Tíminn - 22.05.1981, Síða 4

Tíminn - 22.05.1981, Síða 4
Nýtt frumvarp um Framkvæmdasjód aldraðra: NEFSKATTUR í STAÐ VEITINGAHUSAGJALDS ■ Samstaöa hefur tekist á heil- brigöis- og trygginganefnd neöri deildar Alþingis um flutning sér- staks frumvarps um Fram- kvæmdasjóö aldraöra. Skal sjóö- urinn styrkja byggingu húsnæöis og dvalarstofnana fyrir aldraöa. Sá meginmunur varöandi tekju- öflun er á þessu frumvarpi og fyrri hugmyndum heilbrigöisráö- herra um Framkvæmdasjóöinn, aö hætt er viö aö leggja sérstakt gjald á aögöngumiöa aö vinveit- ingahúsum, en þess i staö lagt til aö tekinn veröi upp 100 kr. nef- skattur á hvern skattskyldan ein- stakling f landinu. Akvæði um stofnun og starf- semi Framkvæmdasjóðs aldr- aöra voru fyrst i einum kafla stjórnarfrumvarps um heilbrigð- is- og vistunarþjónustu aldraðra, sem lagt var fram fyrr i vetur. Ljóst varð fyrir nokkru aö þetta frumvarp næði ekki fram að ganga á þessu þingi, og þvi var gripið til þess ráðs að flytja sér- stakt frumvarp um Fram- kvæmdasjóðinn, til þess að fjár- magn gæfist til framkvæmda á þessu ári. Þrátt fyrir viðtæka samstöðu um Framkvæmdasjóðsfrum- varpið, urðu mjög harðar umræð- ur um málið i neðri deild i fyrri- nótt. Halldór Blöndal snerist harkalega gegn málinu, og kvað það hluta af skattaþenslu rikis- stjórnarinnar. Magnús H. Magn- ússon og Jóhanna Sigurðardóttir fluttu breytingatillögu um að i stað nefskattsins kæmi 1% álag á tekju- og eignaskatt einstaklinga og félaga. —JSG íbúdaverð 20- 44% lægra úti á landi ■ Hlutfallslega bestu hús- næöiskaupin á landinu eru I stórum ibúðum og einbýlis- húsum úti á landsbyggöinni, samkvæmt upplýsingum er fengust um hjá Fasteignamati rikisins. Viö samanburö Fasteigna- matsins á heildarsöluveröi ibúöa i Reykjavik og á Akur- eyri i mars s.l. kom i ljós að ibúðaverð á Akureyri var 21— 33% lægra aö jafnaði en i Reykjavik miðað við verð á fermetra. Mestu munar á stórum ibúðum og einbýlis- húsum en minnstu á litlum ibúðum i fjölbýlishúsum. Við samsvarandi saman- burö á sölu húsnæðis utan höfuðborgarsvæöisins (i kaup- stöðum og stærri kauptúnum) og I Reykjavik kom i ljós, að húsnæöi þar var að jafnaði 44—20% ódýrara en i Reykja- vik. Mestu munaði þar einnig á stórum ibúðum og einbýlis- húsum en meinnstu á litlum blokkaribúðum. Litlar ibúöir eru allsstaðar á landinu hlutfallslega dýrari en stórar. Verðmunurinn þar á milli virðjst þó jafnvel ennþá meiri úti á landsbyggðini en i Reykjavik. útborgun utan Reykjavikursvæðisins er einnig hlutfallsiega nokkru lægri en á Reykjavikur- svæöinu. —HEI Ræða nú starfs- aldurslistann ■ Nefnd sú sem Hæstiréttur skipaði til þess aö fella úrskurð i málum flugmanna vegna starfsaldurslistamálsins hefur þegar komiö saman til fundar og mun hittast að nýju nú i næstu viku. 1 nefndinni eiga sæti þeir Guðmundur Jónsson, borgardómari, Bárður Daniels- son, arkitekt og Guðmundur Magnússon háskólarektor. Guðmundur Jónsson sagði er við ræddum við hann i gær að nefndin hefði þegar fengiö mikiö af gögnum i hendur, sem menn væru að kynna sér og væri ekki ekki gott að segja hve langan tima þetta verk tekur. —AM „Viö Lionsmenn vonum aö þessi tæki komi aö miklum notum viö aö hjálpa þeim heyrnarskertu aö komast gegn um mur þagnarinnar”, sagöi Ólafur Sverrisson i Borgarnesi (til vinstri) er hann fyrir hönd 2.800 isienskra Lionsfélaga afhenti Stefáni Skaftasyni, yfir lækni, hina stóru gjöf. Tímamynd Eila Árangur af sölu LIONS-manna á „Rauðu f jöðrinni: Milljón króna gjöf til Borgarspítalans ■ „Það er meö ólikindum, að Lionshreyfingin skuli hafa fjár- magnað öll helstu tækjakaup Háls-, nef- og eyrnadeildar Borgarspitalans. Óneitanlega vaknar sú spurning hver væri sú sjúkrahúsþjónusta er veitt væri heyrnarskertum ef Lions- hreyfingarinnar hefði ekki notið við”, sagöi Stefán Skaftason, yfirlæknir deildarinnar i gær, er hann tók við enn einni stórgjöfinni frá hreyfingunni fyrir hönd deild- arinnar. Hér er um að ræða fullkomna tækjasamstæðu til sérhannaðrar skurðstofu fyrir háls-, nef' og eyrnalækningar. Þessi gjöf Lionshreyfingarinnar mun vera stærsta gjöf sem þjónustu og liknarklúbbur hefur nokkru sinni gefið sjúkrastofnun hér á landi. Verðmæti gjafarinnar að öllu meðtöldu mun vera um 160 millj. gkr. En fjármálaráðherra voru færðar sérstakar þakkir fyrir að hafa fellt niður gjöld að upphæð um 50-60 millj. gkr., þannig að gjöfin kostar Lionshreyfinguna um 100 millj. gkr. Kaupin hefur hreyfingin fjármagnað með sölu rauðu fjaðrarinnar. Hin nýju tæki eru: Smásjá, ætluð til heyrnarbætandi aðgerða ásamt aögeröarstól, skurðarborð ásamt fylgihlutum, Dameca svæfingavél ásamt ventilator og deyfingaborði, tvö áhaldaborð og tveir journal-vagnar, litsjón- bandstæki, myndavél er tengist áðurnefndri smásjá til aö ljós mynda skuröaðgerðir, og sjón- varpsmyndavél ásamt fylgihlut- um, sem eru hluti af videokerfi er tengist smásjánni. —HEl Hlutiaf tækjabúnaöi þeim er Lionshreyfingin gaf Háls-, nef- og eyrnadeild Borgarspftalans. Tfmamynd Ella. Fjórtán álykt- anir á einum degi e Fjórtán þingsályktunartil- lögur voru samþykktar á Al- þingi s.l. þriöjudag. Ein þess- ara tillagna var frá rfkis- stjórn, fimm frá þingmönnum Framsóknarflokks, tvær frá þingmönnum Sjálfstæöis- flokks, tvær frá þingmönnum Alþýöuflokks, og afgangurinn frá þingmönnum fleiri en eins fiokks. Ályktanirnar voru þessar: 1. Alyktun um að skipa nefnd til að undirbúa kennslu i útvegsfræðum við Hásköla Is- lands, sem hefjist eigi siöarn en haustið 1984. 2. Alyktun um gerð itarlegr- ar athugunar á samkeppnis- aðstöðu íslendinga á mörkuð- um fyrir fisk og aðrar sjávar- afurðir. 3. Alyktun um að könnuð verði áhrif nýlegra breytinga á skólahaldi og skipulagi skóla á ástundun og árangur nem- enda i grunnskólum og fram- haldsskólum. 4. Alyktun um að rikis- stjórnin geri áætlun um magn og nýtingu varáraforku i land- inu I neyðartilvikum vegna orkuskorts. 5. Ályktun um að rikis- stjörnin beiti sér fyrir al- mennri fræðslu um efnahags- mál, og stuöli að þvi að al- menningur eigi þess kost á hlutlausum skýringum á stöðu efnahagsmála. 6. Alyktun um aö ríkis- stjórnin beiti sér fyrir gerð áætlunar um eflingu iðnaðar og þjónustu á Vestfjörðum. 7. Alyktun um kosningu fjögurra manna nefndar er vinni að auknu samstarfi milli Islands, Færeyja og Græn- lands. 8. Alyktun um aö rfkis- stjórnin kanni hvort unnt sé að koma við svonefndum „fri- númerakerfum” sima hjá opinberum stofnunum, sem almenningur hefur mikilsam- skipti við. 9. Alyktun um að rikis- stjörnin skipi nefnd er vinni að itarlegum tillögum um eflingu innlends lyfjaiðnaðar. 10. Alyktun um að rikis- stjórnin láti gera heildaráætl- un um og framkvæma rann- sóknir á háhitasvæðum lands- ins. 11. Alyktun um aö rikis- stjórnin kanni hvort þörf sé breytinga á ákvæöum sigl- ingaiaga, sem lúta aö björgun skipa og skipshafna. 12. Ályktun um að rikis- stjórnin láti kanna hag- kvæmni þess að sameina allan flugrekstur rikisins. 13. Alyktun sem felur i sér staðfestingu á alþjóöasamn- ingi um varnir gegn töku gisla. 14. Alyktun um að rlkis- stjórnin skipi nefnd, er taki til gagngerðrar endurskoðunar menntun fangavarða. —JSG.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.