Tíminn - 25.04.1981, Qupperneq 9

Tíminn - 25.04.1981, Qupperneq 9
Laugardagur 25. april 1981 17 Norræn 20. aldar tónlist „Ég geri þaö aldrei i dag sem beðiö getur til morguns”, sagöi Oscar Wilde, og þess vegna mætti þessi grein blöa nokkra daga I viöbót. En aldrei þessu vant hefi ég Boöskap til Þjóöar- innar fram aö færa, um nútima- tónlist á breiöum grundvelli, og læt þvi blekiö streyma. Tónleikar Sinfóniuhljómsveit- arinnar 9. april voru helgaöir skandinaviskri 20. aldar tónlist: á efnisskránni voru „Greet- ings from an old world” (1976) eftir sænskan mann aö nafni Ingvar Lidholm, þá fiölukonsert (1978) eftir annan Svia, Thor- björn Lundquist og loks 1. sinfónia Sibeliusar I e-moll óp. 39 (samin 1899). Páll P. Pálsson stjórnaöi, en einleik lék Karel Sneeberger, tékkneskur maöur, em lengi hefur starfaö I Sviþjóö. Fiölukonsert Lundquists var einmitt saminn honum til heið- urs, skv. pöntun menningarráös örebrokaupstaðar, en Sneeberger spilar i þorps- bandinu. Karel Sneeberger er geysisleipur fiðlari, og var I eina tlö prófessor viö tónlistar- háskólann i Prag, þar sem hann kenndi frægum mönnum eins og Josef Suk, en er nú kominn til þessa fáheyröa staðar, örebro, eins og áöur sagöi, hvaö sem valda kann. „Sporin hræöa” segir þar, og islenzkir tónlistarunnendur kusu aö sitja af sér þessa tónleika, enda munu margir á þvi máli aö sé eitthvaö leiöin- legra en skandinaviskur sósialismi, þá sé þaö skandinavisk menning. Thor- björn Lundquist tekur þá stefnu, sem mörg tónskáld hafa gert á undan honum, aö tileinka verk sitt snjöllum hljóö- færaleikara, sem síöan feröist vitt og breitt og flytji þaö — þegar vel tekst til er þetta eins konar „symbiósis”- samlifi-og báöir aöilar hafa gott af. En sé verkiö leiöinlegt, hvilir það sem ok á hljóðfæraleikaranum. Ekki vildi ég vera i sporum Sneebergers meö þennan konsert limdan viö mig. Miklu skárra var Greetings from an old world — kveöa aftanúr forneskju, sem er „pró- gramm-tónlist” um sænskan bílaiönaö, og lýsir feröalagi tónskáldsins ' meö einni af afuröum hans. Verkið hefst með ámátlegu og langdregnu ýlfri — merki um örugga hemla, sem viöskiptavinir SVR þekkja svo vel — og feröin er hafin. Lid- holm hafði fengiö sér einn létt- an fyrir feröina, og nú fer aö ólga I innyflum hans, eins og næsti kafli, sem borinn er af strengjunum, lýsir. Slagverkið lýsir þvi, þegar skáldiö kveikir sér i sigarettu, og maimblásarar túlka árásir annarra farþega á mengunarvaldinn, sem siöan leiöa til högga og slaga (slagverk — bassatromma, pákur og diskar ). Bilstjórinn reynir aö loka eyrum fyrir þess- um leiðindum og kveikir á snældu sinni : ómur af „Innsbruck, ich muss dich lassen” ómar gegnum hávaö- ann. Loks hemlar bfllinn meö skérandi ýlfri og skáldið staúí- ast út. Feröinni er lokiö — meö aöstoö sænskrar tækni var tón- skáld flutt örugglega frá A til B. Loks spilaöi hljómsveitin l. sinfóniu Sibeliusar sem, eins óg hin fyrri verk, er undir sterkum áhrifum erlendra tónsmiöa sinnar tiöar (Tjækofskis), og fórst þaö vel úr hendi. En nú er tvenns aö gæta.: Þaö viröist vera almenn skoöun, og ekki vil ég mótmæla henni, aö tónlistin þróist „áfram,” og þess vegna sé það eftirsóknarvert aö hinn almenni borgari kynnist og læri aö hlusta á svokallaöa nútimatónlist. En þaö er misjafn sauöur i mörgu fé, og ég tel það allt aö þvi ófyrirleitiö aö bjóöa mönnum (öörum en sérfræðingum i þess- um fræöum) uppá tvö verk eins og þessi sænsku 8.