Tíminn - 04.03.1981, Síða 16
Sími: 33700
A NÖTTU OGTeGI ER VAKAÁ VEGI
Þriöjudagur 3. mars 1981
ssí » —abriel <4J
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Nútíma búskapur þarfnast
BAUER
haugsugu
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun, Kornagarði 5
Simi 85677
Háskólaráð
afgreiðir tillögu
á morgun um:
Prófessorsem-
bættí bundið nafni
dr. Kristjáns
JSG —Heimspekideild Háskóla
islands hefur lagt fram tillögu i
háskólaráði um aö stofnað verði
nýtt prófessorsembætti við Há-
skólann, sem eingöngu verði
bundið nafni dr. Kristjáns Eld-
járn. Kristján yrði þvi sá eini
sem gegndi embættinu. Þessi
tillaga hefur hlotið góðar við-
tökur i' háskólaráði, en ekki ver-
ið afgreidd enn. Gert er ráð
fyrir að hún verði tekin til af-
greiðslu á fundi ráðsins á morg-
un.
Að sögn Alans Boucher, for-
seta heimspekideildar, yrði
prófessorsembætti dr.
Kristjáns, rannsóknarembætti.
Þvi fylgdi hvorki kennsluskylda
né réttindi og skyldur til
stjórnunarstarfa. Hann kvað
það vera i samráði við Kristján
sjálfan sem tillagan væri gerð.
t greinargerð með tillögu
heimspekideildar segir að dr.
Kristján Eldjárn sé viðkunnur
fræðimaður í sérgrein sinni,
fornleifafræði, en auk þess sé
hann vel menntaður i fleiri
greinum, einkum sögu tslands
og almennri sögu. Hann vinni nú
að ýmsum fræðilegum verkefn-
um, og megi mikils vænta af
störfum hans, þegar hann hafi
verið leystur frá annasömu
embætti. Heimspekideild vilji
votta dr. Kristjáni virðingu með
stofnun prófessorsembættisins.
Guðmundur Magnússon, há-
skólarektor, kvaðst i gær telja
allar hkur á að tillaga heim-
spekideildar yrði samþykkt á
morgun.
Aöstoöarlæknirinn á Selfossi hefur ekki tekiö
sérsamningi rekstrarstjórnarinnar:
Réðu annarleg sjónarmið
fullyrðingu Brynleifs?
AB — „Það er rétt eftir Daniel
Danielssyni haft, að ég hef ekki
skrifaö undir þann sérsamning
sem rekstrarstjórn Sjúkrahúss
Suðurlands bauð mér,” sagði
Guðjón Sigurkarlsson læknir við
Sjúkrahús Selfoss i viðtali við
Timann i gær, en eins og kunnugt
er þá hélt Brynleifur Steingrims-
son héraðslæknir á Selfossi þvi
fram i viðtali við Timann fyrir
helgi, að Guðjón hefði tekið áður-
nefndum samningi.
Guðjón var að þvi spurður hvað
hann héldi að lægi á bak við þessa
fullyrðingu Brynleifs, sem greini-
lega á ekki við rök að styðjast.
„Rekstrarstjórnin veit að ég
hef ekki tekið þessum samningi.
Eina skýringin sem mér kemur i
hug, er að þetta sé sagt til þess að
einangra Daníel f þessu máli.”
Guðjón sagði jafnframt aö hann
ætlaði sér ekki að taka samningn-
um eins og hann væri. Það væru
mörg atriði f þessum samningi
sem þyrfti að athuga betur. Fyrst
og fremst væru það atriði sem
vörðuðu breytingar á verksviði,
en ekki breytingar á kjörum.
Sagðist Guðjón þó hafa tjáð
rekstrarstjórninni að hann væri
fús til endurskoðunar á sér-
samningnum þegar þar aö kæmi.
Guðjón var að þvi spuröur
hvernig hann liti á auglýsingu
rekstrarstjórnarinnar, þar sem
staða yfirlæknisins var auglýst
laus til umsóknar, en aðrar ekki.
„Mér finnst slik auglýsing
óeðlileg. Að minu mati ættu allir
starfsmenn Sjúkrahúss Selfoss að
flytjast yfir á nýja sjúkrahúsið.”
