Fréttablaðið - 30.12.2007, Page 64

Fréttablaðið - 30.12.2007, Page 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 OMXI15 var 6.310,23, þegar til-kynnt var á hátíðarfundi í Þjóðmenningarhúsinu hver hefði verið útnefndur viðskiptamaður ársins, og Dow Jones var 13.551,69 þegar ég neyddist til að skála með hinum mógúlunum fyrir Jóa í Víti Energy Invest. Ef ég á að vera hreinskilinn höfðum við Mallí gert ráð fyrir að ég yrði útnefndur; ég komst þó yfir Sjálfsmínbanka á árinu, stofnaði Tsjænís væking ventsjörs og Katla dsjíóþörmal vissdomm and páver senter, sagði þrjú þúsund manns upp vinnu, endurfjármagnaði og skuldsetti, var í sautján veislum með forset- anum, flaug til Indónesíu með Öss- uri og keypti einkaþotu ef Össur skyldi langa að fara þangað aftur. EN: Það var sem sagt Jói í Víti Energy sem ég mátti taka í hönd- ina á og óska til hamingju með að vera „viðskiptamaður ársins“. Ég er viss um að hann nældi sér í tit- ilinn út af sextíu miljarða gróðan- um sem hann náði út úr einkavæð- ingunni í Korröpt-kistan eða einhverju öðru Miðasíurassgati. Jói var ósköp alúðlegur við okkur Mallí. Hann sagði að röðin kæmi næst að mér ef hann væri ekki búinn að ganga frá mér með góðum díl. Við skellihlógum að þessu góðlátlega gríni. Jói er ekk- ert verri en hver annar. Honum er ekki treystandi. EFTIR vonbrigðin í Þjóðmenning- arhúsinu litum við til pabba. Hann var fluttur í dauðans ofboði á spít- ala í fyrrakvöld eftir að mamma var búin að byrla honum skötu, hamborgarhrygg og hangikjöt í fjóra sólarhringa. Ég skil ekki þetta kæruleysi í mömmu. Ætlar hún að lifa á einum eftirlaunum eftir að pabbi á ekki lengur rétt á sínum? En þetta reyndust óþarfa áhyggjur. Pabbi var allur að hress- ast. Hann lá með tíu öðrum frammi á gangi í Fossvoginum, var með fótagaflinn í skúringaskáp og kvartaði ekki yfir öðru en að þeir, sem þyrftu að fara á klósettið, yrðu að klofa yfir rúmið hans. VIÐ Mallí óskuðum honum gleði- legs árs og báðum að heilsa mömmu. Við fljúgum í fyrramálið á lúxusresort í Frönsku Ölpunum. Þar á að halda upp á áramótin með íslenskum mógúlum, bæði þeim sem eru lífs og hinum sem eru sumpart liðnir í aldanna skaut – eða horfnir í bili fram að næstu yfirtöku. Eins og þar stendur: Guð mun ráða hvar við dönsum...... Billjónsdagbók 30.12.2007 BAKÞANKAR Jóns Arnar Marinóssonar Í dag er sunnudagurinn 30. desember, 364. dagur ársins. 11.21 13.30 15.39 11.35 13.15 14.55 með ánægju Gleðilegt 2008! Við þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða og óskum landsmönnum öllum gæfu og góðrar ferðar á nýju ári. F í t o n / S Í A „...fyrst á visir.is“ ...ég sá það á visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.