Tíminn - 22.05.1981, Side 6
Föstudagur 22. maí 1981
stuttar fréttir
.. • ;
Frá EgilsstöAum.
Vinna hafin við
skrúdgarðinn
EGILSSTAÐIH: Mikill áhugi
er á umhverfismálum og
skógrækt austur á Egilsstöö-
um og eru nú hafnar fram-
kvæmdir viö nýjan skrúögarð,
þ.e. jarðvegsvinna og lagning
göngustiga. Þá veröur starfaö
viö gróðursetningu á útivist-
arsvæðum á staðnum i sumar.
Munu unglingavinnuflokkar .
taka þátt i þessu starfi þegar
skólum lýkur i byrjun næsta
mánaöar.
—AM
Góð afkoma
Kaupfélags
Suðurnesja
KEFLAVIK: Afkoma Kaupfé-
lags Suðurnesja á s.l. ári var
góð, en á aðalfundi félagsins
fyrir skömmu kom fram að
verslunarveltan hafði aukist
um 77% á árinu og varð
5.981.932.947. kr. með sölusk.
Tekjuafgangur var kr.
17.898.867, er yfirfærist til
næsta árs, en fjárfesting i
sölubúðum, áhöldum og inn-
réttingum var kr. 109.687.929.
Slátrað var 11.723 fjár hjá
félaginu og var meðalþungi
dilka 14.01 kg og hafði hækkað
um 1.65 kg frá fyrra ári.
Benedikt Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
flutti skýrslu um rekstur þess.
1 skýrslu hans kom fram að
húsið rak á árinu tvo togara,
bv. Aðalvik og bv. Bergvik.
Afli Aöalvikur var á árinu 2618
tonn, en afli Bergvikur 3398
tonn. Tap varð á rekstri
beggja togaranna, en heildar
rekstarhalli hússins var kr.
353.439.095. Var orsök þess
mikil aukning fjármagns-
kostnaðar og aukinn oliu-
kostnaður.
Eysteinn Jónsson, fv. ráð-
herra, var gestur fundarins og
ræddi um samvinnumál. A
fundinum voru ræddar tillögur
um stefnuskrá samvinnu-
hreyfingarinnar er borist
höföu frá aðalfundum deilda
félagsins og voru samþykktar
ályktanir i sambandi við það
mál. Þá var skýrt frá framkv.
við byggingu vörumarkaöar i
Njarðvik og áformum um aö
hefja þær i sumar.
Formaöur félagsstjórnar er
Sigfús Kristjánsson, en kaup-
félagsstjóri Gunnar Sveins-
son. Or stjórn áttu þeir að
ganga Kristinn Björnsson og
Jón Einarsson og voru báðir
endurkjörnir. 74 mættu á
fundinn en 102 fulltrúar úr 6
félagsdeildum áttu rétt til
fundarsetu. —AM
Nýtt fyrirtæki
hefur rekstur
steypistödvar
HVOLSVÖLLUR: Nýtt fyrir-
tæki hefur nú hafiö rekstur
steypustöðvar á Hvolsvelli og
nefnist það Steypustööin Stöp-
ull h.f. Er það hlutafélag tiu
aöila, einstaklinga og fyrir-
tækja, i Ranárvallasýslu.
Sigurbjörn Skarphéöinsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, sagði okkur aö félagiö
heföi keypt tækin af steypu-
stöö sem fyrir var á Hvols-
velli, en ekki hefur starfað um
hrið. Hófst framleiöslan þann
14. mai og hefur allt gengið að
óskum til þessa. Er það ásetn-
ingur Stöpuls h.f. að veita
sem besta og fullkomnasta
þjónustu til viöskiptamanna
sinna. Hefur verið leitað að
efni við svonefndan Lambhól i
Fljótshlið og hafa prófanir
með það gefið mjög góðar
vonir. Fyrirtækið mun einkum
þjóna Rangárvallasýslu. Þaö
hefur nú þrjá steypubila til
umráða. Stöðin er til húsa að
Dufþaksbraut 14 á Hvolsvelli.
—AM
Þrjátíu Ibúðir
fyrir aldraða
tilbúnar að ári
tSAFJöRDUR: Framkvæmd-
ir við ibúðir fyrir aldraða á
Isafirði ganga vel, að sögn
Haraldar L. Haraldssonar,
bæjarstjóra, og er vonast til
þess að flytja megi inn i þær i
april á næsta ári.
