Fréttablaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 2
2 30. desember 2007 SUNNUDAGUR LÖGREGLUMÁL Kópavogsbær hefur kært Einingarverksmiðjuna Borg í Kársnesi fyrir að hafa unnið skemmdarverk á eigum bæjarins og fyrir að reka steypustöð án starfsleyfis. „Af aðstæðum að dæma hefur efni vísvitandi verið rutt með vinnuvélum yfir veg og girðingar við baklóð Einingarverksmiðjunn- ar Borgar og hamlað umferð um veginn. Af þessu hefur hlotist verulegt tjón á girðingum og öðrum mannvirkjum á staðnum,“ segir í kæru Kópavogsbæjar til lögreglu. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri hefur jafnframt skorað á heil- brigðisfulltrúa að bregðast við „ólöglegri“ framleiðslu, sölu og dreifingu Borgar á steinsteypu án þess að hafa starfsleyfi fyrir steypustöð. Kópavogsbær segir forsvars- menn Borgar ekki hafa sinnt kröf- um um úrbætur og krefst opin- berrar lögreglurannsóknar á meintum skemmdarverkum og brotum fyrirtækisins með rekstri steypustöðvar. „Nú þegar hefur fyrirtækið notað svæði utan lóðar án heim- ilda undir starfsemina og valdið eignaspjöllum,“ segir í kæru bæj- arstjóra sem kveður margar kvartanir hafa borist frá íbúum vegna mengunar og ónæðis frá Borg. Aðstaða fyrirtækisins að Bakkabraut henti ekki undir starf- semina. Listakonan Mireya Samp- er sem býr í næsta húsi hefur kvartað bæði til bæjaryfirvalda og til heilbrigðiseftirlits. Sement flæði um allt. „Þessi umgengni Borgar hefur með ekki einungis heilsufarslega spillingu að gera, heldur liggja hér líka listaverk nánast undir skemmdum,“ segir Mireya í bréfi til bæjaryfirvalda. Þórhallur Barði Kárason, einn eigenda Borgar, segist ekki hafa heyrt af kæru Kópavogsbæjar til lögreglunnar. „Við teljum okkur hafa leyfi fyrir bæði einingaverk- smiðju og steypustöð en þar ligg- ur ágreiningurinn sem okkar lög- fræðingur og heilbrigðiseftirlitið eru að reyna að leysa,“ segir hann. Varðandi kvartanir nágrannanna segist Þórhallur sjálfur ekki mundu vilja búa við hlið verksmiðjunnar. Þegar Borg hafi komið á staðinn hafi hins vegar engir íbúar verið þar enda sé svæðið skilgreint sem iðnaðarsvæði. „Það segir sig sjálft að ef þú setur þig niður þrjá metra frá grófum iðnaði þá verður truflun frá honum. Það passar því auðvit- að ekki að hafa íbúðarhúsnæði hér,“ segir Þórhallur sem boðar lausn málsins: „Við reiknum með að flytja steypustöðina upp á Hólmsheiði þegar við fáum lóð þar næsta sumar.“ gar@frettabladid.is Lögreglan rannsakar steypustöð í Kópavogi Kópavogsbær kærir fyrirtækið Borg fyrir skemmdarverk og að reka steypustöð án leyfis í Kársnesi. Nágrannakonan Mireya Samper segir listaverk í hættu. Við höfum starfsleyfi og svæðið er fyrir iðnað en ekki íbúðir, segir eigandi Borgar. GUNNAR I. BIRGISSON MIREYA SAMPER ATHAFNASVÆÐI BORGAR Bærinn segir steypustöð Borgar við Bakkabraut í Kópavogi án nauðsynlegra leyfa og návígið sé mikið við íbúana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SAMFÉLAGSMÁL Ógrynni af pökkum eru enn ósótt á pósthúsum á höf- uðborgarsvæðinu að sögn Ágústu Hrundar Steinarsdóttur, markaðs- stjóra Íslandspósts. Í pósthúsinu í Síðumúla eru allir rekkar fullir. „Við erum svo sem ekki að spyrja af hverju fólk tefjist við að ná í pakkana sína,“ segir Herdís Skarphéðinsdóttir, pósthússtjóri á pósthúsinu í Síðumúla, „en það getur verið vegna þess að fólk er einhvers staðar í fríi og kemst ekki á pósthúsið. Svo eru það hinir sem panta af netinu og þurfa því að borga fyrir pakkann og ef hann tefst hafa þeir kannski ráðstafað peningunum öðruvísi. Svo vill það brenna við að fólk sé úti að versla þegar bílstjórinn er að renna að hlaði hjá því með pakkana og þá fara þeir aftur á pósthúsið.