Sjóprófum vegna Heimaeyjarslyssins lokiö:
Tryggingafélagið bannaði
ekki aðstoð varðskips
— Varðsklpin björgunar- og hjálparskip, en skoUakornið
ekki bara til að taka menn i iandhelgi, segja Eyjamenn
HEl — Sjóprófum i Vestmanna-
eyjum vegna Heimaeyjar VE er
nú lokið. Aðilar þessa máls vilja
litið láta eftir sér hafa um niður-
stöðu sjóprófanna. Einn þeirra
sagði þó, aðþaðhafi verið upplýst
að ekkert bann hafi komið frá
tryggingarfélagi Heimaeyjar um
aö leitað væri aðstoðar varðskips.
Það hafi verið ákvörðun skip-
stjóra Heimaeyjar. Það hafi auk
þess verið samdóma álit allra
skipstjórnarmanna sem komu
fyrir réttinn, að Heimaey hafi
ekki verið i neinni bráðri hættu
þegar aöstoðin var afþökkuð og
ekki hafi verið sýnt fram á annað
en að viðbrögð skipstjórnar-
manna hafi verið eðlileg. t raun
mætti segja að slysið hafi fyrst og
fremst veriö afleiðing óveðursins
sem skall á snögglega er áttin
breyttist og skipið fór að reka
hratt að landi sem enginn hafi
getað séð fyrir.
Annar viðmælandi blaðsins tók
nokkuð í sama streng. En tók
fram að óheppilegar yfirlýsingar
einstaklinga innan Landhelgis-
Framhald á 15 siðu
Stjórn Blaðamannafélags Islands:
Lýsir eindregnum stuðn-
ingi við blaðamenn DB
Stjórn Blaöamannafélags
tslands lýsir eindrcgnum stuðn-
ingi við þá tvo blaðamenn Dag-
blaösins, Atla Stcinarsson og -
Ómar Valdimarsson, sem neit-
að hafa að gefa upp heimildir
fyrir frétt á bakslðu blaðsins 31.
janiiar sl., þar sem fjallað var
um svofellt Kötlufellsmál.
Stjórn Bt litur svo á, að það
séu augljósir hagsmunir blaða-
manna, jafnt sem skylda þeirra
viö heimildamenn sina, að
skýra ekki frá þeim. Ef út af
þessu væri brugöið myndi það
veröa til að stórskerða mögu-
leika blaðamanna til fréttaöfl-
unar og verða þannig stjórnar-
skrárvernduðu ritfrelsi fjötur
um fót. Þaö er þvi ekki að
ástæðulausu, að i siðareglum
Blaöamannafélags tslands er
skýrt tekið fram, aö blaöamanni
beri að viröa nauösynlegan
trúnað við heimildarmenn sina.
Þessu til stuðnings vill stjórn
B1 skirskota til ummæla ólafs
Jóhannessonar ráöherra og
...I siðareglum Blaðamannafélagsins er skýrt tekiö fram að blaðamanni beri að virða nauðsynlegan
trúnað viö heimildamenn sina" segir i ályktun sem stjórnarfundur Bt samþykkti i gær. Timamynd Róbert
fyrrum lagaprófessors, i Úlf-
ljóti, tfmariti laganema við
Háskóla tslands unv þetta efni
frá 1969, þar sem segir orðrétt:
„Það er augljóst, að prentlög-
in byggja á þeirri reglu, að höf-
undi ritsmlða i dagblöðum,
vikublöðum, og timaritum sé
óskylt að nafngreina sig. Nafn-
leyndin er að visu ekki heimiluö
sérstaklega berum orðum en
hún leiðir af ábyrgðarkerfinu.
Um það segir m.a. svo i grein-
argerð frumvarpsins til laga um
prentrétt: „Ábyrgðarkerfi
þessu er ætlað að slá vörð um
prentfrelsið, með þvi að sporna
við eftirgrennslunyfirvalda, um
það, hvernir kunni að eiga hlut-
deild i þvi', sem ritað er, að ná
með skjótum og virkum hætti til
þess, sem sekastur, og loks sér-
staklega að vernda nafnleynd
höfundar og heimildarmanns.”
Auk þess veröur nafnleyndar-
réttur höfundar dreginn af þvi,
að i lögunum er nafngreiningar-
skylda lögð berum orðum á út-
gefanda, ritstjóra og prentara,
en ekki minnst á höfunda.”