-áratugs verk, sama kvöldiö: ef þessi tónlist er tekin alvarlega, á aö spila hana meö annarri tónlist, en ekki á sérstökum skyldutónleik- um. Þvi þessi tvö verk, eftir Lidholm og Lundquist, sameinuöu þaö aö vera sænsk, óþekkt, eftir flestum-óþekkta menn, og „frá þvi i gær,” þ.e. gersamlega ósiuö ef reynslunni. En nú heyrast mörg tónverk leikin hér I bænum, sem menn vildu gjarnan heyra aftur. Fyrr I vetur var t.d. leikiö verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, aö ég held, sem haföi veriö leikiö fyrir 10 árum, en aldrei þar á milli. Min uppástunga er sú, aö r Ik i s ú t v a r p iö gerist snældu-útgefandi, og fjölfaldi og selji verk islenzkra og annarra nútíma-tónskálda. Okkur er sagt aö Sinfóniuhljómsveitin sé alltaf I „upptökum”, en hver heyrir þessar upptökur nokkurn tima? Meö þvi móti, aö „upp- tökur” Sinfóniuhljómsveitar- innar yröu til sölu á snældum fyrir lysthafendur, mundi gildi hljómsveitarinnar fyrir islenzkt tónlistarlif margfaldast — og er þaö þó æriö fyrir. 21. april Siguröur Steinþórsson. Tónleikar í Háteigskirkju Kór Háteigskirkju háöi sam- keppni viö Guö og menn um aö- sókn aö tónleikum á föstudaginn langa: Veöriö var yndislegt, eftir einn leiðinlegasta vetur i manna minnum, svo útivera freistaöi margra, og auk þess voru bezt-auglýstu tónleikar vetrarins háöir i Háskólabiói fyrr um daginn. En allt um þaö: kirkjan var liölega hálffull og tónleikarnir mjög ánægjulegir, og þarna gat aöheyra söng, sem sjaldan heyrist hér: einn af tengdasonum Islands, Dr. Hu- bert Seelow, Norrænufræð- ingur, Germanistikker og al- hliöa kúnstner, söng kontra- tenór af mikilli list. Ég haföi ekki heyrt Seelow syngja áöur, og söngur hans kom mér mjög (og skemmtilega) á óvart, þvi röddin er alveg óvenjulega fall- eg og þýö, meö skemmtilegu og öguöu „vfbratói”. Hubert Seelow söng þarna tvö verk, Kantötu fyrir kontratenór og orgel eftir Bernabei (um 1670), og Kantötu nr. 55 fyrir hljóm- sveit, kontratenór og orgel eftir Jóhann Sebastian Bach (1685-1750). Organisti og kórstjóri Há- teigskirkju er Orthulf Prunner, annar þýskur tengdasonur. Kórinn virtistmér syngja hreint og vel, en þvi miöur söng hann alltof litiö á tónleikunum — þaö heföi veriö mér aö meinalausu, þótt orgeltónlist Prunners heföi veriö sleppt, og kórsöngur auk- inn, þótt útaf fyrir sig sé aldrei ofmikiö af góöu orgelspili. Prunner lék þarna 3 verk eftir J.S.Bach, Praeludiu og Fugu I h-moll, Sálmaforleik, og Trió- sónötu I d-moll. Mér fannst leik- ur Prunners full-órólegur, en vafalaust og vonandi er hér um upprennandi góöan orgelleikara aö ræöa. Kórinn söng tvö verk sjálfur, Ave Verum Corpus eftir Mózart, og Aller Augen warten auf dich Herre eftir Schútz, og tók þátt i Kantötu Bachs fyrir kór, kontratenór og orgel Ich armer Mensch. Kór