“ Hún brýnir fyrir fólki að nota vefinn til að stytta sér sporin. „Þar er til dæmis hægt að tilkynna um nýtt heimilisfang svo fólk þurfi ekki að fara á pósthúsið í gamla hverfinu. Þar getur fólk einnig glöggvað sig á því hvar afgreiðslu- staðirnir eru en sameining nokk- urra pósthúsa hefur kannski rugl- að suma þó að við höfum auglýst breytingarnar vel.“ Einnig er hægt að búa til kort á vefnum og búa þannig um hnútana að sendandinn þurfi aldrei að fara höndum um þau áður en þau fara til viðtakanda. - jse Mikið annríki á pósthúsum á höfuðborgarsvæðinu: Enn eru margir pakkar ósóttir HERDÍS SKARPHÉÐINSDÓTTIR PÓSTHÚSSTJÓRI Pósthúsið í Síðumúla fylltist af pökk- um fyrir jól eins og verða vill og enn eru fjölmargir pakkar ósóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR LÖGREGLUMÁL Lögreglan var kölluð út vegna umferðarslyss sem varð á Grindavíkurvegi móts við Þor- björn í gærkvöldi. Ökumaður hafði misst stjórn á bíl sínum og talið að hann hafi oltið eina veltu. Var bílstjórinn fluttur á Land- spítalann í Fossvogi en meiðsl hans reyndust ekki alvarleg. Tveir farþegar voru í bílnum og voru þeir fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar en fengu að fara heim að henni lokinni. Á slysstað notaði lögreglan nýjan búnað eða svokölluð díóðu- ljós en þau nýtast vel til að vara aðra ökumenn við hættu sem getur skapast á slysstað. Þegar lögregla ætlaði að fara kom í ljós að óprútt- inn vegfarandi hafði stolið einu ljósanna. Lögreglan biður þann sem tók ljósið að koma því til skila enda sé það gagnslaust þeim sem ekki eigi hleðslutösku. - kdk Bíll fór út af við Þorbjörn: Stolið af lög- reglu á slystað VINNUMARKAÐUR Verktakafyrir- tækið Jarðvélar hefur enn ekki gert upp við á þriðja tug fyrrum starfsmanna sem hafa ekki fengið greidd laun fyrir nóvember, og eru launin nú í löginnheimtu. Verkalýðsfélagið Efling rekur mál stórs hluta mannanna, og segir Ágúst Þorláksson, verkefn- isstjóri hjá Eflingu, að ekkert hafi heyrst sem bendi til þess að Jarðvélar hyggist greiða um samin laun. Eins og greint hefur verið frá hafa Jarðvélar sagt sig frá verki við tvöföldun Reykjanesbrautar, og hafa misst vélar og tæki til lánadrottna. Ekki náðist í forsvarsmenn Jarðvéla í gær. - bj Jarðvélar enn ekki greitt laun: Kröfur komnar í löginnheimtu FRAMKVÆMDIR Jarðvélar hafa nú sagt sig frá verki við tvöföldun Reykjanes- brautar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNMÁL Stjórnarflokkarnir tveir auka fylgi sitt um þrjú prósentustig hvor frá því í þingkosningum í maí samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups, sem Ríkisútvarpið sagði frá í gær. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með rösklega 40 prósenta fylgi, en Samfylkingin með rúm 30 prósent. Alls sögðust 77 prósent styðja stjórnina. Fylgi Vinstri grænna mælist rúmlega 15 prósent. Framsóknar- flokkurinn er með 9 prósenta fylgi og fylgi Frjálslynda flokksins mælist um 4,5 prósent. Tæpt prósent sagðist myndu kjósa Íslandshreyfinguna. - bj Fylgi flokka lítið breytt: Um 77 prósent styðja stjórnina UMFERÐ „Ástandið á akstursleiðum Strætó bs. er orðið það alvarlegt að við erum í vandræð- um með að fylgja tímatöflum,“ segir Einar