Fréttablaðið - 30.12.2007, Page 49
SUNNUDAGUR 30. desember 2007 25
Efl ing-stéttarfélag vinnur fyrir þig
Nú lækka félagsgjöldin í frá og með 1. janúar 2008
Á undanförnum dögum hefur söngur ómað
úr hverju útvarpi, hverri kirkju, hverjum
tónleikasal drottni til dýrðar. Við höfum
samþykkt að þetta sé gott og notið þess og
í anda mannssonarins höfum við fært hvort
öðru gjafir, að vísu misdýrar og miskristi-
legar, en einhvern veginn hefur hann feng-
ið að vera með í þessu öllu hjá okkur,
kannski vegna þess að boðskapur hans er
góður og við aðhyllumst hann.
Nú er ný kynslóð búin að opna nótnahefti
Andrew Lloyd Webber og gott tækifæri að
rifja upp söngleikinn sem varð til upp úr
hugmyndum hippamenningarinnar þar
sem friður á jörð var eitt aðalinntakið.
Menn trúðu því í einlægni að heimurinn
yrði betri staður ef í honum ríkti friður og
þá var leitað dyrum og dyngjum að aðal-
boðbera friðar í henni veröld og duttu
menn þá niður á margumræddan Jesú. Það
var enginn betri boðberi friðar til heldur
en hann. Með þetta tvennt var lagt í hann
og varð úr því ótrúlegt tónlistarferðalag
um víða veröld þar sem boðskapurinn naut
sín ekki síður en hin fantagóða músík.
Nú er söngleikurinn um Jesú Krist súper-
stjörnu settur upp hjá Leikfélagi Reykja-
víkur í þriðja sinn og markmið leikstjórans
ef marka má texta í prógrammi var að losa
sig við hippastemninguna og er það í sjálfu
sér góð og gild aðferð við að koma verkinu
á framfæri í nútímanum en boðskapurinn
og frásögnin lenti líka í ruslafötunni.
Kannski var það meðvitað gert til þess
að stuða ekki múslíma núna þegar við erum
að springa úr tillitssemi við aðra trúar-
hópa. Textaræma í rauðum ramma líkum
Vodafone-auglýsingu: Nýr tími, Jesú er
kúl, birtist ásamt jólalegri auglýsinga-
mynd af frelsaranum fyrir ofan leikhópinn
þar sem Jesú í netabol og svörtum leður-
brókum vafraði um heldur pasturslítill
með hárið niðri í augum fitlandi við hljóð-
nemann.
María söng um að hann væri ósnertan-
legur en engu að síður var hún síkáfandi á
honum og lá við að hann sofnaði á milli
brjóstanna á henni þar sem hún glennti sig
glyðruleg í rokkmúnderingu með bobbing-
ana upp úr.
Sýningin var öll eins og sundurklippt
myndskeið úr mörgum myndböndum þar
sem gleymst hefur að tengja söguna saman.
Enn þekkjum við þessa sögu en ungur leik-
listarnemi hafði á orði í hléi að hann vissi
nákvæmlega ekkert hvað væri að gerast á
sviðinu, en hafði nú samt gaman af þessu,
svo sem.
Samkvæmt fréttum nýverið eru 400
íslensk ungmenni í alvöru söngnámi. Það
getur ekki verið annað en að innan þess
hóps leynist að minnsta kosti einn sem
hefði passað í hlutverk Júdasar og getað
skilað því tónlistarlega og textalega þannig
að einhver í salnum hefði skilið það sem úr
hans barka ómaði.
Hópatriðin voru ótrúleg. Það glitti í
peysufatakerlingar og alls kyns fólk enda
var víst meiningin að færa verkið nær
okkur og það má segja að það hafi aldrei
færst nær okkur en í senunni úr Kántrýbæ
þar sem grillmeistari í Hallbjarnarlíki
mundaði grilltangirnar á meðan lærisvein-
arnir, sem líktust frekar lærisneiðum,
vöfruðu um og hífðu sig upp úr heita pott-
inum. Það var engin skýring á nokkurn
hátt af hverju þessir menn væru í þessu
liði frekar en aðrar skýringar í þessari
uppsetningu.
Hvað textann varðar þá var hann á köfl-
um flatur og það sem átti að vera fyndið fór
fyrir ofan garð og neðan hjá fólki.
Ein af meginástæðum þess að menn
fylgdu Jesú og hafa gert í gegnum aldirnar
er sú útgeislun sem frá persónu hans og
boðskap hefur stafað, hér var Jesú sjálfur
eins og skólastrákur sem kemur of seint í
tólf ára bekk og hann hafði ekkert fram að
færa sem skýrt gæti að hálfur heimur
gengi til liðs við hann.
Leikmynd Axels Hallkels Jóhannessonar
myndaði ekki aðeins góðan ramma um
verkið heldur lyfti hann sýningunni nær
þeirri tónlistarsnilld sem söngleikurinn er.
Hljómsveitin var mjög góð og byrjunar-
atriðið alger klassi.
Lára Sveinsdóttir sem fór með hlutverk
Maríu söng vel. Ingvar E. Sigurðsson í hlut-
verki Pílatusar birtist eins og sjentilmaður
úr annarri veröld og fór að vanda undurvel
með texta sinn og söng, eins kom Heródes á
óvart, það var Bergur Þór Ingólfsson sem
ljáði þeim spéfugli líf. Hann var eins og svo
oft áður senuþjófur þó svo að þessi múnd-
ering hafi verið stílbrot.
Tónlistin er og verður frábær og sú
hljómsveit sem hér sté á stokk bauð upp á
þétt og kraftmikið rokk. Elísabet Brekkan
Fylg þú mér! Af hverju?
LEIKLIST
Jesus Christ Superstar
Tónlist: Andrew Lloyd Webber
Texti: Tim Rice
Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson
Hljóð: Sigurvald Ívar Helgason
Söngstjórn: Hera Björk Þórhallsdóttir
Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Búningar: Dýrleif Ýr Örlygsdóttir og Margrét
Einarsdóttir
Ljós: Halldór Örn Óskarsson
Video: Frank Hall
Hljómsveit: Unnur Birna Björnsdóttir, Daði Birg-
isson, Bjarni Sigurðsson, Björn Stefánsson, Karl
Daði Lúðvíksson
Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson
Tónlistarstjórn: Daði Birgisson
Leikstjóri: Björn Hlynur Haraldsson
★★
Blanda úr mörgum myndböndum en sagan
týnd.
LEIKLIST Ingvar E. Sigurðsson gefur Krumma Björgvinssyni orðið í frægu einsöngslagi Pílatusar – Ingvar fór
að vanda vel með texta sinn og söng. MYND/LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR