Fréttablaðið - 30.12.2007, Síða 62

Fréttablaðið - 30.12.2007, Síða 62
38 30. desember 2007 SUNNUDAGURHVAÐ SEGIR MAMMA? Hvað er að frétta? Platan mín, Við og við, kom nýlega út í Evrópu en ég er komin í pásu frá utanferðum og spileríi í bili. Ég á nefnilega von á barni í byrjun janúar. Augnlitur: Blár. Starf: Tónlistarkona. Fjölskylduhagir: Í sambúð með barn á leiðinni. Hvaðan ertu? Úr Reykjavík. Ertu hjátrúarfull? Þegar það hentar mér. Ég tengi stundum saman tilviljanir og trúi á hluti sem boða gæfu. Ég hef minni áhuga á vondum teiknum. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Danski sakamálaþátturinn Forbrydelsen. Uppáhaldsmatur: Blóðug nautasteik. Fallegasti staðurinn: Porto í Portúgal. iPod eða geislaspilari: Alveg sama, ef það er tengt við hátalara. Hvað er skemmtilegast? Að hlusta á góðan sögumann. Hvað er leiðinlegast? Skriffinnska. Helsti veikleiki: Viðkvæmni og stjórn- semi. Helsti kostur: Næmi og áræðni. Helsta afrek: Að ganga síðustu 200 kílómetrana af leiðinni til Santiago de Compostela á Spáni. Mestu vonbrigðin: Afþreyingar- horn fyrir karla í Hagkaupum. Hver er draumurinn? Að dvelja á ensku sveitahóteli í mánuð að hausti. Hver er fyndnastur/fyndnust? Bragi Kristjónsson bóksali. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Núgildandi reglur um fæð- ingarorlof. Hvað er mikilvægast? Kærleikur- inn. HIN HLIÐIN ÓLÖF ARNALDS TÓNLISTARKONA Ósátt við karlahornið í Hagkaupum „Þetta er ákaflega skemmtilegt og spennandi verkefni enda hafði ég ekki einu sinni hugmynd um að svona hlutir væru til,“ segir flug- virkinn Jón S. Bragason sem und- anfarna 6-8 mánuði hefur unnið að því að innrétta flugvél sem „fljúg- andi spilavíti“ fyrir bandaríska spilavíta- og hóteleigandann Sheldon Adelson, sjötta ríkasta mann heims. „Ég er með fyrirtæki í Dubai, JB Aviation, sem sérhæf- ir sig í ýmsum verkefnum fyrir flugfélög og einkaaðila. Ég kynnt- ist Adelson fyrir einu og hálfu ári síðan þegar hann var að leita að flugvélum. Hann keypti tvær not- aðar af konungsfjölskyldunni í Sádi-Arabíu og bað mig svo um að innrétta þær, aðra sem nokkurs konar VIP-vél og hina sem spila- víti. Við sjáum um tæknilegu hlið- ina en fáum innanhússhönnuði til liðs við okkur til að sjá um útlitið.“ Jón segir að þrátt fyrir auðæfin séu Adelson og hans menn þægi- legir í samskiptum. „Það var mjög gott að vinna fyrir þá. Þeir sáu bara um sín viðskipti og létu okkur alveg um þetta. Það liggur gríðar- lega mikil vinna að baki verkinu enda er vélunum bókstaflega slátrað og þær nánast hannaðar upp á nýtt. Við settum inn í þessar vélar nuddstofu, spilaborð og stóla sem hægt er að sofa í svo fátt eitt sé nefnt. Svo verður að vera full- komið eftirlitskerfi eins og reglan er í spilavítum.