Kristjánsson, sviðsstjóri þjónustusviðs Strætó, í bréfi til Kópavogsbæjar. Einar segir verktaka Strætó í Kópavogi, Teit ehf., í verulegum vandræðum vegna óeðlilegs slits á vögnunum sem rekja megi beint til hraðahindrana. Strætó vilji viðræður við Kópavog um hönnun „strætóvænlegra“ hindrana sem geti í senn tryggt umferðarör- yggi, komið í veg fyrir tjón á vögnunum og gert fyrirtækinu kleift að veita góða þjónustu með raunhæfri áætlun. Að sögn Einars hafa vagnar sem eiga að hafa átta mínútur í biðtíma í Hamraborg aðeins tvær til fjórar mínútur á milli ferða. Hraða- hindranirnar geri að verkum að hægja þurfi óeðlilega mikið á vögnunum. Að lokum þurfi að setja inn aukavagna með tilheyrandi auka- kostnaði. Einar nefnir sem dæmi að vagn 28 milli Hamraborgar og Vatnsenda aki 54 sinnum á 50 mínútum yfir hraðahindrun. Á níu tíma vakt vagnstjóra geri það 486 ferðir yfir hraðahindr- un. Dæmi séu um 504 hraðahindranir á vakt. „Sumar hraðahindranir eru þannig hannaðar að vagninn slær niður í þær með þeim afleið- ingum að olíuleki kemur á sjálfskiptingu og gírkassa og tjónið verður stundum meira en það,“ segir Einar í bréfinu til bæjaryfirvalda. - gar Strætó vill ræða við Kópavogsbæ um hraðahindranirnar á götum bæjarins: Hossast yfir 500 hraðahindranir á vakt Í KÓPAVOGI Vagnstjórar í Kópavogi aka sumir meira en 500 sinnum yfir hraðahindranir á hverri vakt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ræningjarnir enn ófundnir Lögreglan í Danmörku leitar enn ræn- ingja sem rændu peningasendingu á föstudag, sem og þjófum sem stálu úr banka á fimmtudag. Lögreglan leit- aði í húsi í Árósum í gær, og fann föt sem talið er að geti tengst þjófnaðin- um úr bankanum. DANMÖRK Margrét Lára, var þetta þér þungbær heiður? Ja, nógu þung er þessi stytta alla- vegana. Margrét Lára Viðarsdóttir var valin íþróttamaður ársins á föstudag, og tók við fremur stórvöxnum verðlaunagrip af því tilefni. LÖGREGLUMÁL Nýrri lögreglustöð lögreglu höfuðborgarsvæðisins hefur enn ekki verið valinn staður, að því er fram kemur á vef Björns Bjarnasonar dóms- málaráðherra. Hann segir það næsta stórverk- efni á borði sínu að finna nýrri lögreglustöð stað á höfuðborgar- svæðinu, og vinna í því að hafist verði handa við að reisa hana. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í febrúar síðastliðn- um sækjast Reykjavíkurborg, Kópavogsbær og Hafnarfjarðar- bær eftir því að stöðin verði staðsett í sínum byggðarlögum. Stefnt er að því að stöðin verði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og í tengslum við helstu umferðar- æðar. - bj Ráðherra um lögreglustöð: Ekki enn verið valinn staður STÖÐIN Ráðgert er að reisa 15 þúsund fermetra lögreglustöð. Stöðin við Hverf- isgötu er um 7 þúsund fermetrar. FRAKKLAND, AP Maður á sextugs- aldri sem talið var að hefði framið sjálfsvíg fyrir tveimur árum hefur verið handtekinn af frönsku lögreglunni. Maðurinn skildi bílinn sinn eftir á klettabrún við Ermarsund og sjálfsvígsbréf til konu sinnar og þriggja sona. Í fyrstu var talið að maðurinn hefði látist en það síðar dregið í efa þegar í ljós komu miklar spilaskuldir og að maður- inn hafði sótt um landvistarleyfi í Alsír skömmu fyrir hvarfið. Lögreglan fann hann eftir að hann gaf upp rétt nafn sitt þegar hann sótti um starf við að selja póstkort í verslun í París. - sdg Fannst tveimur árum síðar: Frakki setti eig- in dauða á svið SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.