Fréttablaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 4
4 30. desember 2007 SUNNUDAGUR
! #
$
%
&
& '
# (! %'
)
#
$
*+, -+, ./
0+, ./
1+, ./
*+, 2+, ./
3+, ./
4+, ./
-+, *+, 5+, /
-+, 54+, 51+, 60+,
!" "#$%
"&''"' ( ) *+
'),-"'"
. $- /%
0/1('2 '$
$' 2 %
3/ //2
//" %42
!'-" 2 56+
$2 2 $ $
'$) '2 /+
'1)
*5""% 2
2 '2 ' '"$
/ $/1('
2 2 $""' $8, /$ 2 *5""%
2'2 '+
'", %3
2 92 +
" ,%
*7518
5*7608
"9
9
:"
;
7"%
: 3% ;
2 #
+<
=
=>
=7
=
=7
=7
<>
=
=
= =
<
?
?
LÖGREGLUMÁL Slökkviliðið aðstoð-
aði lögreglu höfuðborgarsvæðis-
ins í gærdag við að flytja rúmlega
500 lítra af bruggi, sem fundust í
heimahúsi við Laugaveg í fyrra-
kvöldi, í ker og þaðan á lögreglu-
stöðina.
Lögreglan var kölluð á staðinn
vegna gruns um að heimilismað-
ur hefði átt þátt í innbroti en
nokkuð af þýfi fannst á heimilinu
samkvæmt lögreglu.
„Þegar lögreglumennirnir
komu á staðinn blasti þetta allt
saman svo við þeim,“ segir Geir
Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
um aðkomuna.
Geir segir svokallaða landa-
framleiðslu hafa dregist mjög
saman á síðustu árum og sé ástæð-
an helst sú að ungmenni sæki
mun síður í slíka drykki en áður
var. Magnið sé óvenju mikið og
sérstaklega þegar litið er til þess
að framleiðslan var inni í miðri
borg.
Vegna aðgerða lögreglu og
slökkviliðs þurfti að loka hluta
Laugavegs í nokkurn tíma. Einn
maður hefur verið handtekinn og
er málið nú á borði rannsóknar-
deildar lögreglunnar. Bruggið
verður geymt á lögreglustöðinni
við Hverfisgötu sem sönnunar-
gagn en að rannsókn lokinni
verður því eytt. - kdk
Lögreglan lokar stórri heimabruggverksmiðju við Laugaveg:
Slökkviliðið flutti brugg fyrir lögreglu
BRUGGIÐ BURT Loka þurfti hluta Lauga-
vegar um tíma á meðan flutningarnir
stóðu yfir. Lögregla segist æ sjaldnar
verða vör við landa hjá fólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GENGIÐ 28.12.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
119,9007
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
61,87 62,17
123,69 124,29
90,93 91,43
12,192 12,264
11,396 11,464
9,611 9,667
0,5483 0,5515
97,61 98,19
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
2
3
7
7
Sími 591 3100 - www.atlantsolia.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
2
3
7
7
-2kr.Dælulykill
Dælulykilinn veitir
nú -2 krónur í
afslátt
PAKISTAN, AP Öfgamenn tengdir al-
Kaída hryðjuverkasamtökunum
sögðust í gær ekki hafa staðið
fyrir sjálfsmorðsárás sem varð
Benazir Bhutto, einum leiðtoga
stjórnarandstöðunnar í Pakistan,
að bana á fimmtudag.
Háttsettir embættismenn
stjórnvalda í Pakistan hafa haldið
því fram að öfl tengd al-Kaída
hryðjuverkanetinu hafi skipulagt
tilræðið.
Stuðningsmenn Bhutto hafa
einnig efast um þessar skýringar
stjórnvalda, og saka stjórnvöld
um að reyna að leyna sannleikan-
um um morðið. Þrátt fyrir átökin í
kjölfar árásarinnar sagði innan-
ríkisráðherra Pakistans að engin
þörf væri fyrir utanaðkomandi
aðstoð við rannsókn málsins.
Óöld hefur ríkt í Pakistan frá
því að Bhutto var myrt, og í það
minnsta 38 látist í óeirðunum.
Talsmaður stjórnvalda sagði í gær
að gríðarlegt tjón hefði orðið í
uppþotunum.
Staðfest er að 176 bankar hafi
verið lagðir í rúst, sem og 34 bens-
ínstöðvar, 18 lestarstöðvar og 72
lestarvagnar. Að auki hafa um 100
fangar flúið úr fangelsum með
utanaðkomandi hjálp. Í heimahér-
aði Bhutto hafa níu kjörstaðir
verið brenndir og kjörgögn eyði-
lögð.