Verktakar eru þeir Baldur
og Pétur Jónssynir. Hér er um
að ræða ibúðir fyrir 28—30
vistmenn og verða þarna 20
einstaklingsibúöir og 10 2ja
manna ibúðir, eöa 30 ibúðir
alls. Húsnæði þetta er nú tilbú-
ið undir tréverk. Þegar eru
farnar aö berast umsóknir um
húsnæðið og má vænta að um-
sóknir verði fleiri en hægt er
að anna, eins og veröa vill, en
elliheimilið á staðnum er
löngu fullnýtt. —AM
?rBlanda verði
virkjuð á
árinu”
NORÐURLAND: A fundi sin-
um samþykkti fjóröungsráð
Fjóröungssambands Norð-
lendinga að beina þvi til þing-
manna af Norðurlandskjör-
dæmi, aö bundið veröi fast-
mælum, við afgreiöslu frum-
varps um raforkuver, að á
þessu ári veröi tekin ákvörðun
um Blönduvirkjun, og er I þvi
sambandi skirskotað til þess
að Blanda er tvimælalaust
hagkvæmasti virkjunarkost-
urinn þjóöhagslega séð.
Fjórðungsráö skorar á þing-
menn Norðlendinga aö leita
eftir stuöningi þingmanna
þeirra landshluta sem hafa
beina hagsmuni af Blöndu-
virkjun sem næsta virkjunar-
kosti til aö tryggja málinu
framgang innan rikisstjórnar-
innar og á Alþingi. —FRI
Nýr sveitar-
stjóri
SUÐAVIK: Nýr sveitarstjóri
hefur nú hafið störf á Súöavik,
en hann er Auöunn Bjarni
Ólafsson, sem fæddur er og
uppalinn Borgnesingur, en
hefur búið i Hafnarfiröi
undanfarin ár.
Hann tekur við starfinu ag
Hálfdáni Kristjánssyni, sem
veriö hefur sveitarstjóri Súö-
vikinga frá 1977. Auðunn kom
vestur nú i vikunni.
fréttir
Olíumöl h.f. seldi sveitarfélögum
ónýta olmmöl 1978:
„V» STÖNDUM ENN I
STAPPI ÖT AF KSSII”
segir Logi Kristjánsson, bæjarstjóri á Neskaupstað
B,,Það tók tvö ár að fá úrskurð
Rannsóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins um að oliumölin sem
við fengum frá Oliumöl h.f. væri
ónothæf og á meðan gátum við
ckkcrt gert varðandi skaðabóta-
kröfur. Allir vita söguna af Oliu-
möl siðan, þannig að við stöndum
enn i stappi út af þessu”, sagði
Logi Kristjánsson, bæjarstóri á
Neskaupstað, i samtaii við
Timann.
Oliumöl þessi var framieidd úr
steinefnum úr svonefndu Mels-
horni við Reyðarfjörð. Sagöi Logi
það hafa komið i ljós strax og
teknar voru prufur af efninu
haustið 1978, að efnið skorti
viðloðun. En samkvæmt kaup-
samningi átti það að vera undir
eftirliti Rannsóknarstofnunar-
innar. Húnreysti sér þó ekki til að
úrskurða efnið ónothæft, fyrr en
lagður hafði verið tilraunakefli,
sem gert var sumarið 1979. Eftir
reynslu af þeim kafla fékkst loks
endanlegur úrskurður um að við-
loðun efnisins væri 40—60% of
litil. Það þýöir að þessi oliumöl er
óhæf sem yfirborðsslitlag, að
sögn Loga.
Kostnaðinn af mölinni sagði
hann hafa verið um 14 milljónir á
sinum tima. Upphaflega hafi
verið krafist að fá nýja möl i stað
þeirrar gölluðu, en siðan að fá
verðlækkun er næmi um 50% af
verðinu. Það þýddi þá niðurfell-
ingu á þeim um 2 millj. gkr. er
ógreiddar eru og jafnframt um 5
millj. gkr. isamþykktum vixlum,
sem samkvæmt þegjandi sam-
komulagi viö stjórn Oliumalar
hafi verið látnir liggja meðan
málið væri i skoðun.
Nokkrir fleiri staðir austan-
lands urðu fyrir þvi aö kaupa
þessa gölluðu oliumöl og leggja
hana áður en úrskurður fékkst
um gallana. Meðal þeirra staða
voru Þórshöfn, Fáskrúösfjörður
og Eskifjörður. Bæjarstjórinn á
Eskifirði sagði 2.000 tonn keypt
þangað árið 1977 og lagða út
sumarið 1978. Sú lagning væri nú
nánast farin eða alveg að fara og
ekki um annað að ræða en leggja
nýtt lag ofan á göturnar.
Þegar innköllunarfresti á
kröfum á Oliumöl h.f. lauk
nýlega, hafði aðeins borist form-
leg skaðabótakrafa frá Þórshöfn,
og varla heyrst frá öðrum oliu-
malarkaupendum austanlands en
þeim og Norðfiröingum, að sögn
Björns Ólafssonar. HEI
Kolbeins-
ey af hent
■ Slippstöðin h.f.á Akureyri hefur nú afhent skuttogarann Kolbeinsey
ÞH—10 eigendum sinum sem eru útgerðarfélagið Höfði h.f. á Húsavlk.
Skipið, sem er 430 rúmlestir, brúttó, að stærö var að öllu leyti hannað
af tæknideild Slippstöövarinnar og er smfðað skv. reglum Det Norske
Veritas og er sérstaklega styrkt til siglinga IIs.
Kolbeinsey er útbúin sem fiskiskip til botn- og flotvörpuveiða. Skip-
stjöri er Benjamin Antonsson. __fri
Þjóðarframleiðsla 1980:
„Meiri en hjá 24
rikjum OECD”
— sagði Tómas Árnason,
viðskiptaráðherra í eldhúsdags-
umræðunum
■ „Þrátt fyrir oliukreppu og
óðaverðbólgu er staða Islenska
efnahagskerfisins furöanlega góð
i sumum greinum. Þjóðarfram-
leiðslan á seinasta ári óx um
2,5%, sem er meira en meöaltal
24 meðlima rlkja Efnahags- og
framfarastofnunarinnar. Hins
vegar jukust þjóðartekjur aðeins
um 1,2% vegna rýrnandi viö-
skiptakjara. En viöskiptakjörin
gagnvart útlöndum voru 12% lak-
ari á s.l. ári en var á árinu 1978,
■ Borgarráö samþykkti á siðasta
fundi sinum að ráðstafa lóðum
undir rúmlega 50 leiguibúöir við
yfirstandandi lóöarúthlutun. Hér
er um að ræöa lóöir undir 26
leigulbúöir I fjölbýlishúsum i
Nýjum Miöbæ, a.m.k. 15 íbúöir i
fjölbýlishúsum á Eyrarlands-
þannig að ljóst er að engin verð-
mætasköpun á mann var til stað-
ar á árinu.”
Þannig komst Tómas Arna-
son, viöskiptaráðherra, að orði i
eldhúsdagsumræðum frá Alþingi
i fyrrakvöld. Tómas ræddi aðal-
lega um aðgerðir rikisstjórnar-
innar til aö lækka verðbólgustigiö
og sagði m.a.:
„Þjóöhagsstofnun hefur i
skýrslu sinni um þjóðarbúskap-
inn sagt að veröbólga heföi orðið
svæöinu, og 10 leiguibúðir við
Viðihlíö i Suðurhliðarhverfinu.
Byggingarsjóði Reykjavlkur
hefur veriö falið að vinna áfram
að undirbúningi þessa máls i
samráði við aörar borgarstofn-
anir sem þvi tengjast.
Kás
Tómas Arnason, viðskiptaráð-
herra.
um 70% á þessu ári ef ekkert hefði
verið að gert. Tæpir fimm mán-
uöir eru siðan rlkisstjórnin sam-
þykkti efnahagsáætlunina á
gamlársdag. Fram til 1. mai
hefur veröbólgan verið um 10%,
sem svarar til rúmlega 32% á
ársgrundvelli. Það er þvi alveg
ljóst aö um áramótin var brotiö
blað i þessum málum.”
Tómas Arnason sagöi að þó
þessar tölur um fyrstu mánuöina
gæfu að sinu mati ekki rétta
mynd af veröbólgustiginu i hag-
kerfinu, væru öll skilyrði til að
koma verðbólgunni niður i 40% á
árinu. Hann sagði: „Óöaverð-
bólgan leiöir hægt og bitandi til
minni framleiöslu, verri lifskjara
og ótryggari atvinnu. Það hefur
náöst marktækur árangur I bar-
áttunni gegn henni á þessu ári, og
honum þarf og verður fylgja eftir.
JSG
Lóðum ráðstaf að
undir um fimm-
tíu leiguibúðir