“ Hver vél um sig kostar fullbúin litlar 200-300 millj- ónir íslenskra króna. Jón segist ekki vita annað en að þetta séu fyrstu fljúgandi spilavíti heims. „Þessi maður fær góðar hugmyndir og virðist vita hvað hann er að gera. Hann á miklar eignir í Las Vegas og opnaði nýver- ið spilavíti í Macau í Kína sem er næststærsta bygging heims og sú stærsta í Asíu. Nú ætlar hann að byggja annað eins í Singapúr enda eru fjárhættuspil vinsælli í Asíu en í Las Vegas. Þessi fljúgandi JÓN S. BRAGASON: INNRÉTTAR FLUGVÉLAR FYRIR HUNDRUÐ MILLJÓNA Fljúgandi spilavíti fyrir einn ríkasta mann heims Fyrstu eintökin af nýja Land Cruiser 200 jeppanum frá Toyota eru komnir til landsins og var fyrsta eintakið afhent í gær. Fjölmargir hafa beðið óþreyjufullir eftir nýja lúxusjeppanum í fleiri mánuði, en pantanir á honum hófu að berast Toyota á Íslandi í byrjun ársins. „Fyrstu bílarnir verða afhentir um helgina og að sjálfsögðu munu þeir fyrstu sem keyptu fá fyrstu bílana,“ segir Bjarni Freyr, vörumerkjastjóri Toyota á Íslandi, en 170 manns hafa þegar fest kaup á jeppanum, sem kostar frá 10,7 milljónum króna. Alls er því um að ræða tæplega 1,9 milljarða fyrirfram sölu hjá Toyota. Fáheyrt er að jafn mikill fjöldi fólks panti lúxusbifreið með slíkum fyrirvara, jafnvel áður en að upplýsingar um tæknibúnað og útlit liggja fyrir, en auk þess hafa tæplega 200 manns pantað bílinn. „Við gerum ráð fyrir að þessi áhugi stafi af því að fólk þekkir bílinn af góðu einu,“ segir Bjarni. Starfsmenn Toyota og umboðsaðila hafa fengið að prófa LC 200 við ýmsar aðstæður að undanförnu sem hluta af söluþjálfun og segir Bjarni að bílllinn standist allar væntingar – og vel það. „Það er eiginlega bara fáránlegt hvað hann er góður. Einstök upplifun,“ segir hann. - vig Jeppar fyrir 1,9 milljarða afhentir LÚXUSTORFÆRU- TÆKI Nýi Land Cruiser 200 jeppinn eyðir og mengar minna en fyrri teg- undir og er meðal annars í boði með 4,7 lítra dísilvél sem skilar allt að 235 hestöflum. Jeppinn er stærri og þyngri en fyrri tegundir en samt mun liprari í akstri. SJÖTTI RÍKASTI MAÐUR HEIMS Sheldon Adelson var útnefndur sjötti ríkasti maður heims af Forbes tímaritinu á þessu ári og þriðji ríkasti maður Bandaríkjanna á eftir þeim Bill Gates og fjár- festinum Warren Buffett. Adelson er 73 ára gamall og eignir hans eru metnar á 26,5 milljarða Bandaríkjadala. Það jafngildir tæplega 1.700 milljörðum íslenskra króna. Adelson er ekki fæddur með silfurskeið í munni því faðir hans var leigubílstjóri í Boston. Adelson var þó gæddur viðskiptaviti og aðeins 12 ára gamall fékk hann lánaða 200 dollara hjá frænda sínum til þess að geta selt dagblöð. Hann er ómenntaður en náði með kænsku sinni að auðgast nægilega til þess að geta keypt gamalt spilavíti í Las Vegas sem hann reif niður og byggði á grunninum gríðarstórt hótel, ráðstefnusali og nýtt spilavíti. Síðar byggði hann annað spilavíti fyrir tæpa tvo milljarða Bandaríkjadala við hlið samkeppnisaðilans og hefur nú veðjað á Asíu sem næsta stóra mark- aðssvæði sitt. Opnaði spilavíti í Kína árið 2004 og ætlar að opna þar sjö til viðbótar auk spilavíta í Singapúr og víðar í álfunni. REKUR FYRIR- TÆKI Í DUBAI Jón S. Bragason á og rekur JB Aviation í Dubai, fyrirtæki sem sérhæfir sig í ýmsum verkefnum tengd- um flugi. Sheldon Adelson, sjötti ríkasti maður heims, fékk fyrirtækið til þess að breyta flugvél í fljúg- andi spilavíti. 