Í gær skipaði Pervez Mushar-
raf, forseti Pakistans, lögreglu og
her að binda enda á óöldina, og
víða lenti stuðningsmönnum
Bhutto saman við lögreglu og her-
menn. Musharraf sagði að taka
þyrfti hart á þeim sem „færu um
ruplandi og rænandi“, og „tryggja
þyrfti öryggi borgaranna“.
Þingkosningar eiga að fara fram
í Pakistan 8. janúar, en þær gætu
nú verið í uppnámi. Yfirkjörnefnd
landsins hefur verið boðuð til
neyðarfundar á mánudag.
Bandarísk stjórnvöld hafa lagt
hart að Musharraf forseta að
fresta ekki kosningunum. Moham-
medmian Soomro, forsætisráð-
herra Pakistans, sagði á föstudag
að ekki stæði til að fresta þeim.
Stuðningsmenn Bhutto hafa
boðað til fundar í dag til að ræða
hvort þeir hyggist sniðganga
kosningarnar. Þá ætlar sonur
Bhutto að lesa upp skilaboð sem
hún skildi eftir sig og lesa átti félli
hún frá.
Nawaz Sharif, leiðtogi annars
stjórnarandstöðuflokks, hefur
þegar tilkynnt að hann muni snið-
ganga kosningarnar.
brjann@frettabladid.is
Hafna aðild að morði Bhutto
Í það minnsta 38 hafa látið lífið í óeirðum í Pakistan í kjölfar morðsins á Benazir Bhutto. Kjörstaðir, bank-
ar, lestarstöðvar og fyrirtæki lögð í rúst. Sonur Bhutto les í dag upp skilaboð sem hún skildi eftir sig.
KENÍA, AP Stuðningsmenn sitjandi
forseta og keppinautar hans hafa
lýst yfir sigri í forsetakosningun-
um í Kenía, þrátt fyrir að enn eigi
eftir að telja atkvæði úr um 30
kjördæmum af 210.
Óeirðir hafa brotist út í landinu
þar sem stuðningsmönnum Raila
Odinga, keppinautar Mwai
Kibaki, sitjandi forseta, hefur
þótt ganga hægt að telja atkvæði
og fá niðurstöður.
Fullyrt er að einhverjir hafi
látið lífið í óeirðum í landinu,
meðal annars þar sem mótmæl-
endum og lögreglu hefur lostið
saman, og heimili og fyrirtæki
hafa brunnið. - bj
Óeirðir í kjölfar kosninga:
Óánægja með
drátt á talningu
BANDARÍKIN Sjö ára bandarískur
drengur, Keats Boyd, býr sig nú
undir það að klífa fjallið Kiliman-
jaro í Tansaníu yngstur manna.
Fjallið er 5.895 metra hátt, það
hæsta í Afríku og það fjórða
hæsta í heimi. Hann hyggst safna
áheitum til styrktar hjálparstarfi
í Afríku.
Boyd fékk hugmyndina þegar
hann horfði á sjónvarpsþátt um
mann með mænusótt sem alltaf
hafði viljað klífa fjallið, en gat
það ekki. „Þetta get ég,“ muldraði
hann yfir þættinum. Faðir hans
hefur hjálpað til við undirbúning-
inn í fimm mánuði. Þeir leggja af
stað í ferðina 7. janúar. - sh
Ungur á uppleið:
Sjö ára klífur
Kilimanjaro
Hitaveitan sögð brotleg
Skipulagsnefnd Grindavíkur segir
Hitaveitu Suðurnesja hafa gerst
brotlega með því að sækja ekki um
framkvæmdaleyfi vegna stækkunar
borstæða í Svartsengi. Áform fyrirtæk-
isins um tvær nýjar gufuborholur á
núverandi borplönum og eina niður-
rennslisholu þurfi hins vegar ekki að
fara í umhverfismat.
GRINDAVÍK
Stofna sín eigin Stígamót
Ísfirðingar ætla að koma á fót starf-
semi sambærilegri við Stígamót. Þetta
kemur fram í svari félagsmálanefndar
Ísafjarðar þar sem beiðni Stígamóta
um fjárframlag er hafnað.
ÍSAFJÖRÐUR
ÁTÖK Óeirðalögreglu hefur verið beitt
gegn borgurum í Kenía í kjölfar kosn-
inga. NORDICPHOTOS/AFP
MANNFALL Í ÓEIRÐUM Óeirðir hafa
geisað í Pakistan í kjölfar morðsins
á Benazir Bhutto á fimmtudag.
Staðfest er að 38 hafa látist og fjöldi
fyrirtækja hefur verið lagður í rúst.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP