Tíminn - 22.05.1981, Page 5
fréttir
Á fimmta hundrað undirrita mótmæli í Mosfellssveitinni:
NORKUDEILUR UM LAGNINGU
FLUGBRAUTAR VIÐ LEIRVOG
■ Miklar deilur hafa blossað upp i
Mosfellssveit út af gerð litillar 300
m langrar flugbrautar á Tungu-
bökkum meðfram Leirvogsánni.
Ahugaflugmenn i Mosfellssveit
fengu leyfi frá hreppnum i ágúst i
fyrra til að koma þessari flug-
braut á laggirnar, en vegna þess
hve þá var langt liðið á árið varð
ekki úr framkvæmdum.
1 vor var þessi flugbraut svo
gerð, en þá tóku nokkrir ibúar sig
til og söfnuðu undirskriftum til að
,Hugsað
sem úti-
vistar-
svæði’
segir Katrín
Thorarensen
■ ,,Ég get að visu ekki talað fyrir
munn allra er skrifuðu á mót-
mælalistann en aðalsjónarmiðið
er að þetta svæði er kynnt i skipu-
lagi sem útivistarsvæði fyrir
almenning en er nú orðið svæði
fyrir 10 menn” sagði Katrin Thor-
arensen i samtali við Timann, en
hún er ein af þeim sem stóðu fyrir
undirskriftasöfnuninni.
„Síðan er það aukamál hjá mér
að ég er i aðeins 200 metra fjar-
lægð frá flugbrautinni og inn i það
dæmi kemur hávaðasjónar-
miðið.”
„Áður en samþykkt var i
hreppsnefnd að heimila þessa
braut var ekki leitað eftir við-
brögðum annarra við henni. Sem
dæmium hvað þessi braut snertir
marga má nefna að á milli min og
hennar rennur laxveiðiá og
hávaðinn frá þessum flugvélum
samrýmist ekki laxveiðum.
Raunvisindastofnun er með
segulmælingar þarna og þeir eru
óhressir með þessa braut, og i
hágrenninu er iþróttavöllur.
„Hvað náttúruunnendur snertir
þá hafa þeir notað voginn fyrir
neðan brautina til náttúru-
skoðunar og Náttúruverndarráð
hefur i mörg ár viljað friða vog-
inn vegna dýralifs i honum, þann-
ig að það er á móti byggingu
brautarinnar.”
„Þá má einnig nefna það að
flugbrautin er lögð yfir braut
hestamanna en það er ekki aðeins
hestabraut fyrir ibúa Mosfells-
sveitar heldur er hér um að ræða
kortlagaða braut milli Suður- og
Vesturlands og samkvæmt hefði
má ekki klippa á slikar brautir”.
„Hér i gærkvöldi var ægilegur
hávaði á brautinni, en þá voru
einnig þar menn með flugvéla-
módel en þeir geta vist hvergi
annarsstaðar verið en þarna, og
þá einnig i kringum húsið hjá
mér, en hávaðinn af þessu var
engu likur. Ég vil taka það fram,
að ég skil þessa menn, þetta er ef-
laust mjög gaman, en það hlýtur
að vera eitthað til, sem heitir frið-
helgi heimilanna.”
Katrin sagði að lokum að undir-
skriftasöfnunin hefði ekki verið
skipulögð, heldur hefðu listarnir
verið látnir liggja frammi i sjopp-
um og fleiri stöðum, en ef um
skipulega undirskriftasöfnun
hefði verið að ræða kvaðst Katrin
sannfærð um að um 500 manns
hefðu komið i viðbót.
—FRI
■ Útivistarsvæöið I Mosfellssveit, sem áöur var ætlaö almenningi, en veröur nú tekiö undir fiugbraut.
Tfmamynd: Róberi
mótmæla flugbrautinni. Sveitar-
stjóranum var siðan afhentur
þessi undirskriftalisti fyrir
skömmu, en á honum eru milli 4
og 500 manns.
