Tíminn - 04.03.1981, Síða 1
Síöumúla 15 Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 Afgreiðsla og áskrift 86300 Kvöldsímar 86387 & 86392
Steingrímur Hermannsson, samgönguráöherra óskaði eftir þvi við stjórn Flugleiða að
aðalfundur félagsins yrði boðaður þegar í stað:
„Fundur boðaður á næstu dögum”
— sagði Orn 0. Johnson, stjórnarformaður Flugleiða
AB — Steingrimur Hermannsson
samgönguráöherra hefur óskaö
eftir þvi viö stjórn Flugleiða, að
aðalfundur félagsins verði boð-
aður án tafar. Steingrimur sagði i
viðtali við blaðamann Timans i
gær, að ljóst væri að halda þyrfti
þennan fund sem allra fyrst.
Rikisstjórnin heföi staðið i þeirri
trú, aðhún fengi fulltrúa sina inn i
stjórn félagsins á hluthafafundin-
um, en þegar það hefði brugðist,
þá kæmi ekkert annað til greina,
en að fundurinn yrði haldinn fljót-
lega.
Eins og oftsinnis hefur komið
fram, þá þarf að boða aðalfund
Flugleiða með fjögurra vikna
fyrirvara, og gæti hann þvi ekki
orðið fyrr en i byrjun april-
mánaöar, ef hann væri boðaður
nú strax.
Samgönguráðherra sagði að
örn Ó. Johnson stjórnarformaður
Flugleiða hefði lofað sér að
ganga strax i þetta mál.
Timinn hafði samband við örn
Ö. Johnson i gær og spurði hann
hvort aðalfundur Flugleiða hefði
nú þegar verið boðaður.
„Það er verið að vinna i þessu
máli. Það eru ýmis atriði sem
ganga þarf frá, áður en fundurinn
verður boðaður, t.d. þarf að út-
vega húsnæði o.fl. Það verður al-
veg á næstu dögum sem gengið
verður frá fundarboöuninni.”
örn var að þvi spuröur hvort
þörfin fyrir afganginum af rikis-
ábyrgðinni væri farin að segja
þungt til sin.
„Ekki er það nú eins og er, en
það verður tilfinnanlega þörf fyr-
ir hluta þessa fjármagns nú á
næstunni.”
Sækjast
Loftleiða-
flugmenn
eftir
F.Í.A.-
stöðum?
AB — Illgjarnar tungur hafa að
undanförnu leitt að þvi likur að
ekki sé með öllu heiðarlegt
markmiö á bak við inntökuóskir
Loftleiðaflugmanna i Félag is-
lenskra atvinnuflugmanna, þvi
nú munu brátt losna all margar
stöður á þeim leiðum sem F.Í.A.
flugmenn fljúga á. Timinn sneri
sér til Kristjáns Egilssonar for-
manns F.l.A. ,og spurði hann
hvaða skoöun hann heföi á þess-
um orðrómi.
„Ekki er mér kunnugt um að
þetta atriöi geti spilað inn i
þessa inntökuósk þeirra. Það er
rétt að allmargar stöður á leið-
um F.l.A. losna bráðlega, en
enn er ekki ljóst hvaða stöður
þetta verða. 6g vona að það
sem stendur að baki þessara
inntökubeiðna Loftleiðaflug-
manna í F.t.A. sé einungis það,
að þeir séu okkur sammála um
það að við stöndum betur sam-
einaðir, en sundraðir.”
Kristján sagði einnig að sér
myndi koma það afar mikið á
óvart ef inntökubeiðnum þess-
ara flugmanna yrði hafnaö af
F.t.A. þvi þessir menn full-
nægðu öllum skilyrðum, . og
hann persónulega væri hlynntur
inntöku þeirra.
Unga fólkið gerir sér ekki siður dagamun en hið eldra þessa dagana. Þeirri skemmtun er þó kannski
ekki varið þannig að éta á sig gat af saltkjöti og baunuiu eins og margir geröu á sprengidaginn i gær
heldur voru þessar tvær laglegu dömur á leið á grimuball i Mýrarhúsaskóla. Timamynd Róbert.
