Tíminn - 25.04.1981, Síða 16

Tíminn - 25.04.1981, Síða 16
VARAHLUTIR Sendum um land allt Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Sími (91) 7-75-51, (91) 7-80-30. HÉDD HF. Skemmuvegi 20 HEDD HF. Mikiö úrval Opið virka daga 9-19 • Laugar- daga 10-16 -Kópavogi. Laugardagur 25. apríl 1981 Gagnkvæmt trygginga félag Nútíma búskapur þarfnast BAUER haugsugu Guöbjörn Guöjónsson heildverslun, Kornagaröi Simi 85677 Sænska stjórnin fallin? Frá fréttarit. Timans i Sviþjóðr Gylfa Kristinssyni t gær leit lit fyrir aö önnur rikisstjórn Thornbjörns Fá'lldin væri fallin. Þetta kom fram á blaöamannafundi, sem haldinn var til þess aö skýra frá gangi viöræöna, sem fram hafa fariö á milli sænsku flokkanna um breytingar á skattalögum. Rikisstjórn Fálldin var mynduö haustiö 1979, þegar borgara- flokkarnir, Miöflokkurinn, Þjóöarflokkurinn og Hægfara samningaflokkurinn, höföu fengiö eins þingsætis meirihluta umfram Sósialdemókrata og Vinstri kommúnista. 1 kosningabaráttunni lagöi Hægfara samningaflokkurinn mikla áherslu á breytingar á sænsku skattalögunum og sérstaklega lækkun tekjuskatts á meöaltekjur og hærri. Flokknum varð vel ágengt og fékk hann 20% atkvæða i kosn- ingunum, en hefur lengst af haft um þaö bil 12%. Frá myndun rikisstjórnar Fálldins hefur Hægfara (Moderata) samningaflokkurinn , undir forystu Gösta Bohmanns, fjármálaráðherra.knúiö á um framkvæmd skattalagabreyt- inga, sem allra fyrst og að þær kæmu til framkvæmda ekki sið- ar en 1982. Miðflokkurinn og Þjóðar- flokkurinn, hafa viljað fara sér hægar og reynt að stuðla að við- tækri samstöðu um breytingar á skattalögunum. Til að ná sam- stöðu um málið, bauð rikis- stjórnin sósialdemókrötum til viðræöna um væntanlegar breytingar. Lengi vel voru sósialdemókratar á báðum átt'- um um hvort þeir ættu að þiggja boðið, en létu til leiðast um siðir. Flokkaviðræður hófust i mars, enlágu niðrium páskana. Þráð- urinn var tekinn upp að nýju á fimmtud. A þeim fundi lögðu sósialdemókratar ' fram sinar kröfur, sem m.a. gera ráð fyrir takmörkun vaxtafrádráttar frá þvi sem nú er, einkum hjá lág- launafólki. Enn fremur krefjast þeir hækkunar launaskatts og tekjuskattslækkun komi ekki til framkvæmda, fyrr en fyrsta janúar 1983. Svonefnd trúnaðarmannaráð Miðflokks og Þjóðarflokks hafa samþykkt að leyfa fulltrúum flokka sinna i viðræðunefndinni að ganga að þessum kröfum. ^Hinsvegar hefur trúnaðar- 'mannaráð Moderata Samningspartiet algjörlega visað kröfunum á bug, og lýsa þvi jafnframt yfir að flokkurinn geti ekki átt aðild að rikisstjórn, sem hyggst starfa eftir þeirri stefnu, sem felst i kröfu Sósial- demókrata. A þriðjudag verða þingflokks- fundir Miðflokks og Þjóðar- flokks. Ef þeir staðfesta samþykktir trúnaðarmanna- ráðanna, sem allt bendir til, eru lifdagar rikisstjórnar FSlldins senn á enda. Sagt er aömennirnir hafi átt sér forfeöur, sem byggöu vötn og sjó á fyrri jarösögutlmabilum. Hér á myndinnisést enn ein sönnun þessa, I —eöa skyldu höfrungarnir gera betur en þessi ungmær, sem tekur stökkiö i sundlauginni I Laugardal? (Timamynd Róbert) Meðalaflinn á hvern bát 39 tonn fyrsta sumardag Sementsverksmiðjan: „Gæti orðið annað stopp eftár helgi” — segir Guðmundur Guðmundsson, JSG— ,,Það er i sjálfu sér ekki útilokað að það verði annað stopp i byrj- un