Tíminn - 28.01.1981, Síða 5
Miðvikudagur 28. janúar 1981
Ibúar Reykjavíkur um 500 færri en áriö 1972:
„Heldur farið að
fjölga aftur tvö
siðustu árin”
— segir Kristján Benediktsson
HEI — „Við erum ekkert
áhyggjufullir yfir þessu i sjálfu
sér, enda á það sér auðvitað
vissar skýringar”, sagði Krist-
ján Benediktsson, borgarráðs-
maður er Timinn ræddi við hann
um þróun á ibúafjölda Reykja-
vikur, sem stundum hefur farið
minnkandi og stóð enn nánast i
stað á siöasta ári. Þegar árið
1972 voru ibúar Reykjavikur
orðnir um 500 fleiri en þeir voru
hinn 1. des. s.l. þött lslendingum
hafi fjölgað um 18 þúsund frá
1972.
Eteykvikingum hætt að
fækka
Kristján benti á, að Reykvik-
ingum væri hætt að fækka og
hefði reyndar heldur farið að
fjölga aftur nú tvö siðustu ár.
Ástæðan fyrir fækkun á árunum
þará undan hefði ma. verið sú,
að nágrannasveitarfélögin t.d.
Garðabær og Mosfellssveit
hefðu þá boðið upp á mjög mikið
af einbýlishúsum og einbýlis-
húsalóðum, sem Reykvikingar
hefðu haft mikinn áhuga á en
skort hefði i borginni. Reykvik-
ingar hefðu þvi margir flutt i
nágrannasveitarfélögin af þess-
um sökum.
Stefnt að æskilegu jafn-
vægi
Núverandi borgarstjórnar-
meirihluti hefði séð þetta og
væri farinn að breyta munstrinu
talsvert, sem þó að sjálfsögðu
tæki nokkurn tima, sagði Krist-
ján. Hann benti á, að á s.l. ári
hafi verið úthlutað i borginni
Kristján Benediktsson.
mun meira af lóðum undir sér-
býli — einbýlis- og raðhús — en
áður hefði tiðkast og þannig y rði
það áfram i ár og næsta ár.
Stefnt væri að þvi að finna æski-
legt jafnvægi.
En hvernig stendur á þvi að i
borg þar sem fólkinu fjölgar
ekki árum saman skuli sifeilt
vera kvartað undan lóðaskorti
og vöntun á húsnæði? Kristján
sagði það m.a. eiga þá skýringu,
aðalltafværi verið aðauka hus-
rými á hvern ibúa og Reykjavik
væri komin mjög langt i þeim
efnum. Að meðaltali séu ekki
orðnir nema um 2,7 ibúar um
hverja ibúð, sem þætti ákaflega
gott, m.a.s. á hinum Norður-
löndunum.
„Unga fólkiö
og eldhússtörfin”
Ný bók fyrir kennslu I heimilisfræöum
450 nýjar ibúðir á ári
meðan borgarbúum
fækkaði
Kristján sagði að s.l. 5 ár hafi
verið byggðar i Reykjavik að
meöaltali um 450 ibúðir á ári.
Aukning húsnæðis hafi þvi verið
gifurleg i borginni á þeim sama
tima og ibúum hafi hinsvegar
fækkað um hálft annað þúsund.
En atvinnulifið i borginni? A
það engan þátt i fækkun ibú-
anna?
„Það held ég ekki”, sagði
Kristján. Allir vissu að Reykja-
vik bæri uppi atvinnulifið á stór-
um hluta höfuðborgarsvæðis-
ins. Garðbæingar, Mosfellingar
og Seltyrningar — sem alltaf
færi þó fjölgandi — sæktu jafn-
vel frá 70-90% af atvinnu sinni
til Reykjavikur. Samdráttur á
vinnumarkaðinum hlyti þá að
koma alveg eins niður á fólks-
fjöldanum i nágrannasveitarfé-
lögunum.
Það væri fyrst og fremst hús-
næðisstefnan sem ráðiö hefði
þróuninni i borginni.
Aftur upp á við
Kristján sagðist nú eiga von á
þvi að þessu stöðnunartimabili
sé lokið og fólksfjöldinn fari aft-
ur að þokast upp á við. Ekki sist
ef takast mætti að glæða heldur
atvinnulifið i höfuðborginni
m.a. meðaukinni útgerð þaðan.
Hinsvegar sé það i sjálfu sér
ekkert keppikefli að draga til
borgarinnar meiri fólksfjölda
en sem nemur eðlilegri fólks-
fjölgun. „Við erum siður en svo
að sækjast eftir þvi”, sagði
Kristján.
VILBORG BJÓRNSDÓTTIR
ÞORGERÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR
UNGA FÚLKIÐ
OG ELDHÚSSTÖRFIN
Aðalmanntal 1981
Manntalseyðublöðum verður dreift i kvöld
til ibúa i þéttbýli á höfuðborgarsvæði og á
Akureyri.
Fólk er beðið að kynna sér eyðublöðin vel,
en láta útfyllingu þeirra biða til helgarinn-
ar, vegna sjónvarpsþáttar á föstudag og
laugardag.
Sveitarstjórnirnar.
Aðalmanntal 1981
Til starfsmanna við manntal
Starfsmenn við manntal 1981 i þéttbýli á
höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri eru
beðnir að mæta til starfa i hverfamiðstöð-
um i kvöld kl.8.
Sveitarstjórnirnar.
Lokað vegna jarðarfarar
Skrifstofur Félagsmálastofnunar Reykja-
vikurborgar i Vonarstræti 4, Siðumúla 34
og Asparfelli 12, verða iokaðar frá kl.13.00
i dag miðvikudag 28. janúar vegna jarðar-
farar Þorkels Á. Þórðarsonar, fulltrúa.
v____________________________:_____ v
WHj Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
igt Vonarstræti 4 sími 25500
St. Jósepsspítali Landakoti
Hjúkrunarfræðing vantar á göngudeild nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veittar á skrifstofu Hjúkrun-
arforstjóra kl. 11-12 og kl. 14-15.
Reykjavik 27. janúar 1981
Hjúkrunarforstjóri.
DAL
saut
.TON
ofjármerki
Nýlega kom út endurskoðuð út-
gáfa af bókinni Unga fólkið og
eldhússtörfin eftir Vilborgu
Björnsdóttur og Þorgerði Þor-
geirsdóttur.
Helstu breytingar eru þær að
vörufræöi er mun ýtarlegri,
geymslu og frystingar matvæla
er getiö og nýjum uppskriftum
bætt við. Ágrip að næringarfræði,
„Fæðan og gildi hennar”, eftir
sömu höfunda, sem fyrst kom út
1978, hefur nú verið fellt inn i
þessa útgáfu, aukið og endur-
skoöað.
Bókin er ætluð til kennslu i
heimilisfræði fyrir 7.-9. bekk
grunnskóla. Jafnframt kemur
hún byrjendum i matreiðslu og
heimilisstörfum aðgóðum notum.
Uppskriftir i bókinni eru byggð-
ar á langri reynslu höfunda. Bæk-
ur þeirra hafa verið notaöar i
skdlaeldhúsum grunnskólanna
slðan 1967 gr „Unga stúlkan og
eldhússtörfin” kom fyrst út.
-
H R
Bændur athugið:
Nú er rétti timinn til að panta DALTON
sauðfjármerkin fyrir vorið.
• DALTON merkin eru úr hertu nylon
• Auðveld isetning með sérstakri töng
• Engar blæðingar og engin hætta á igerð
• Litir skv. reglum um sauðfjárveikivarnir
• Merking: raðnúmer annars vegar; bæjar-
númer, sýslubókstafur og hreppsnúmer
hins vegar.
p
H
ÁRMÚLA11
HSÍ
Forsa/a adgöngumida
kl. 17.30 i Laugardalshöll
Landsleikur í handknattleik
ísland — Frakk/and
í Laugardalshöll kl. 20 í kvöld
Dómarar: Palle Tomansen og Steen Andersen, Danmörku
Handknattleiksunnendur:
Styðjum landsliðið til sigurs
HSI
Handkna ttleikssamband
/s/ands