Ef til kjarnorkustyrj-
aldar kemur, gripa Al-
mannavarnir til tólf
ára gamals lista yfir
húsnæði það á islandi,
sem veitt getur vernd
gegn geislavirkni. Þar
er áætlað að ibúar
landsins, þeir sem ekki
farast i byrjun, dveljist
i hálfan mánuð. Lengra
nær málið ekki. Engar
áætlanir um matvæla-
dreifingu, eða annað
sem snertir afkomu
fólks i skýlunum: ekki
einu sinni til á landinu
menn sem kunna með
geiger-tel jara AI-
mannavarna að fara.
Sjá blaðsiðu 3.
Opinberar stofnanir:
Frínúmer á
Suðurnesjum
JSG —I sambandi við fyrirhug-
aða skrefatalningu á simtölum,
hefur verið rætt um að simtöl
við opinberar stofnanir verði
ókeypis. Nú hefur verið ákveðið
að gera tilraun með slik „fri-
númer” á Suðurnesjum. Þessi
númer munu væntanlega hefj-
ast á tveimur núilum, og verða
hjá lögreglu, slökkviliöi, og
nokkrum fleiri þjónustustofnun-
um rikis- og sveitarfélaga.
Það var Steingrimur Her-
mannsson sem skýrði frá þessu
á Alþingi i gær. Steingrimur
kvað æskilegt ef hægt væri að
samræma simavörslu vegna
slikrar þjónustu fyrir landiö
allt.
Skrefatalningin:
Hafin á öllu landinu samtímis í júlí
— Engin talning á kvöldin og um helgar
JSG — „Simamálastjóri hefur
sett fram þá hugmynd að talning-
una megi taka af á kvöldin, eftir
kl. 19, og um helgar, eftir kl. 3 á
laugardögum. Ég hef þegar sam-
þykkt að þessi háttur verði hafður
á,” sagði Steingrimur Hermanns-
son, samgönguráöherra, i um-
ræðum á Alþingi i gær um fyrir-
hugaða talningu skrefa i innan-
bæjarsamtölum.
Samgönguráðherra lét þessi
orö falla i svari við fyrirspurn frá
Birgi tsleifi Gunnarssyni og
Friðriki Sóphussyni. Ráðherra
las ennfremur upp bréf frá Jóni
A. Skúlasyni um skrefatalningar-
málið, en þar kom m.a. fram að
fyrirhugað er að búnaður til taln-
ingar verði settur upp i öllum
simstöðvum landsins, og
skrefatalning hafin á öllu land-
inu samtimis i júli næsta sumar.
Ekki er enn ákveöið hvað
langur timi veröur fyrir hvert
skref i innanbæjarsimtölum, en
athugun hefur leitt i ljós að
meðalsimatalalengd er nú um 2.6
minútur. Hefur simamálastjóri
lagt til að skreflengdin verði að
minnsta kosti 6 minútur og jafn-
vel 8 minútur. Vestur-Þjóðverjar
sem tóku upp skrefatalningu i
fyrra, hafa 8 minútur, en Sviar,
sem hyggjast taka hana upp á
næstaári, hafa 6 minútur.
Samfara skrefatalningunni er
ætlunin að breyta gjaldskrá
Pósts og sima, og jafnvel skref-
lengd i öllum langlinusamtölum
einnig. Hefur komið til tals aö
gjald fyrir hvert skref lækki úr 35
aurum i 33 aura, en að skref-
iengd aukist um 2-3 sekúnd-
ur, en engar ákvarðanir hafa
verið teknar ennþá um þessi at-
riði. Steingrimur Hermannsson
lagði á það áherslu að alls ekki
væri hugmyndin að auka tekjur
Póst og sima meö.skrefatalning-
unni, heldur eingöngu að jafna
meö henni simakostnað lands-
manna.
Fjölmargir þingmenn tóku til
máls i umræðunum um skrefa-
talninguna, og töldu flestir aö
málið hefði verið blásiö allt of
mikið upp geröur úlfaldi úr mý-
flugu, eins og einn þingmanna
komst að orði. Birgir tsleifur taldi
þá um tæknilega umdeilanlega
ráðstöfun að ræða.
Fram kom hjá Steingrimi Her-
mannssyni að til tals hefur komið
að sérstakar ráðstafanir verði
geröar vegna elli og örorkulif-
eyrisþega við skrefatalninguna,
annað hvort aö þeir fái helmingi
fleiri friskref en aörir, eöa aö þeir
fái sérstaka viðbót úr trygging-
um.