næstu viku,” sagði Guðmundur Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunn- ar á Akranesi er við ræddum við hann i gær vegna þeirra greiðslu- vandræða sem verk- smiðjan hefur átt í og olli m.a. stuttri stöðvun á sementsframleiðslu fyrir nokkrum dögum. Guðmundur Guðmundsson sagöi að beiðni um 30% hækkun á sementi heföi lengi legið fyrir hjá Verölagsráði, en ekki fengist af- greidd. Siðast hefði fengist litil hækkun i desember. Frá þeim timá hefðu hins vegar orðið gifur- legar hækkanir á rekstrarvörum Sementsverksmiðjunnar, sér- staklega á oliu, en verksmiðjan notar 40 tonn af oliu á dag. Oliu- félögin krefjast nú greiðslu fyrir hvern fimm daga farm, sem kost- ar 400 þúsund krónur, og hefur verksmiðjan orðiö að reiða sig á skyndifyrirgreiðslu i bönkum til 'þess að fá oliuna afhenta. Guð- mundur sagði að sú olia sem Sementsverksmiðjan ætti nú dygöi fram yfir helgina. „Verðstöövunin var nú bundin við 1. mai, og þeir hafa liklega ekki treyst sér að hækka verðiö fyrir þann tima. En við biðum og vonum aö hækkunin komi sem fyrst þvi um leiö er okkur borgiö, vegna þess aö afurðalánin hækka þá sjálfkrafa hjá bönkunum,” sagöi Guömundur Guömundsson. HEI — Sumardagurinn fyrsti varö Hornfirðingum fengsæll, þvi þá bárust á land á Höfn samtals 662 tonn af fiski af 17 bátum. Meðalafli á bát var þvi um 39 tonn. Sem dæmi um aflann I gær, nefndi Sveinn Aðalsteinsson á Höfn, aö einn báturinn fékk 40 tonn i 3 trossur. Mest af aflanum var þorskur, en um 100 tonn ufsi. Aöalvandamáliö nú sagöi Sveinn skort á mannskap. Margt aðkomufólk hafi farið i burtu við þorskveiðibannið um miðjan mánuöinn og ekki komið aftur, svo nú vantaði óskaplega fleira fólk til starfa. Aðspuröur sagöi Sveinn ekkert vera hægt að hugsa um vinnuverndarlögin (10 tima hvild) þegar svona er, það sé bara unnið og unnið eins og fólk getur. Byrjað hafi verið að gera að um kl. 2 i fyrrinótt og ákveöiö sé aö vinna alla helgina. Samtals voru á fimmtudags- kvöldiö komin 9.459 tonn á land á Höfn. Þaöersvipaðurafli og var i fyrra, en mismunurinn sá aö mik- ið af aflanum nú hefur komið á land i aprilmánuði. Aflahæstu bátarnir eru Hvanney með 750 tonn i 51 sjóferð og Gissur hviti meö 727 tonn i 36 sjóferðum, sem er þá um 20 tonn í róöri að meðal- tali. Mikil ásókn I endursöluíbúðir i Verkamannabústöðum: Um 500 sóttu um i HEI — A sjötta hundrað umsóknir hafa borist til stjórnar Verkamannabústaöa um kaup á endursöluibúöum I Verka- mannabústööum i ár. Lang flestir umsækjendur voru hæfir, þ.e. uppfylltu skilyröi um bú- setu, og aö vera innan tilskil- inna tekju- og eignamarka. Stærsti hluti þeirra, eða um 8 af hverjum 10 verður samt óhjákvæmilega fyrir von- brigðum, þar sem ekki er gert ráö fyrir aö nema rúmlega 100 ibúðir I Verkamannabústöö- um komi til endursölu næstu 9- lOmánuðina. 1 þeirri áætlum er reiknaö meö svipaðri hreyfingu 100 íbúðir! og verið hefur á s.l. ári. Stjórn Verkamannabústaða hefur að undanförnu glimt við það vanþakkláta og erfiða verk- efni, að velja úr þá hólpnu, er hljóta hnossiö. Aðeins örfáar ibúöir eru lausar ennþá þannig aö fáir geta flutt þótt úthlutun ljúki. Hinir verða að biða.þolin- móðir misjafnlega lengi fram eftir árinu, eftir þvi að þessar ibúðir losni smám saman.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.