Háteigskirkju er greinilega einn af betri kirkju- kórunum i bænum, en I kirkjum hér á landi gerast hræðilegir hiutir á söngsviöinu, sem þorri manna fær ekki tækifæri til aö uppgötva nema þegar þeir lenda I fermingum — vonandi litur Drottinn á viljann fremur en árangurinn. Hitt er svo annaö mál, aö þessir finu kirkjukórar, eins og kór Lang- holtskirkju og Háteigskirkju, örva söfnuðinn varla til aö taka undir I tilbeiöslu til Almættisins, en I sumum öörum kirkjum gæti manni fundizt, sem ein hjá- róma rödd til gæti ekki spillt neinu fyrir heildina. Og sumir halda þvi fram, aö þaö hafi veriö til mestu bölvunar þegar hinn dannaöi kórsöngur var tek- inn upp viö guösþjónustur, þvi þá hætti söfnuöurinn aö syngja. Aö visu voru þeir margir, sem töldu söng safnaöarins ofaukiö, eins og Ólafur Daviösson náttúrufræöingur tilfæröi úr Norölingi: „Þaö er reglulegt hneyksli aö heyra, hvernig söngurinn fer viöa fram I kirkj- unum. Þar er einatt sálmalagiö sungið rammskakkt og skælt. Sumir eru á undan i vessinu, sumir á eftir, sumir streitast viö aö belja sem barkinn þolir og hafa langar lotur, en þó tekur út yfir, þegar einhver, sem hyggst hafa meiri og merkilegri hljóö en hinir, rekur upp gól meö glymjandi rödd, sem kallaö er aö fara meö tvisöng.” Og Magnús konferensráö Stephen- sen telur fólk vera þverlynt og fávist, andlega söngva gauli þaö I belg, og menn dragi seiminn i söng, hvörr öörum lengur. Þeir „kúga upp skræki á stangli meö uppblásnum æöum á höföi og öllu andliti af ofraun.” Þaö er vafalaust mjög erfitt fyrir kór- stjórann aö hreinsa til i kór sin- um — þaö gengur vist ekki ofvel aö fá fólk til aö syngja I kirkju- kórum, og hver láir vesalings fólkinu, eins og ræöur prestanna eru? En þetta þurfa þó öll fyrir- tæki aö gera, sem ekki vilja lenda undir, jafnvel hefur heyrzt um þá aöferö til aö losna viö öskursóprana, aö koma þvi inn hjá þeim, aö þeir séu efni I stórsöngkonur, og senda þá til útlanda I söngnám. En þetta var útúrdúr um al- mennan kirkjusöng I landinu. Orthulf Prunner hefur greini- lega tekizt að drifa upp efnileg- an kór i Hateigskirkju, og þaö var sannarlega skaöi (frá sjónarmiöi sönglistarinnar) aö veöriö skyldi vera svona gott á föstudaginn langa. 23.4. Sigurður Steinþórsson ^ili °\ w Heilsugæslustöð á Fáskrúðsfirði Heildartilboð óskast i innanhússfrágang á Heilsugæslustöð á Fáskrúðsfirði. Innifalið i verkinu er t.d. múrhúðun, pipulagnir, raflagnir, dúkalögn, málun, innréttingasmiði, auk lóðarlögunar. Verkinu skal að fullu lokið 1. júli 1982. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavik gegn 1.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 12. mai 1981 kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 FERÐAVINNINGAR fvbS 300 utanferðir á tíu þúsund hver Auk þess 11 vinningar til íbúða- og húseignakaupa á 150.000.-, 250.000,- og 700.000.- krónur. Fullfrágenginn sumarbústað- ur, 100 bíiar og fjöldi húsbún- aðarvinninga. FJÖLGUN OG STORHÆKKUN VINNINGA Sala á lausum miðum og endurnýjun flokksmiða og ársmiða stendur yfir. Miði er möguleiki dae

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.