Fréttablaðið - 30.12.2007, Qupperneq 30
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
FERÐALÖG 4
[ MALLORCA ] Þegar jól og áramót eru yfi rstaðin á Íslandi eru Spánver-
jarnir enn í stuði og í janúar er mikið um hátíðarhöld á eyjunni Mallorca.
Veðurfar er milt og ljúft um vetrarmánuðina og upplagt að skella sér á
hátið vitringanna þriggja en það er eins konar skrúðganga í Palma þar
sem vitringar sitja í skrautlegum vögnum og dreifa sælgæti til barna. Síðar
í mánuðinum eru svo dagur heilags Antóníusar, þegar fólk kemur með
gæludýrin sín í kirkjurnar til að láta blessa þau, og dagur heilags Sebastíans
en þá eru veisluhöld á götum úti. Skemmtilegustu gistinguna er að fi nna í
fjallþorpinu Fornalutx (prufaðu til dæmis Ca‘an Reus, canreushotel.com)
og það eru frábærir veitingastaðir í Palma. Stjörnurnar fara á La Boveda sem býður upp á ýmiss konar skelfi sk.
Kauptu þér svo vín og mat í gourmet-búðinni Fosh Food (foshfood.com) - amb
... HANDBÓK HIPP OG KÚL FERÐALANGSINS
Tímaritið Wallpaper gefur út úrval sniðugra
ferðabóka í samstarfi við Phaidonþar sem bestu
hótelin, veitingastaðirnir og verslanir í hverri
borg eru útlistuð.
Í ferðinni ætlum við
að næla okkur í...
... BEAUTÉ Initial
þessi hrukkubani
er mest selda
snyrtivaran á
Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og
bráðnauðsynlegt
í fyrir þurrkandi
flugferðir.
... HÁTÍSKUTASKA
Alexander McQueen
hannaði þessar
flottu og praktísku
ferðatöskur með
beinagrindarmótífi
fyrir Samsonite. Fást
í flestum stórverslun-
um erlendis.
M
arokkó er dásamlegur
draumaáfangastaður
fyrir þá sem vilja
komast á hlýjar slóðir
í janúar. Marrakech er heldur ekki
of langt í burtu, og hægt að fljúga
þangað frá París, London eða
Köben. Borgin er einstaklega
heillandi og býður upp á seiðandi
andrúmsloft, frábærar exótískar
verslanir og glæsileg hótel. Það er
ekki skrýtið að Parísarhótelið
Murano hafi ákveðið að setja útibú
á fót í þessari svölu norðurafrísku
paradís. The Murano Oriental er
eins og miðausturlensk höll með
fjórum „riad“ byggingum sem
HEIMAMAÐURINN
BERGÞÓRA MAGNÚSDÓTTIR, BÚN-
INGAHÖNNUÐUR OG LISTNEMI
BARCELONA
BÚÐIN: Le Swing búðin
í Raval er í miklu
uppáhaldi hjá mér,
þar er hægt að finna
skemmtilega blöndu
af notuðum og nýjum
fötum. Markaðurinn
Glorias getur líka lumað
á nokkrum gullmolun-
um ef heppnin er með
í för en markaðurinn er
opinn alla laugardaga,
miðvikudaga og föstu-
daga frá kl 7-14. Best
er að vera þar í fyrra
fallinu.
VEITINGASTAÐURINN:
Sushibarinn Kyoto
í gotneska hverfinu
býður upp á það allra
besta sushi sem ég hef
smakkað og notalega
stemningu á sann-
gjörnu verði.
BESTA HEFÐBUNDNA
VEITINGAHÚSIÐ: Arg-
entínski veitingastaður-
inn Goucho´s.
KOKTEILLINN EFTIR
INNKAUPALEIÐANGUR:
Ég mæli með Boadas
kokteilbarnum í Raval.
Einn af elstu börunum
í borginni, þar sem
drykkirnir eru framreidd-
ir af herramönnum í
smókingfötum.
EKKI MISSA AF: Það
fer enginn frá Barcelona
án þess að heimsækja
byggingar arkitektsins
Gaudí, ævintýraheimur
sem er svo sannarlega
vert að sjá en kostar
oft langar biðraðir og
tilheyrandi pirring.
SÚRAST VIÐ BORGINA:
Túristastraumurinn á
vorin sem teygir sig
langt inn í veturinn getur
oft verið ansi þreytandi
sem og léleg þjónusta á
veitingahúsum.
ÞÚSUND OG
EIN NÓTT
Nýja Murano-hótelið í Marrakech er
draumur úr Þúsund og einni
umkringja sundlaug í miðjunni. Arkitektúr-
inn sjálfur er mjög hefðbundinn en innrétt-
ingarnar eru mjög nútímalegar og smart.
Þú getur eytt öllum tímanum á hótelinu en
þar er hægt að slappa af í glæsilegri heilsu-
lind, sötra myntute á svölunum eða slappa
af við sundlaugina. Plötusnúðar spila við
sundlaugina flestar helgar og einnig er að
finna fransk/marokkóskan veitingastað á
hótelinu. Svo er um að gera að kíkja á
skemmtilegt andrúmsloftið í Jemaa El Fnaa
sem er opið markaðssvæði í miðborginni en
þar er að finna alls kyns „souk“ markaði þar
sem hægt er að gramsa í ýmiss konar vefn-
aðarvöru, teppum og silfurmunum.
- amb
www.muranoresort.com