Tíminn - 18.02.1981, Síða 19
Miðvikudagur 18. febrúar 1981
ÍÞROTTIR
ÍÞROTTiR
23
, „Gott vega
nesti fyrir
B-keppnina”
— sagði Hilmar
Björnsson
landsiiðsþjálfari
eftir leikinn
„Eg er að sjálf-
sögðu mjög ánægður
með úrslitin i leikn-
um sagði Hilmar
Björnsson landsliðs-
þjálfari er Timinn
ræddi við hann eftir
ieikinn.
„Vörnin kom vel út i leikn-
um og eins markvarslan en
ég er ekki nógu ánægður meö
sóknarleikinn, á tima i seinni
hálfleik þá hættum við að
leika „taktik” og leikurinn
leystist upp i hnoö.
En þaö verður þó að benda
á þaö aö við höfðum gott for-
skot og ætluðum okkur að
halda þvi og þá vill þetta oft
leysast upp i sókninni.
Þessi sigur er aö visu gott
vegarnesti fyrir B-keppnina
það er að segja ef leikmenn-
irnir komast i tima niöur á
jörðina, annars fannst mér
A-Þjóðverjarnir ekki vera
sannfærandi i þessum leik '.
I.
.1
Páll Björgvinsson sýndieinn sinn besta landsleik i langan tima á móti A-Þjóðverjum á sunnudagskvöldið, hér hefur hann brotist igegn og aðsjáif-
sögðu hafnaði boltinn I markinu. Tímamynd Róbert
Ölympíumeistararnir stein-
lágu fyrir „litla” íslandi
• íslenska landsliöiö sýndi toppleik er þeir sigruöu A-Þjóöverja 18:15
í Laugardalshöll á sunnudagskvöld
# Einar varði eins og berserkur og Páll Björgvins og Bjarni áttu toppleik
íslenska handknattleiks-
landsliðið vann frábært
afrek á sunnudagskvöldið
er þeir lögðu sjálfa
Olympiumeistara A-Þjóð-
verja að velli 18-15, fyrsti
osigur Þjóðverjanna siðan
í maí á síðasta ári er þeir
töpuðu fyrir Rúmenum,
staðan i hálfleik var 12-7
fyrir ísland.
Það sást vel á leik a-
þýska liðsins að þeir eru
óvanir að vera undir í
leikjum sínum, þeir léku
ráðleysislega i sókninni og
stórgóður varnarleikur
islenska liðsins kom þeim
greinilega á óvart. Þá átti
Einar Þorvarðarson stór-
leik í markinu varði eins og
berserkur allan leikinn.
Annars var þessi sigur islenska
liðsins sigur liðsheildarinnar þó
nokkrir leikmenn hafi átt frá-
bæran leik eins og Bjarni Guð-
mundsson. örugglega hans besti
landsleikur fyrr og siðar, þá átti
Páll Björgvinsson stórgóðan leik
skoraði sex mörk stjórnaði spili
liðsins og áttu mun betri varnar-
leik heldur en á föstudaginn.
Stórskytta a-þýska liðsins
Dreibrodt skoraði tvö fyrstu
mörkin i leiknum, á milli þeirra
hafði Bjarni skotið i stöng úr
hraðaupphlaupi.
Stefán Halldórsson minnkaði
muninn i 1-2 en Pester, sem lék
ekki með Þjóðverjum i fyrri leik-
num kom þeim yfir 3-1, Páll
Björgvinsson skoraði tvö glæsileg
mörk fyrir tsland og staðan jöfn
3-3, aftur var Dreibrodt á ferðinni
með mark, komu flest eftir
gegnumbrot, en Páll Björgvins-
son var ekki lengi að jafna 4-4.
Pester kom Þjóðverjunum
aftur yfir og það i siðasta skipti i
leiknum Siggi Sveins jafnaði og
Páll kom með enn eitt mark og ts-
land komið yfir i fyrsta skiptið i
leiknum 6-5 og fyrri hálfleikur
hálfnaður.
Mistök á báða bóga.
Páll ólafsson, sem um miðjan
hálfleikinn kom inn á fyrir Stefán
Halldórsson i hornið og skoraði
gott mark úr horninu 7-5 og
Ólafur H. Jónsson skoraði glæsi-
legt mark af linu og ísland hafði
náð þriggja marka forystu og
sýnt stórleik þrátt fyrir
nokkur mistök i sókninni en sem
betur fer gerðu Þjóðverjanir sig
seka um fleiri mistök, þannig að
það kom ekki að sök.
Þjóðverjarnir minnka muninn i
tvö mörk 8-6 en Bjarni Guð-
mundsson nær aftur þriggja
marka forystu 9-6 og Páll
Ólafsson skoraði sitt annað mark
úr horninu og staðan 10-6.
tslendingarnir missa Steindór
út af i tvær min. en einum færri
ná þeir samt að skora 11-6. Bjarni
komst inn i sendingu og skoraði
úr hraðaupphlaupi.
Dreibrodt gerði 7. mark
Þjóðverjanna er aðeins min.var
eftir af fyrri hálfleik en Axel
Axelsson skoraði siðasta mark
hálfleiksins 12-7. Axel kom inn á
um miðjan hálfleikinn i staðinn
fyrir Þorberg sem meiddist.
rHann var tekinn bókstaflega með
sniðglimu á lofti af þýsku
vörninni og meiddist illa i baki.
Vonandi að þessi „ljúfi”
leikmaður verði búinn að ná sér
fyrir B-keppnina.
Kemur dauði kaflinn?
tslenska liðið átti frábæran leik
i fyrri hálfleik byrjunin var að
visu ekki upp á það besta en er á
hálfleikinn leið og Island var búið
að ná forystu þá sýndu strákarnir
snilldartakta bæði i vörn og sókn,
og Einar markvörður stóð eins og
klettur i markinu.
Um fátt annað var rætt i hálf-
leik en stórgóða frammistöðu
islenska liðsins, fimm marka for-
ystu á sjálfum Olympiumeistur-
unum. Þó voru menn hóflega
bjartsýnir á sigur landans i leik-
num, dauði kaflinn kemur hann i
upphafi siðari hálfleiks spurðu
margir.
En það hefur einkennt islenska
landsliðið að eiga frekar dapran
leik i smátima og þvi stóra spurn-
ingin hvort til hans myndi koma i
senni hálfleik.
tslenska liðið byrjaði með bolt-
ann i seinni hálfleik og ekki leið á
löngu að þeir skoruðu, Bjarni
brunaði upp en skaut i stöng og
boltinn fór til Steindórs sem
skoraði og lsland hafði náð sex
marka forystu 13-7, Wahl
minnkaði muninn i 13-8 og rétt á
eftir var ólafi H. visað af velli i
tvær min. og Wahl fékk einnig
kælingu i tvær min. og þvi aftur
jafnt i liðunum.
Bjarni skoraði 14. mark tslands
úr enn einu hraðaupphlaupinu 14-
8. Þjóðverjarnir skoruðu næstu
tvö mörk, og staðan 14-10 og Þjóð-
verjarnir fengu vitakast, en þeim
brást bogalistin og Dreibrodt
skaut yfir markið.
Bjarni og Páll Björgvinsson
gerðu næstu tvö mörk Islands og
staðan 16-10 og siðari hálfleikur
hálfnaður.
Þjóðverjar skora 11. mark sitt
en Sigurður Sveinsson sem litið
hafði verið inn á i siðari hálfleik
kom Islandi aftur sex mörkum
yfir 17-11, þá komu tvö mörk frá
Þjóðverjum staðan 17-13 og Páli
Björgvinssyni vikið af velli i tvær
min. og aðeins 7. min. til leiksloka
Island fjórum mörkum yfir og
stóra spurningin hvort þeim tæk-
ist að halda þeirri forystu og
sigra, er 4. min voru eftir fengu
Þjóðverjarnir dæmt vitakast en
Doering skaut úr þvi i slá og yfir
markið.
Næsta sókn islenska liðsins
mistókst og Þjóðverjarnir fengu
úr þvi hraðaupphlaup en Einar
gerði sér litið fyrir og varði.
Islendingarnir reyndu nú að
halda boltanum aðeins 3. min til
leiksloka, en þeir misstu hann og i
sókn Þjóðverjanna fengu þeir enn
einu sinni dæmt vitakast og úr þvi
skoraði Dreibrodtog staðan 17-14.
A-býska liðið var nú gripið ör-
væntingu þeir voru að tapa leik-
num, tapa fyrir litla Islandi-
ósigur sem þeir sjálfsagt höfðu
ekki búist við fyrirfram og gerðu
örvæntir fulla tilraun til þess að
ná boltanum komu vel út á móti
sókn Islands en Páll Björgvinsson
fór illa með þá beinlinis „dripl-
aði” i gegn og skoraði 18 mark ís-
lands. Þjóðverjum gekk illa að
finna glufu i vörn islenska liðsins
og misstu að lokum boltann og
aðeins min. til leiksloka, en það
var dæmdur ruðningur á Stefán
Halldórsson og Dreibrodt skoraði
15. mark Þjóðverjanna úr vita-
kasti eftir að dómaranir höfðu
flautað leikinn af.
Gott veganesti.
Eins og áður sagöi áttu þeir
Páll Björgvinsson, Bjarni og
Einar markvörður frábæran leik
en flestir hinna leikmannanna
stóðu þeim þó ekki langt að baki.
Ólafur H. var sterkur i vörninni
og eins Þorbjörn Guðmundsson,
Páll Ólafsson skifti við Stefán i
horninu og skilaði sinu hlutverki
vel.þá var Axel sterkur og eins
Steindór en Siggi Sveins virtist
aldrei ná sér á strik i fyrri hálf-
leik og var litið notaður i þeim
siðsari.
Þessi sigur Islands er sannar-
lega gott veganesti liðsins til
Frakklands i B-keppnina það er
að segja ef leikmenn láta skyn-
semina ráða og verða ekki upp i
skýjunum.
A-Þjóðverjar sitja nú og naga
sig sjálfsagt i handarbökin yfir
þvi að hafa komið hingað til Is-
lands og tapað fyrir litla Islandi,
landslið. sem ekki hafði tapað
landsleik frá þvi i mai á siðasta
ári og leikið nokkra tugi lands-
leikja, unnið m.a. Svia með niu
marka mun og rótburstað Sviss-
lendinga.
Dómararnir á sunnudaginn
voru þeir sömu og dæmdu leikinn
á föstudaginn, Sviarnir Lars
Johanson og Kjell Eliasson og
voru þeir frekar hliðhollir Þjóð-
verjunum. Þjóðverjarnir fengu
fjögur vitaköst en Island ekkert
og flest vafaatriði dæmd Þjóð-
verjum I hag.
Að venju létu áhorfendur sig
ekki vanta á leikinn troðfylltu
Laugardalshöllina og hvöttu
landann óspart og eiga þeir ekki
minnstan þátt i þvi hvernig
leikurinn fór.
Mörk Islands: Páll Björg-
vinsson 6, Bjarni 4, Páll O. og Sig-
urður 2 hvor, Ólafur H. Steindór
Axel og Stefán 1 hver.
Mörk Þjóöverja: Dreibrodt 6
(3), Pester og Wahl 3 hvor, Rost,
Schmid og Doering 1 hver.
röp-.