04.01.80 Kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, The Amazing Truth About Queen Raquela, var fyrir skemmstu valin til sýningar á kvikmyndahátíðinni í Berlín sem fram fer dagana 7.-17. febrúar næstkomandi. Á föstudag var tilkynnt hvaða myndir verða sýndar í sama flokki, Panorama Main Programme. Athygli vekur að frumraun Madonnu sem leikstjóra er þeirra á meðal en alls eru þrettán myndir í flokknum. „Já, við erum að keppa við Madonnu,“ segir Ólafur og hlær. Mynd söngkonunnar heitir Filth And Wisdom og er gam- anmynd. Mynd Ólafs fjallar hins vegar sem kunnugt er um stelpustráka á Filippseyjum. Hann seg- ist ætla að gera sitt besta til að fá aðalleik- konu myndarinnar, Raquelu Rios, til að koma á hátíðina. „Já, ég ætla að reyna að ná drottningunni. Hún var á götunni í Cebu City á Filipp- seyjum fyrir tveim- ur árum og er núna á leið á kvikmynda- hátíð í Berlín. Þetta er svona Ösku- buskuævintýri,“ segir Ólafur og bætir því við að þessi velgengni myndarinnar sé að miklu leyti Kvikmyndamiðstöð Íslands að þakka. „Þau styrktu myndina og hafa staðið vel við bakið á okkur.“ Myndin um drottninguna Raqu- elu verður frumsýnd hér á landi í lok febrúar en önnur mynd eftir Ólaf, Stóra Planið, verður að líkind- um frumsýnd í mars. Pétur Jóhann Sigfússon fer þar með aðalhlutverk- ið en myndin fjallar um mann sem öðlast sáluhjálp í kínversku sölumyndbandi eftir að hafa ungur misst bróður sinn í slysi. Hann er meðlimur í handrukkaragengi en er þess fullviss að hans bíði stærra hlutverk í lífinu með hjálp myndbands- ins. „Ég held ég sé að leggja lokahönd á Stóra Planið. Annars er það allt- af að breytast. Þegar maður er að leika Picasso hættir maður aldrei að mála,“ segir Ólafur. - sók Ólafur með Madonnu í Berlín Á LEIÐ Á KVIKMYNDAHÁTÍÐ Mynd Ólafs Jóhannessonar, The Amazing Truth About Queen Raquela, var nýverið valin til sýningar á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Í SAMA FLOKKI Frumraun Madonnu í leikstjórn, Filth And Wisdom, verður sýnd í sama flokki og mynd Ólafs um stelpustráka á Filippseyjum. Krummi er mjög góður dreng- ur, enda er hann að leika Jesú. Hann er ljúfur, með gott hjarta og vel upp alinn – fékk gott veganesti frá foreldrum sínum. Ragnheiður Björk Reynisdóttir er mamma Hrafns Björgvinssonar, Krumma, sem leikur aðalhlutverkið í söngleiknum Jesus Christ Superstar sem var frumsýndur í Borgarleikhúsinu á föstudag. Gnoðarvogi 44, s. 588 8686. spilavíti verða notuð til þess að ferja spilara á milli Macau og Las Vegas. Þau verða þó eingöngu fyrir boðsgesti. Við vorum að klára fyrstu vélina en það er hugmyndin að breyta tveimur til að byrja með og sjá hvernig þær koma út.“ Vél- arnar rúma um 40-60 manns og annan eins fjölda af starfsfólki. „Það þurfa að vera öryggisverðir og gjafarar í viðbót við hefð- bundna áhöfn. Það er geysilega mikið í þetta lagt.“ Jón fær sjálfur að prófa að fljúga í vélinni því hann kemur til með að fara með í hennar fyrstu ferð til Kína í jan- úar. „Svo erum við að leita að fleiri vélum núna, þær verða líklega fjórar á endanum.“ sigrunosk@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.