„Leyfið fyrir þessari flugbraut
var aðeins veitt til bráðabirgða
eða fram að 1. sept. á þessu ári,
sagði Jón Baldvinsson sveitar-
stjóri i Mosfellshrepp i samtali
við Timann.
„Við ætlum að sjá til um hvern-
ig þetta gefst fram i júni/júli á
þessu ári, en þarna er ekki ætl-
unin að fíugvöllur verði i fram-
tiðinni.
„Okkur finnast mótmælin
ósanngjörn og þau eru mikið til
komin vegna skorts á upp-
lýsingum” sagði Jón Jónasson
tannlæknir i samtali við Timann,
en hann er i forsvari fyrir áhuga-
flugmennina.
„Aðalmálið er að þetta svæði er
kynnt sem útivistarsvæði fyrir
almenning i skipulagi en nú er
þetta orðið svæði fyrir 10 menn”,
sagði Katrin Thorarensen i sam-
tali við Timann, en hún er ein af
þeim sem standa að
mótmælunum. __fri
„U PPLYSING ASKORTU R
VELDUR MÓTMÆLUNUM”
— segir Jón Jónasson tannlæknir en hann er í
forsvari fyrir áhuga flugmennina
R „Okkur finnast þessi mótmæli
ósanngjörn og þau eru mikiö til
komin vegna skorts á upplýsing-
um”, sagöi Jón Jónasson tann-
læknir i samtali viö Timann en
hann er i forsvari fyrir áhuga-
fiugmenn.
„Um leið og við hófum fram-
kvæmdir við flugbrautina i vor
hófust mótmælin og það gekk svo
langt að undirskriftum var safn-
að. Sem dæmi um upplýsinga-
skortinn má nefna að á þessum
undirskriftalista var vitnað i það
að þarna á melunum er segul-
mælingastöð frá Raunvisinda-
stofnun og sá maður sem á það
svæði hefur reynt að fá framlag
til uppsetningar 3—4 metra
hárrar girðingar i kringum þetta
svæði. Þessi girðing var tengd við
okkur og þannig fékkst iþrótta-
fólkið á móti okkur.
Hestamenn hófu mótmælin og
kvörtuðu yfir þvi að við værum aö
taka af þeim mikið land sem
mundi skerða þeirra reiðfrelsi.
Við hlustum ekki á svona rök-
semdir þvi það sáu allir i hendi
sér að þó við fáum þarna 1,5 hekt-
ara undir okkar starfsemi þá eru
fleiri hektarar til fyrir þá i
hreppnum”.
„Þá má benda á það að mót-
mælin eru mikið til komin vegna
þess að haldið er að þarna verði
stöðug umferð frá morgni til
kvölds. Svo er alls ekki um að
ræða. Afnot vallarins eru ein-
skorðuð við hreppsmenn þannig
að hér er um 3-4 vélar að ræða og
þar sem þetta er óskráður völlur
mega aðeins vélar með utanvall-
artryggingu lenda á honum. Og
við vigslu vallarins i gærkvöldi þá
kom i ljós að hávaðinn af vélun-
um er mikið minni en óttast var
en menn héldu að ónæði yrði af
þessu.
Og i sambandi við hávaðann
má geta þess að þarna voru á
sama tima menn með flugmódel
á vellinum en hann var hugsaður
einnig fyrir slika starfsemi. Þeir
næstum þvi yfirgnæfðu okkur all-
an timann þannig að þeirra mál
verður að leysa með öðru svæði”.
— FRI
Nýjungamar fylgja
Örugg og tæknilega fullkomin.
Ódýr, stílhrein og audstillanleg.
Glæsileg i nýja badherbergid og eldhúsiö
og audtengjanleg viö endurnýjun á gömlu.
Leitiö upplýsinga. Biöjiö um myndlista.
h
$ Kaupfélag Héraðsbúa
Egilsstöóum