) Ata. 6) Snúr- an. 8) Ana. 10) Glæ. 14) Mót. 15) Rót. 17) Rá. bridge AV i þessu spili voru greinilega engir snillingar. Og að visu gerði sagnhafi mis- tök lika. En honum tókst að snúa sig útúr vandræðunum á skemmtilegan hátt. Norður. S. K753 H. 53 T. G4 L. ADG54 Vestur. Austur. S. 109642 H. G6 T. 1085 L. 732 S. - H. AK10742 T. K963 L. K84 Suður. S. ADG8 H. D98 T. AD72 L. 109 Vestur. Norður. Austur. Suöur. pass 1 hjarta dobl pass 2 hjörtu pass 2 spaðar pass 4 spaðar allir pass. Vestur spilaði hjartagosa út og austur tók ás og kóng og skipti siðan i litinn tigul. Eftir opnun austurs hefði verið nokkuð öruggt að hleypa þessu á gosann, en suður taldi að hann fengi niðurkast i borði i hjartadrottningu, gvo hann stakk upp tigulás og tók spaðaás. Útlitið dökknaði allmikið við þær fréttir sem hann fékk nú og það var ljóst að eitthvað þurfti að ger- ast meira en sagnhafi var einfær um aö framkvæma. Suður byrjaði á að spila hjartadrottn- ingu. Vestur timdi ekki að sjá af trompi i þennan slag heldur henti laufi svo tigullinn fór niður i borði þátt fyrir allt. Þá spilaði suður iaufi á ásinn og siðan litlu laufi. Austur hafði ekkert tekið eftir að vestur henti laufi i hjartadrottninguna. Þessvegna las hann lengdarmerkingu vesturs i laufinu vitlaust og fór þvi ekki upp með kónginn. Þegar suður fékk á laufatiu var hann kominn með 5 slagi og næstu 5 i viðbót fékk hann á vixltrompi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.